Ég veit að ég víxla orðum og ég víxla nöfnum og ég segi orð í stað orða og kalla fólk nöfnum sem það heitir ekki og ég segi afa, þegar ég ætla að segja pabba o.s.frv. Ég veit þetta og ég veit líka af hverju ég geri þetta.
Svo festist ég í að segja vitleysu líka... það er bara vegna þess að ég er pínu döh. Umferðarstofa skipti um nafn og nú tala ég alltaf um Samskiptastofu... og ég tek ekkert eftir því - fyrirtækið heitir reyndar Samgöngustofa. En ekki í mínu bókhaldi... nope, Samskiptastofa er það eina sem kemst að í hausnum á mér.
Ég hef áður sagt frá því að ég er ófær um að segja annað en Mongoose úlpan mín (Canada goose) og alls konar svona sem víxlast eða festist í hausnum á mér. Börnin hans Björgvins verða börnin hans Davíðs også videre. Toppaði mig í sumar þegar ég ætlaði að athuga á youtube hvort ég gæti ekki keypt hjól undir línuskautana mína... flestir kíkja á ebay, það er bara fyrir byrjendur.
Well I did it again... eyðilegg hér með fyrir BH ánægjuna af því að segja heiminum frá his stupid wife.
Ég get ekki horft á video af mbl og slíkum fjölmiðlum í safari vafranum á ipad-inum mínum. Svo BH setti Mozilla inn fyrir mig og nú get ég aulast þangað ef ég er í spreng að horfa á eitthvað áhugavert... eða ekki svo áhugavert... myndband á vefmiðlunum.
Sat við eldhúsborðið og smellti á vídjó og ekkert gerðist... nennti ekki að spá í það (var sennilega ekki áhugavert). Hann spyr... virkaði þetta ekki ? Og ég svaraði... niii þarf að skipta yfir í MOZARELLA vafrann og ég nenni því ekki.
Hann átti svo bágt en þar sem hann er skíthræddur við mig (as he should be) þá sagði hann bara... ef þú værir ekki svona viðkvæm og teldir að ég væri að gera grín að þér þá myndi ég hringja í DH núna því þetta er ÓGEÐSLEGA FYNDIÐ.
Iss hringdu bara í DH - mér er nokk sama - þeim finnst ég báðum svo dumb að það getur ekki versnað.
Héðan í frá kaupi ég bara Mozilla ost - hann verður ekki kallaður annað.
Svo ítreka ég bara... ef ég nota skrýtin orð í stað þeirra sem kannski hefðu passað betur inn í setningu eða sögu... go with it, fylltu í eyðurnar... ég er að meina það sem þú heldur en ekki það sem ég sagði. Og ef þú heitir Sigríður og ég kalla þig Ingibjörg... þá máttu vita að ég veit alveg hvað þú heitir... og ég heyri mig sjálf segja Sigríður... bear with me - I ain´t stupid - svona er þetta bara og erfitt að breyta.
Later

Ummæli