Fara í aðalinnihald

Ónáttúra ?

Við erum svo skrýtin...

Í alvöru ? Við hvað er fólk hrætt þegar samkynhneigt fólk segist elska fólk af sama kyni. Við erum að tala um að ELSKA. Það getur aldrei verið slæmt... er það ?

Kannski einn daginn lifir fólk í heimi þar sem umburðarlyndi og viðurkenning á mannréttindum allra verði normið. Ég sé það því miður ekki í náinni framtíð.

Svo velti ég því líka fyrir mér hvers vegna þjóð eins og Bandaríkin, sem eru "the greatest nation in the world" sé svona þröngsýn. Alla vega eru andskoti margir Kanar með allt of þröngan geislabaug - allt blóðflæði til heilans alveg stopp þegar kemur að ýmsum réttindum alls konar hópa.

Þetta er sama þjóð og úthrópar lönd eins og Íran fyrir að loka augunum fyrir því að samkynhneigð sé yfirleitt til í landinu. Og er viss um að margir Ameríkanar... eins og fólk annars staðar í heiminum... gagnrýna nú Rússa fyrir meðferð þeirra á samkynheigðum löndum sínum. Það er algjört ógeð að sjá hvernig fólki leyfist að ráðast þar á homma og atyrða þá og misþyrma án þess að nokkrum viðurlögum sé beitt.

En svona mismunun, eins og hér er talað um, er ekki skárri. Hún er öðruvísi en alveg jafnslæm. Íþróttafólk sem er samkynhneigt, er alveg jafn mikið  íþróttafólk og það íþróttafólk sem er gagnkynhneigt. Og allt tal um búningsherbergin er fáránlegt. Í alvöru, hommar og lesbíur hafa verið í sama búningsherbergi og gagnkynhneigt fólk síðan í barnaskóla. Hefur það verið vandamál ? Nei það er ekki vandamál. Því þetta er allt fólk af sama kyni hvort sem er. Það er alla vega ekki meira vandamál heldur en þegar gaurar mæla kvenfólk (fullklætt) út á veitingastað eða úti á götu... eða öfugt.

Það er alveg rannsóknarefni hvers vegna mörgum karlmönnum (yfirleitt eru það karlmenn) finnst svona erfið tilhugsun að kannski lítist öðrum karlmanni vel á það sem hann sér. Held að konur eigi auðveldara með þetta - við erum duglegri við að hrósa hver annarri fyrir að vera fínar og sætar.

Halda karlmenn að ef öðrum karlmanni líst vel á hann... að hann sé þá sjálfur kvenlegur ? Og það er auðvitað það versta sem getur hent nokkurn mann. Shit maður, að vera kvenlegur - yikes hvað það væri vandræðalegt. Í raun mættu margir karlmenn vera "kvenlegri" því mestu töffararnir sem ég þekki eru margir kvenkyns og mjög eftirsóknarvert að líkjast þessum konum.

Nú þekki ég þó nokkra samkynhneigða karlmenn. Bæði persónulega og svo kunningja. Þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir. Sumir afskaplega sterýótýpískir... aðrir svo "karlmannlegir" að það er ekki nokkur leið að spotta þá úr sem karlmann sem elskar aðra karlmenn. Þetta er allt bara venjulegt fólk að gera venjulega hluti. Vera til og reyna að lifa lífinu eins og allir aðrir.

Ég vil koma því sérstaklega að, því margir virðast telja þetta staðreynd, að samkynhneigt fólk er ekki að reyna við allt og alla í kringum sig af sama kyni. Við gagnkynhneigða fólkið erum bara ekki svona spennandi að samkynhneigt fólk ráði bara ekki við sig. Hvort sem það er í búningsherberginu eða Krónunni.

Það er ósanngjarnt af mér að draga Bandaríkjamenn sérstaklega fram hér að ofan, því við vitum alveg að hér á Íslandi þrífast alls konar fordómar í garð minnihlutahópa. Hvað er hægt að gera til að útrýma svona ?

Hvað á maður að gera til að koma t.d. "trúræknum" einstaklingum í skilning um að biblían sé ekki tækið til að nota í hatursáróðri gegn fólki. Veit ekki betur en að sú ágæta bók boði mannkærleika ofar öllu... eða er ég alveg far off ? Alltaf hægt að draga út einhver vers og halda þeim á lofti eins og einhverjum algildum sannleik um ágæti eða djöfulgang þeirrar bókar. En ég minni fólk á að biblían er skrifuð af FÓLKI.

Ok - töluvert lengra en ég ætlaði - loka þessu með ... leyfum fólki að elska þá sem það vill. Ástin hlýtur alltaf að vera jákvæð tilfinning - vonum bara að allir fái smá ást í líf sitt og minna af biturð og hatri.

Love you ;)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...