Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá 2015

Í ruglinu

Fór að spegla mig í dag... í Mjóddinni. Fékk Kæruleysis sprautu og mátti ekki keyra sjálf heim, var skutlað á staðinn. Var búin að plata systur mína til að koma og sækja greyið þegar ég væri búin. Svona var samtalið okkar er ég var NÝKOMIN á hvíldarstofuna... Þannig var það nú... hún kom inn til mín og ég svaf klukkutíma á meðan hún sat yfir vitleysingnum. Svo losnaði hún fljótt við mig og ég fór á flakkið að græja og gera. Dauðfegin að þetta virkar ekki eins og að vera svæfð - meikaði ekki heilan dag í flökurleika og ógeð. Later

Hegðaðu þér rétt !

Í síðasta mánuði fylgdist ég, eins og aðrir, með umræðu og fréttum og viðbrögðum fólks, í tengslum við dóma í nokkrum kynferðisbrotamálum. Ég m.a.s. las dóminn yfir hinum fimm fræknu. Og nei ég komst ekki að þeirri niðurstöðu að greinilega væru drengirnir saklausir og stúlkan lygin drusla sem vildi´ða. Eins og margir karlkyns kommentarar, sem höfðu lesið dóminn. Ég komst heldur ekkert að þeirri niðurstöðu að þeir væru allir drullusekir og hún saklaust fórnarlamb. Eins og margir kommentarar sem ekki lásu dóminn og helst bara fyrirsagnir fréttamiðla og upphrópanir múgsins með heykvíslarnar. Ég var ekki á staðnum, ég veit ekki hvað gerðist. En ég VEIT að ég myndi ekki vilja að dómarar, hvorki í héraðsdómi né hæstarétti myndu rétta í máli ef ég stæði frammi fyrir því að kæra kynferðisbrot. Ég treysti þeim ekki í eina sekúndu. Ég ætla að halda því fram hér og nú að ég væri alveg manneskjan til að sýna "óeðlilega" hegðun að þeirra mati eftir að á mér væri brotið og sennilega á me...

visir.is 3. des

Skynsamleg viðbrögð? SKOÐUN 07:00   03. DESEMBER 2015 Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir. SÆUNN KJARTANSDÓTTIR SKRIFAR Nýlega voru fimm piltar sýknaðir af ákæru um að nauðga skólasystur sinni. Ekki leikur vafi á að kynmök hafi átt sér stað heldur hvort stúlkan hafi verið þeim samþykk. Stúlkan kærir ofbeldi en piltarnir lýsa hversu gröð hún hafi verið í þá alla, helst sem flesta í einu. Án þess að ég telji mig þess umkomna að meta hvað gerðist í þessum harmleik vil ég benda á nokkur mikilvæg atriði. Það er löngu tímabært að lögregla, saksóknari og dómarar átti sig á að þegar þeir leggja mat á trúverðugleika fólks er hyggjuviti þeirra takmörk sett. Þekking á lögum gerir fólk ekki sérfrótt um mannlega hegðun en hvors tveggja er þörf þegar kemur að kynferðisbrotamálum. Það eru til dæmis alvarleg mistök að ganga út frá þeirri forsendu að fólk í áfalli hegði sér á tiltekinn hátt. Þannig er óforsvaranlegt að ráða af atferli stúlkunnar af upptöku úr eftirl...

Heil og sæl

Sumt þarf maður bara að eiga - þetta myndband minnti mig á einn fjölskyldumeðlim, nefnum engin nöfn KBB. Tek það fram að viðkomandi drottning hefur lagt nett fæð á þennan söngvara í gegnum tíðina. Vægt til orða tekið þá er hún ekki aðdáandi. En svona hefur hún stundum viljað heilsa móður sinni samt, með auðvitað hennar útfærslu. Útfærslu sem ég get aldrei lært, enda ekki alltaf eins. En ég er ekki bara svona takmörkuð að geta ekki græjað svona kveðju í hvert sinn - meira bara hef ekki tíma í þetta :) Later

#UglyAssBitch

Hendi stundum inn myndum hérna... m.a.s. af mér sjálfri. Nenni sjaldnast að breyta þeim - geri það nú samt stundum. En helsta ástæðan fyrir að ég geri það ekki er leti - ég nenni því ekki. Vil bara skrifa það sem mig langar að segja og hendi inn myndum af því það er gaman að hafa þær með. En nú sé ég að það er enn betri ástæða til að sleppa því að eiga við myndirnar og nú held ég mig við þessa skýringu: Yup - ég er ekki löt, ég þekki sjálfa mig og það er full ástæða til að óttast að ég gæti týnst einn daginn... bara af því ég man ekki hvar eða hver ég er, fór út í náttúruna og rata ekki tilbaka, fór til útlanda og rata ekki tilbaka - eða eitthvað bara... svo þetta er ástæðan fyrir því að ég sleppi þvi að edit-a allar myndir af mér ;) Ég vil að það sé rétt nafn á legsteininum þegar þar að kemur.

Bleikur dagur

Var að fara á fund í gærkvöldi - auðvitað var mælst til að konur og menn myndi mæta í einhverju bleiku í tilefni þess að í dag væri bleiki dagurinn. Um daginn, í byrjun mánaðar, keypti ég tvær bleikar slaufur, eina fyrir mig og eina fyrir KBB. Þetta er í fyrsta sinn í nokkur ár sem ég kaupi bleiku slaufuna. Ákvað fyrir þó nokkru að ég tæki ekki þátt í að styrkja Krabbameinsfélagið í því að einbeita sér að einni tegund krabbameins í konum. Konur fá allar tegundir krabbameins. Eftir að hafa fylgst með vinkonum, og konum sem ég kannast við, berjast við alls konar krabbamein fannst mér að peningar úr árlegri söfnun ættu ekki allir að fara í einn rannsóknarpott. Örugglega heilmikið einfaldað hjá mér, en í mörg ár einblíndu þeir á brjóst kvenna og krabbamein í þeim - finnst gott að nú skuli fólk einbeita sér einnig að annars konar krabbameini og benda á mikilvægi þess að opna umræðu á aðrar tegundir. Í ár er ristilkrabbamein í sviðsljósinu. Krabbamein sem fólk hefur helst ekkert viljað t...

Staðreynd

Ég flý það ekki lengur - það er endanlega orðið opinbert. Ég er miðaldra ! Hver hefði trúað að það er ekkert mál og að maður gæti verið svona fáránlega ferskur og fallegur á þeim tímapunkti í lífinu. Hljóp 9 km í gær - hafði lítið fyrir því. Já ok er með svona verki í mjöðmum og lærum í dag og smá stíf þegar ég stend upp. En ekkert til að væla yfir - hef oft verið verri sko. En ég held að maður neiti því ekki lengur og verði að horfast í augu við staðreyndir og sætta sig við blákaldann veruleikann þegar sá dagur rennur upp að frumburður manns verður tuttugu ára. Það er þannig að þessi ungi herramaður... ... sem er jafn hissa og ég - er TUTTUGU ÁRA í dag, 6. október. Hann kom í heiminn mánuði fyrr en áætlað var - leiddi til þess að móðir hans stóð á brókinni á spítalanum (án brókar samt eiginlega meira að segja) og karl faðir hans þurfti að græja allt áður en krílið kom heim í Ferjuvoginn. Og hann stóð sig vel - reddaði öllu sem redda þarf fyrir ungabarn á þremur dögum. N...

ÉG?

Ég setti í tvær þvottavélar, setti á snúrurnar og í þurrkarann, skipti á einu rúmi og baðaði eitt stykki krakka og lét hana skipta um föt. Þreif klósettið... það var bara vel skítugt - alveg fjólublátt... skúraði rétt yfir ganginn og hluta af holinu og inni í herberginu mínu. En þú ? Hvað gerðir þú í nótt ? #ælupest Later

5 ára

Leo er fimm ára í dag. Við erum sannir vinir. Hann ber enga virðingu fyrir mér, er ekki húsbóndahollur fyrir fimm aura... en hann elskar mig skilyrðislaust og sýnir mér ástúð á hverjum degi. Og ég elska hann líka :) Eitt af þremur er býsna gott. Later

when it rains...

Þegar maður býr í frumskógi þarf að gera ráðstafanir. Maður man það á kvöldin í hellidembu og hávaðaroki... blessuðu lægðirnar. Þá drippar hérna niður á pallinn og stundum hérna hinum megin beint á grasið þannig að smellur í. Það er nett pirrandi því maður veit að maður hefði átt að vera búinn að græja þetta. Þá er gott að skrifa þetta í dagbókina og drífa sig út daginn eftir þegar bjart er og skaplegt veður. Tekur enga stund og vatnið rennur ljúflega sína leið er búið er að hreinsa laufin í burtu. Hætt við að það þurfi að endurtaka leikinn fljótlega - það er nóg eftir á trjánum ennþá. En það er algjörlega þess virði. Later

Scam

Þetta er bara rugl sko... prófaði þetta - virkaði ekki ! Ekki trúa öllu á internetinu. Later

*Sigh*

Best að fara að sofa, vakna snemma til að vera mætt kl. 9:00 í Nauthólsvíkina... hvaða fávita datt þetta í hug ? Ég villist samt varla þar ... jæja... aldrei að segja aldrei. Hugga mig við að gæslan er þarna í næsta húsi, verð með símann ! ok bæ

Sumarlok

Haustið byrjar með látum. Gott að geta skriðið inn í hús eftir að hafa skorðað allt lauslegt og bundið hliðin föst - nenni þessu ekki aftur... Svona var þetta í mars eftir rosa rokið - þegar hálfur Mosfellsbær fór á flot... slapp við það ! það er hressandi að koma út eftir rokið og lætin. Verð að viðurkenna að vera meðvitað þakklát fyrir að hér virðist fólk taka trampólín inn eða festa vel. Það er frekar glatað að fá eitt slíkt fjúkandi á bílinn hjá sér eða húsið. En sumarið er að láta í minni pokann hérna, ekki alveg jafn snyrtilegt að koma út í garð.  Hugsa að ég nenni ekki að slá grasið einu sinni enn fyrir veturinn. Það óx ekki svo mikið eftir síðasta slátt. En mig langar það pínu til að svona "ryksuga" upp laufið. En við vitum að þetta er rétt að byrja. Það tonn og then some eftir á trjánum, svo það tekur því ekki. Þannig að þetta er bara kósý - svona skræpótt loðteppi yfir allan garðinn. Ef laufin myndu þá halda sig þar, það væri frábært. En neibb, ég ...

Náttúruhlaup

Mér finnst ekki gaman að hlaupa. Það er bara þannig. Mér finnst heldur ekki gaman að keyra í hringi og vita ekki hvert ég er að fara. Mér finnst í raun ekki gaman að ráfa um stefnulaust. Mér finnst best að vera á leiðinni á ákveðinn stað þegar ég er á ferðinni. Hvort sem það er gangandi, hlaupandi, keyrandi, fljúgandi o.s.frv. En mikið óskaplega líður mér ágætlega eftir að hafa farið út og hreyft mig. Og það er skemmtilegra og auðveldara að hafa sig af stað þegar maður er með orkumikla loðbolta sem alltaf eru til í draga mann út. Þá er einhver tilgangur í að drífa sig. Ég var hlaupagikkur sem barn, hafði lítið fyrir því að hreyfa mig og komst hratt yfir þegar ég tók spretti. Í dag þarf ég að hafa meira fyrir þessu. Ætti að vera þannig að þegar ég í þokkalegu formi, sem ég er, þá ætti það ekki að vera mikið mál að viðhalda getu og þoli. En það er ekki þannig. Mér finnst eins og áður sagði ekkert voðalega gaman að fara út að hlaupa. Það er fínt þegar ég er komin af stað með góða tó...

#Haustlægðin

Haustið er alltaf pínu uppáhalds árstíð hjá mér. Það er eitthvað, veit ekki nákvæmlega hvað. Kannski þetta brakandi ferska loft sem fylgir - aðeins kaldara og crispy. Eða litirnir, haustlitirnir eru frábærir. Það jafnast ekkert á við þá. En þetta haust byrjar svipað og ég átti von á. Blautt og lognið að flýta sér. Ég ætla að bera á pallinn í haust, það var planið síðan í byrjun sumars. Því átti ég von á nákvæmlega þessari byrjun að hausti. Og nú segja þeir að haustlægðirnar séu búnar að raða sér upp og bíði spenntar að dynja á okkur hver af annari næstu daga. En mér er ALVEG SAMA Ég er tilbúin. Læt ekki smá rok og rigningu stoppa mig :) Endilega keep them coming - búin að vopnbúast og bíð spennt eftir þeim ! Later

Lífið í sveitinni

Hef verið dugleg að fara í Skorradalinn um helgar. Afskaplega notalegt að slappa af hérna. Ég legg yfirleitt af stað eftir kl. 21 á kvöldin og hef þannig náð að vera laus við umferð að mestu. Lenti fyrr í sumar í sjö kílómetra langri röðinni fínu að göngunum Akranesmegin. Mjög skemmtilegt að hanga þar, vitandi að foreldrar mínir fóru Hvalfjörðin. Pjattaða ég forðast malarvegi á fína bílnum mínum ef ég get. Sá eftir því í þetta sinn. En við komumst heim á endanum og enginn fór yfir um af óþolinmæði, hvorki ég né tvær 16 ára stúlkurófur sem sátu með mér í bílnum í það skiptið. Í gær lagði ég af stað rétt eftir kl. 21, ekki mikil umferð en samt nokkrir bílar. Er ég kom að göngunum sá ég að bílarnir tveir fyrir framan mig voru stopp. Ástæðan var einföld, rautt ljós blikkandi og sláin niðri. Allt stopp og ég þriðji bíll... "í alvöru" hugsaði ég... AFTUR ? Ég velti fyrir mér að það væri stuttu í Hvalfjörðinn en ákvað að hinkra aðeins. Greip símann og skoðaði aðeins mbl og at...

That´s it...

Sit hérna við eldhúsborðið og sparka í sjálfa mig... en hlusta ekki. Er að hafa mig út í hlaup með hvutta en er mjööög dugleg að búa til afsakanir. Prjónarnir toga mikið í mig, byrjuð á bekknum (mynstrinu fyrir þá sem ekki skilja). Og bara kósý að vera inni að skoða fb og hugmyndir að verkefnum, eftir að hafa verið dugleg í dag við alls konar. Svo sá ég þetta... Þannig að - bæ bæ, ég og hvutti tökum þessa fimm kílómetra áður en ég hlamma mér upp í sofa og ríf upp prjónana yfir sjónvarpinu. Later

Hrista bossa

Hef ekki verið dugleg að hlaupa í sumar, né vor. Alls konar ástæður. Helst ber að nefna: borða ekki nóg, hef mig ekki af stað = leti, vöðvaverkir eftir nokkur skipti, liðverkir eftir nokkur skipti, orkuleysi í kroppnum eftir nokkur skipti, nóg að gera í garðinum, nóg að gera inni í húsi og alls konar bara :) Hef samt rifið mig af stað öðru hverju. Og það er alltaf jafn gott að drífa sig og maður er ánægður með sig þegar maður er búinn. Helst hef ég mig af stað ef ég ákveð strax og ég vakna að þetta sé dagurinn og ég fari út strax og ég er búin að borða og græja hér innandyra daglega rútínu. Þá klæði ég mig beint í hlaupagallann svo líkurnar aukist á að ég skoppi af stað þegar kroppurinn er búinn að fá orku, búið er að tæma uppþvottavél, ryksuga (já hér er ryksugað á hverjum degi) og þvottavélin farin að mala (það er ekki daglega). En sumt nenni ég ekki að gera áður en ég skoppa af stað. Ég nenni alls ekki að hafa sjálfa mig til áður en ég fer út að svitna. Og sumir dagar eru ba...