Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2014

Messa á sunnudegi

Í morgun klukkan 11 vorum við hjónin mætt í Mosfellskirkju til messu. Eins og það er kósý kirkja þá er erfitt að vera þarna á þessum tíma árs á þessum tíma sólarhrings. Vanafasta ég vel mér oftast sæti á sama/svipuðum stað. Og alltaf enda ég með sólina BEINT í augun. Þá er gott að loka bara augunum og hlusta og njóta. Mér finnst það notalegt. Í miðri messu var ég að horfa í kringum mig og fylgjast með og rak þá augun í bjölluna sem fest hefur verið á vegginn vinstra megin er þú horfir inn eftir kirkjunni. Hugsaði með mér "lætin sem þetta getur skapað". "Hvenær skyldi þessi vera notuð ?" Við fengum held ég pínu hornauga frá öðrum kirkjugestum. Hvað við værum eiginlega að gera þarna? Við sátum ekki með fermingarbarn hjá okkur. Eins og ALLIR hinir sem mættir voru. Við bárum okkur mannalega og létum það ekkert á okkur fá. Velti því fyrir mér hvort ég hefði átt að standa upp og tilkynna yfir söfnuðinn að vissulega væru bæði okkar börn fermd og þannig búin að st...

cancel that cake...

Stundum þarf bara að setja hlutina í samhengi :) Later

Sunnudags

Ég ákvað að draga dóttur mína með mér á Úlfarsfellið. Ég þarf daglegan skammt af súrefni og fannst hún hafa gott að því líka eftir að hafa legið eins og skata í veikindum undanfarna viku. Hún ákvað að Diljá þyrfti á því að halda líka og dró hana með okkur. Svo ég fékk þennan fína félagsskap í fellgöngu dagsins. Það beit vel í kinnarnar í upphafi ferðar - blástur að íslenskum sið og við fegnar að vera með hlýtt um hálsinn. Ég nýtti mér flískragann minn í að rífa hann upp á kinnar, en svo vandist maður þessu hratt. Þetta var alvöru svona í febrúar. Við þurftum að hafa aðeins fyrir þessu þegar kom að snjónum. Það var sleipt og snjórinn var svo harður að okkur mátti alls ekki skrika fótur. Þá hefði getað farið illa. En við fórum létt með þetta og var létt er við komumst yfir þennan kafla. Röltum bara áfram í rólegheitum og komumst fljótt á toppinn. Það var ekkert kalt á toppnum þó sumir tali þannig - það var bara notalegt og sumir notuðu tækifærið og slöppuðu vel af áður en...

Fjögurra hunda nótt

Litla heimildamyndin okkar Siberian Express liða var sýnd í Kringlubíói í sal 1 í dag fyrir fullum sal af fólki. Það voru alls konar tilfinningar sem fylgdu þessari sýningu. Það er ágætt að það var myrkur... heimsku brosið á mér var örugglega mátulega vandræðalegt á köflum. Það var frábært að salurinn var fullur af fólki sem hafði gaman af því að horfa með okkur. Það var gott klapp á bakið að fá hrós úr öllum áttum eftir að sýningu lauk. Eina "gagnrýnin" var að fólk vildi gjarnan sjá og heyra meira :) Og hversu svalt var að heyra Egil Ólafsson lesa inn á myndina... ég skal segja ykkur það  - ÞAÐ VAR AWESOME. Og Himmi bara hættur að stíga á fjalir í leikhúsinu... það var þess vegna sem þeir hættu að sýna Mýs og menn - í alvöru. Við erum sátt við útkomuna og glöð að þessu er lokið. Nú snúum við okkur að öðrum verkefnum - t.d. baða hundana mína, það er orðið lífsnauðsynlegt. Ég dey úr einhverskonar geðvonskukasti ef ég fer ekki fá sápulykt af þeim... hendi inn link á...

Ónáttúra ?

Við erum svo skrýtin... Í alvöru ? Við hvað er fólk hrætt þegar samkynhneigt fólk segist elska fólk af sama kyni. Við erum að tala um að ELSKA. Það getur aldrei verið slæmt... er það ? Kannski einn daginn lifir fólk í heimi þar sem umburðarlyndi og viðurkenning á mannréttindum allra verði normið. Ég sé það því miður ekki í náinni framtíð. Svo velti ég því líka fyrir mér hvers vegna þjóð eins og Bandaríkin, sem eru "the greatest nation in the world" sé svona þröngsýn. Alla vega eru andskoti margir Kanar með allt of þröngan geislabaug - allt blóðflæði til heilans alveg stopp þegar kemur að ýmsum réttindum alls konar hópa. Þetta er sama þjóð og úthrópar lönd eins og Íran fyrir að loka augunum fyrir því að samkynhneigð sé yfirleitt til í landinu. Og er viss um að margir Ameríkanar... eins og fólk annars staðar í heiminum... gagnrýna nú Rússa fyrir meðferð þeirra á samkynheigðum löndum sínum. Það er algjört ógeð að sjá hvernig fólki leyfist að ráðast þar á homma og atyrð...

Svangur!

Hér er mynd sem lýsir ágætlega ástandinu í eldhúsinu mínu í gegnum árin. Hér býr ákveðinn ungur maður sem er þekktur fyrir (ekki þrumuskot) afskaplega hraustlega matarlyst. Hún hefur ekki dvínað með árunum heldur þvert á móti aukist verulega. Ósjaldan höfum við foreldrar drengsins fengið að heyra "Ég er svangur". Og það er ekkert hægt að lýsa því í orðum... þetta var/er sagt á alveg ákveðinn hátt. Tónninn skilar sér ekki hér í þessum texta. Tónninn lýsir ákveðnum trega og vonbrigðum - svangur - er sagt svona dáldið hratt en mjög ákveðið og eins og grátur gæti vel verið á næsta leyti. Þetta er jú alvarlegt mál. Það hafa komið tímabil þar sem ég hef alvarlega íhugað að fara á Austurvöll og krefjast þess að foreldrar svo lystugra barna fái úthlutað peningum í fjárlögum. Í alvöru þetta er þannig mál. Það var t.d. erfitt að koma heim úr Bláfjöllum í gær eftir 7 km skíðagöngu (smá aðstoð) og kakan, sem ég hafði hugsað um allan tímann, var búin. Mjög erfitt sko. PS: krakki...

Borða minna - hreyfa sig meira

Ég er lööngu búin að gefast upp... og reyni bara að sætta mig við þegar ég þyngist og léttist á víxl. Engu að síður þá læðist að manni svona hugsun... Það er óhjákvæmilegt í okkar samfélagi. Það á að taka allt með trukki og átaki og allir eiga að vera súper mjóir - nýjasta er að allir eiga að vera súper mjóir OG í góðu formi. Já eða við dömurnar eigum alla vega að vera súper mjóar... gaurarnir vilja hafa smá massa utan á sér. Verð reyndar að játa það hér og nú að ég vil ekki vera súper mjó - ég vil gjarnan hafa smá kjöt/vöðva á beinunum. Kannski er það vegna þess að ég verð aldrei súper ofur mjó nema þjást af næringarskorti. Og líka vegna þess að ég vil gjarnan hafa orku til að leika mér. Orku sem virðist af skornum skammti nú þegar... svo ég er ekki tilbúin að fórna meira af henni. Ég hef verið heldur léleg í líkamsræktinni síðan í nóvember. Hef lufsast út reglulega, en ekkert markvisst. Var skíthrædd um að borga fyrir það í skíðaferðinni góðu - sá fyrir mér dauðaharðsperrur o...

Stupid is what stupid does

Ég veit að ég víxla orðum og ég víxla nöfnum og ég segi orð í stað orða og kalla fólk nöfnum sem það heitir ekki og ég segi afa, þegar ég ætla að segja pabba o.s.frv. Ég veit þetta og ég veit líka af hverju ég geri þetta. Svo festist ég í að segja vitleysu líka... það er bara vegna þess að ég er pínu döh. Umferðarstofa skipti um nafn og nú tala ég alltaf um Samskiptastofu... og ég tek ekkert eftir því - fyrirtækið heitir reyndar Samgöngustofa. En ekki í mínu bókhaldi... nope, Samskiptastofa er það eina sem kemst að í hausnum á mér. Ég hef áður sagt frá því að ég er ófær um að segja annað en Mongoose úlpan mín (Canada goose) og alls konar svona sem víxlast eða festist í hausnum á mér. Börnin hans Björgvins verða börnin hans Davíðs også videre. Toppaði mig í sumar þegar ég ætlaði að athuga á youtube hvort ég gæti ekki keypt hjól undir línuskautana mína... flestir kíkja á ebay, það er bara fyrir byrjendur. Well I did it again... eyðilegg hér með fyrir BH ánægjuna af því að segja hei...

Algebra

Þessi tvö eru algjörlega mín uppáhalds... Það kemst enginn með tærnar þar sem þau hafa hælana. Litlan greip stóra bróður sinn hálfnakin (ekki óvanalegt) í teygjuæfingum og plataði hann til að hjálpa sér í stærðfræði fyrir próf sem var daginn eftir. Ekki datt henni í huga að biðja móður sína um aðstoð... sennilega var hún ekki nógu fáklædd - yup, það er sennilega málið. Later

Kids - gotta love them :)

Fékk lítinn dásemdar dreng í heimsókn í morgun. Það er svo yndislegt að vera minntur á hversu hreinskilin og skemmtileg börn geta verið. Þetta er bara svona :) AFD kom í morgun og veitti mér félagsskap í smá stund. Hann vildi endilega opna fyrir hundunum, tjáði mér að þau væru vöknuð. Ég vildi endilega klára ákveðna hluti fyrst því ég veit að þegar ég opna þá þarf ég að sinna þeim. Hleypa þeim út og svona, var ekki alveg ready í það í hvelli. Svo við kláruðum aðeins það sem lá fyrir áður en hægt var að opna fyrir þeim. Þegar ég sagði honum að nú væri kominn tími á að voffarnir fengju frelsi úr búrum stóð ég inni á gangi og hann var snöggur að forstofunni. Stóð við hurðina tilbúinn að opna. Ég sagði honum að opna og vera ekki smeykur því þau voru lokuð í búrum. Hann opnaði hurðina og gekk inn til þeirra. Kom eiginlega strax fram í hol aftur og sagði: "ojj það er vond lykt hérna" Það er stundum (mismikil) svona sveitt hundalykt eftir nóttina inni hjá þeim. Svo ég segi...

Ammælis

Ein sú allra klárasta og duglegasta, og að sjálfsögðu fallegasta, stúlka sem ég þekki á afmæli í dag. Drottningin er 15 ára - getur allt, kann allt og telur sig mega allt líka. Svona hefur það alltaf verið, við höfum ekki þurft að kenna henni nokkurn skapaðan hlut því hún er bara meðidda. Kom syngjandi sæl í heiminn, svona þegar búið var að vefja naflastrengnum þessa tvo hringi af hálsi hennar, og hefur dansað sig í gegnum árin hingað til. Ég er svo heppin að fá að vera mamman hennar og fá að njóta þess að ferðast með henni bæði innanlands og utan... já og búa með henni þess á milli... það reyndar getur alveg tekið aðeins á taugarnar... hjá okkur báðum. Við erum ekki alltaf aaalveg sammála um hvar "draslið" á að vera geymt eða hvort þessi kjóllinn eða hinn henti betur. Smáatriði sem við reynum að vinna úr í sameiningu mæðgurnar. Okkur kemur ljómandi vel saman... sérstaklega þegar hún sefur... en líka þegar hún vakir :) Hún er einn skemmtilegasti og besti ferðafél...