Fara í aðalinnihald

Little voice

Já nei til að koma í veg fyrir allan misskilning þá er ég ekki söngfugl !

Um daginn var myndin Little voice á RUV - það var þýtt Taktu lagið Lóa. Ekkert gæti verið fjær mér en að geta sungið. Gjörsamlega laglaus, taktlaus og röddin er hræðileg... tala nú ekki um ef frúin er þreytt eða búin að tala hátt og mikið í dálítinn tíma, t.d. inni á háværum skemmtistöðum. Það er þannig í alvöru... no joke - ég verð þreytt í röddinni. Ástæðan er einföld - tvær stórar aðgerðir á hálsinn hafa áhrif, fyrri aðgerðin þannig að ég þakka guði fyrir þolinmæði skurðlæknisins sem var sekúndur frá því að klippa á raddböndin til að taka æxli sem var pikkfast og erfitt að ná. Vaknaði eftir seinni aðgerðina raddlaus - vitiði hvað það er erfitt ? Að geta ekki talað almennilega ! Það er hræðilegt að vera með máttlausa rödd, óþolinmæði mín náði nýjum hæðum er ég kjökraði setningunum út úr mér - ekki sjaldan sem BH spurði mig í símann hvort ég væri að gráta!

Sennilega óþolinmæði minni að þakka að ég fékk röddina aftur á ca mánuði. Var með tvö mátulega fjörug og óþekk þriggja og sex ára kríli sem gengu á lagið þegar mamman var mállaus. Ég hvæsti röddina í gang aftur! Allir sáttir og ánægðir fyrir mína hönd að röddin kom aftur - það var alveg hætta á að ég fengi hana ekki aftur. Það heyrir enginn nokkurn mun - nema EINN!

BH vill meina að röddin hafi aldrei kikkað almennilega inn aftur. Hún er á hærri tíðni í dag en hún var, það er sennilega rétt þó það verði aldrei mælt eða sannreynt.

Ég fór með Tíunum í mat til Begga og Pacas í vikunni sem leið. Afskaplega skemmtileg og notaleg kvöldstund. Beggi fór á kostum í sögustund og brandararnir flugu. Hann spáði fyrir okkur líka - það var fróðlegt - skemmtilegt show. Er hann var að fá nöfnin okkar og fæðingardag, leit hann allt í einu á mig og sagði...
þú ert eitthvað tengd út á landi, ertu utanað landi !
Já nei fædd og uppalin í RVK... bara tengsl við ömmu og afa út á land skoh :)
Það er samt svo mikil náttúra í kringum þig - svo ertu bara svo sæt !
ehe hahaha já þakka þér fyrir !

Fannst þetta frekar fyndið - en er náttúrubarn, bakka ekki með það, og alltaf úti að leika með börnum og hundum og eiginmanni og vinum. Alltaf í útilegum með ma og pa og litlu sys í gamla daga - elska það líka. Og finnst hrikalega ljúft að ferðast um landið okkar í góðu veðri.... og líka slæmu veðri ef maður er rétt búinn :)  - En hverjum finnst það ekki !

Eitt af því sem kom fram í spánni minni var að það væru breytingar í gangi - má segja að það sé nærri lagi for sure - en hann sagði að það væru peningar sem færu að streyma í mína átt og það væri svo gaman að því að ég vissi að ég ætti það skilið, væri ekkert að efast um það. ööö nei, tek við þeim alveg ef þessi spá rætist :)

Hins vegar eftir þessa helgi er ég viss um að hann hafi eitthvað ruglast, eitthvað séð vitlaust hvert peningarnir streymdu. Við fjölskyldan vorum nefnilega í Kringlunni á laugardaginn. KEB fékk buxurnar og skóna fyrir ferminguna - og keypti sér einnig íþróttaskó og belti. KBB keypti sér sittlítið af hverju, kjól, eyrnalokka, íþróttabol og eitthvað. En við BH fórum á kostum og toppuðum ungana, fórum létt með það. Hittum sölumann nr 1 og keyptum jakkaföt og tilheyrandi á eiginmanninn. Á meðan hann var svona að ganga frá smáatriðum, eins og LENGJA í buxnaskálmum, þá slysaðist frúin í kvendeild búðarinnar og fann KÁPUNA sína. Ójá hún var merkt mér - tvær eftir og önnur í minni stærð. Smellpassaði á kroppinn, get hreyft axlirnar og allt - m.a.s. keyrt bíl... þarf ekki bílstjóra þegar ég fer í hana. Tók okkur þrjár mínútur að ákveða að þetta væri kápan sem ég er búin að leita að. Svo það bættist aðeins á reikninginn - en hey við verðum svo SVÖL í þessari fermingu að það eru engin takmörk.

Anyways - Beggi sagði okkur frá því hvað Pacas finnst æðislegt að syngja og lýsti honum svo eins og ég lýsti sjálfri mér hér áðan. Gjörsamlega laus við alla tónlistargáfu. En hann syngur hástöfum út um allt hús með góðri tónlist og Beggi sagðist elska það að hlusta á hann syngja þrátt fyrir allt. Ég hugsaði - það er ást :)

Því ég hugsaði til þess að nokkru áður, í sömu viku, hafði ég verið að tjá mig við eiginmanninn - segja honum alls konar - man ekkert hvað, kannski til syndanna ? Efast um það - hef frekar verið að tjá mig um eitthvað gáfulegt. Þegar þessi hreinskilni maður segir... "Lóa mín, ertu þreytt ?" Ég leit á hann og áttaði mig strax hvað hann átti við - ég heyrði það sjálf. Röddin í hæstu hæðum þrátt fyrir að ég væri ekki á háa C-inu, ekkert æst, ekkert búin að tala mikið né hátt. Svo ég sagði, já sennilega og fór að hlæja. Röddin mín er greinilega ekki mjög sexý ! Meira svona skræk eins og í talsettu barnaefni á íslensku. Hann hefur litla þolinmæði fyrir þessari þreyttu rödd... hefur oftar en einu sinni beðið mig um að þegja bara, hugsanlega orðað það eitthvað kurteisar... ekki alltaf samt. Ekki mikil ást í því :/

En ég syng samt bara með tónlistinni í bílnum þegar ég er ein... hef bara nógu hátt til að heyra varla í sjálfri mér... bæði til að þurfa ekki að heyra röddina og líka heyra minna þegar ég hika af því ég kann ekkert textann - lélegust í heima að hlusta á texta í tónlist!

Ég þakka guði fyrir að börnin mín erfðu ekki þetta hæfileikaleysi mitt - þau eru bæði með mjög gott tóneyra og snillingar í að læra texta við lögin! Það er svo gaman að hlusta á þau með hljóðfærin sín og þegar þau spá og spuglera í þessu öllu - og semja tónlist - hafa bæði gert það! GLÆTAN að ég gæti það - mesta lagi textann þá :)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...