Föstudagurinn 17. júlí:
Á meðan ég græjaði inni í þvottahúsi, sem er orðið súper fínt núna, þá setti ég KBB í rabarbaramálið. Hún fór út í garð og reif upp rabarabarann.
Við fórum saman út í garð og ég sýndi henni hvernig maður græjar þetta úr moldinni, og sker af blöðin og endann.
Henni þótti þetta ekki mikið mál og dreif sig í málið - svo henti hún afgöngunum sem hún skar af í moldina undir rifsberjarunnanum. Fínasta efni í mold :)
Þegar hún kom inn aftur fékk hún eldsnögga sýnikennslu í að skola af uppskerunni
og skera allt niður í matvinnsluvélinni. Já ég nenni ekki að skera þetta allt í höndunum, langt síðan ég hætti því og setti vélina í þessa vinnu.
Þegar hún var búin að skera niður og vigta sex kíló var þessu hent í pott og blandað sykri. Suðan var fljót að koma upp og þetta fékk að malla í þrjá klukkutíma.
Ekki alveg lystugt svona fyrst eftir að suðan byrjar og ég hugsa alltaf... ætli hún verði svona græn/drullubrún ??
En hún verður alltaf fallega rauð fljótlega. Sultan er alltaf mjög góð, en hefur verið heldur vökvamikil hjá mér. Prófaði núna að láta sjóða vel í þessu og hafði lokið ekki á pottinum. Það olli heilmiklum sóðaskap í kringum pottinn - frekar klístrað og slettur út um allt.
En ég held að það hafi borgað sig. Held að sultan verði þykkari núna, og hún er fáránlega góð. Lítur vel út og smakkast mjög vel.
Restin af rabarbaranum fór í frysti. Ég skar niður fimm kíló í viðbót og á til góða ef ég vil gera meiri sultu eða búa til rabarbara pie eða eitthvað slíkt. Það er á áætlun að drífa í því og fá gesti til að njóta með okkur.

Ummæli