Byrjaði í fyrrakvöld á nýja prjóninu mínu
Það sem ein kona getur vandræðast með að fitja upp og telja tæplega 200 lykkjur. Passa svo að þegar byrjað er að prjóna að flækja ekki hringinn þannig að flíkin verði snúin. Ég þurfti að telja 4x til að vera viss - skoðaði prjónin vel áður en ég óð í lykkjurnar EN samt þurfti ég að byrja upp á nýtt. Mér tókst að hafa prjónið snúið og þegar ég reyndi að laga það missti ég niður endalykkjuna og fann ekki út úr að redda mér. Svo ég rakti hringinn upp og fitjað upp aftur. Í þetta sinn tókst að hefja verkið skammlaust. Þegar ég byrja á svona verki þá er horft á eitthvað í sjónvarpinu sem maður þarf ekki að fylgjast með.
Svo í gærkvöldi gat ég horft á eina bíómynd sem ég missti af um helgina og gat þá haldið verkinu áfram. Þannig að þetta mjakast.
Svo er bara að vera dugleg að horfa á sjónvarpið næstu daga eftir að hafa verið úti í garði á daginn, hreyfa hunda og allt annað sem tilfellur fyrir utan vinnu... jú ég þarf að vinna líka - það gerist.
Ég hef það sem hvatningu að ég hlakka til að byrja á næstu peysu - hefði sennilega frestað þessari nema af því ég var búin að kaupa lopa í hana. Svo ég stefni á að vera búin eða mjög langt komin 1. ágúst. Það ætti að ganga ef ég bara held mér að verki.
Later

Ummæli