Hér er mynd sem lýsir ágætlega ástandinu í eldhúsinu mínu í gegnum árin. Hér býr ákveðinn ungur maður sem er þekktur fyrir (ekki þrumuskot) afskaplega hraustlega matarlyst. Hún hefur ekki dvínað með árunum heldur þvert á móti aukist verulega.
Ósjaldan höfum við foreldrar drengsins fengið að heyra "Ég er svangur". Og það er ekkert hægt að lýsa því í orðum... þetta var/er sagt á alveg ákveðinn hátt. Tónninn skilar sér ekki hér í þessum texta. Tónninn lýsir ákveðnum trega og vonbrigðum - svangur - er sagt svona dáldið hratt en mjög ákveðið og eins og grátur gæti vel verið á næsta leyti. Þetta er jú alvarlegt mál.
Það hafa komið tímabil þar sem ég hef alvarlega íhugað að fara á Austurvöll og krefjast þess að foreldrar svo lystugra barna fái úthlutað peningum í fjárlögum. Í alvöru þetta er þannig mál.
Það var t.d. erfitt að koma heim úr Bláfjöllum í gær eftir 7 km skíðagöngu (smá aðstoð) og kakan, sem ég hafði hugsað um allan tímann, var búin. Mjög erfitt sko.
PS: krakkinn fær að sitja til borðs með okkur... hann fær ekki mat í dall á gólfinu!
Later

Ummæli