Ég ákvað að draga dóttur mína með mér á Úlfarsfellið. Ég þarf daglegan skammt af súrefni og fannst hún hafa gott að því líka eftir að hafa legið eins og skata í veikindum undanfarna viku.
Hún ákvað að Diljá þyrfti á því að halda líka og dró hana með okkur. Svo ég fékk þennan fína félagsskap í fellgöngu dagsins.
Það beit vel í kinnarnar í upphafi ferðar - blástur að íslenskum sið og við fegnar að vera með hlýtt um hálsinn. Ég nýtti mér flískragann minn í að rífa hann upp á kinnar, en svo vandist maður þessu hratt.
Þetta var alvöru svona í febrúar. Við þurftum að hafa aðeins fyrir þessu þegar kom að snjónum. Það var sleipt og snjórinn var svo harður að okkur mátti alls ekki skrika fótur. Þá hefði getað farið illa.
En við fórum létt með þetta og var létt er við komumst yfir þennan kafla. Röltum bara áfram í rólegheitum og komumst fljótt á toppinn.
Það var ekkert kalt á toppnum þó sumir tali þannig - það var bara notalegt og sumir notuðu tækifærið og slöppuðu vel af áður en við héldum niður aftur. Einn toppur af þremur var látinn duga í þetta sinn :)
Later

Ummæli