Hef ekki verið dugleg að hlaupa í sumar, né vor. Alls konar ástæður. Helst ber að nefna: borða ekki nóg, hef mig ekki af stað = leti, vöðvaverkir eftir nokkur skipti, liðverkir eftir nokkur skipti, orkuleysi í kroppnum eftir nokkur skipti, nóg að gera í garðinum, nóg að gera inni í húsi og alls konar bara :)
Hef samt rifið mig af stað öðru hverju. Og það er alltaf jafn gott að drífa sig og maður er ánægður með sig þegar maður er búinn.
Helst hef ég mig af stað ef ég ákveð strax og ég vakna að þetta sé dagurinn og ég fari út strax og ég er búin að borða og græja hér innandyra daglega rútínu. Þá klæði ég mig beint í hlaupagallann svo líkurnar aukist á að ég skoppi af stað þegar kroppurinn er búinn að fá orku, búið er að tæma uppþvottavél, ryksuga (já hér er ryksugað á hverjum degi) og þvottavélin farin að mala (það er ekki daglega).
En sumt nenni ég ekki að gera áður en ég skoppa af stað.
Ég nenni alls ekki að hafa sjálfa mig til áður en ég fer út að svitna. Og sumir dagar eru bara svona...
Bad hair day er ekki óþekkt á þessu heimili - og býsna algengt. Ég er hætt að láta það á mig fá og geri það besta úr málinu... EFTIR að ég fer í sturtu eða skola á mér hárið. Eyði ekki tíma í það áður en ég fer út og hreyfi mig. Því sturta skal það vera þegar heim er komið aftur.
Hins vegar reddar maður sér bara áður en maður fer út á meðal almennings. Ég vil ekki hræða Mosfellinga eða annað saklaust fólk sem gæti orðið á vegi mínum.
Hlaupið gekk bara vel - hafði vit á að sleppa peysunni og vera í hlírabolnum bara, veit fátt verra en að vera að drepast úr hita er maður er að svitna þarna úti. Fannst við hæfi að skella mér í gulan í stíl við sólina og viti menn, hún lét sjá sig og kíkti á okkur Leo á meðan við skokkuðum tindilfætt hérna fyrir neðan golfvöllinn.
Heppna ég að geta farið fáklædd út og þannig reynt að koma í veg fyrir að ofhitna á leiðinni - ekki allir svo heppnir og þurfa að vera í pelsinum sínum sama hvað hitamælirinn segir. En þar sem ég blés heilmikið úr þeim eftir bað í fyrradag, þá ætti kælikerfið að vera í ágætismálum og ofhitnun ekki líkleg í 14°C
Hárið lagaðist ekkert undir húfunni og var alveg jafn slæmt er ég kom heim aftur... en nú fór ég í sturtu og það lagaðist heilmikið við það - get látið sjá mig á meðal siðmenntaðra núna.
Later
PS - er orðin nútímalega og tek selfies í gríð og erg og birti á alnetinu... því það er allt um mig frá mér til mín !

Ummæli