Ég verð stundum frekar slöpp í skapinu við að lesa fréttir - svona eins og á þessum tíma árs þegar ég leggst í þunglyndi rétt á meðan ég klára skattskýrsluna - maður þarf í alvöru að spá í alls konar hluti.
T.d. - eiga konur í alvöru að láta það bara yfir sig ganga að láta káfa á rassinum á sér ? Og þá brjóstunum líka... væri ekki bara fínt að þær hætti að ganga í brók til að sveittir ógeðskarlar eigi auðveldari aðgang með gráðuga puttana á sér ?
Svona fréttir geta eyðilagt fyrir manni daginn - en líka orðið til þess að maður fer að hugsa "hvað myndi ég gera ?" Vitandi það að ég verð kærð og sakfelld (veit þetta var í Svíþjóð) fyrir að verjast svona yfirgangi.
Æ látið ekki svona - bojswillbíbojs - hvaða hvaða, voðalegt stress er þetta !
Ég hugsaði sem svo... sennilega er best að grípa þéttingsfast - og aðeins betur - um gaurinn miðjan og herða svo vel að, mjög vel. Kremja bara eins og maður ætli að sprengja vínber. Viss um að þá verði máli fávitans gegn konunni (sem sennilega er kynköld kunta því hún vill ekki leyfa ókunnugum gaur að káfa á sér allri) verði líka vísað frá vegna skorts á sönnunargögnum.
Vona að þessi kona borgi þessum gaur ekki krónu... helv... djö... andsk... fávitagangur í réttarkerfinu alls staðar.
Later

Ummæli