Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júní, 2012

Valkvíði

Ég veit bara alls ekki hvað ég á að kjósa á morgun. Skiptir forsetinn máli í landinu ? Dísus er með hrikalegan valkvíða. Finnst þetta fólk ekki heilla mig mikið. Reyndar ekki fylgst mikið með kosningabaráttunni og því kannski pínu lost. En fokk hvað ég er ekki sátt við neitt þeirra. Sum minna en önnur samt. Eina sem ég er eiginlega búin að ákveða við að horfa á þennan umræðuþátt með öllum frambjóðendum... hálfann þátt... er að ég er að spá í að láta gamlan draum rætast og læra táknmál :) Later

Tvennt

Bara verð... eftir langt hlé - langar ekki að gleyma þessu! BH flaug til Belgíu um daginn og svo heim frá Barcelona síðustu helgi. Í fyrsta sinn í langan tíma bað ég hann að kaupa fyrir mig sitt lítið af hverju. Sendi honum SMS með lista yfir eftirfarandi... augnskugga, tvær týpur, eitthvað sem ég man ekki (og fékk ekki) og svo nýja olíu í hárið... nýjasta nýtt á markaðnum. Ofursvalt og cool og virkar vel í hárið. Fór í klippingu um daginn og tímdi ekki að kaupa því það var heldur dýr flaskan. Bað hann sem sagt um að gá hvort hún fengist í fríhöfninni. Það er skemmst frá því að segja að ég fékk nammið sem ég bað um og einn pakka af augnskugga (fjórir litir saman, ferlega góðir litir). Ekkert af hinu var til, dæmigert :) Á mánudaginn, 25. júní, fékk ég símtal sem ekkert foreldri vill fá. Þjálfarinn hans KEB hringdi í mig. Ef Þórir hringir í mig og KEB er á æfingu... you do the math. Það boðar ekkert gott. Þannig að áður en ég fékk að heyra hvað gerðist kom hræðslusvipur á mig þar se...