Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2009

Hressandi

Eftir að hafa aðeins þrifið hérna hjá okkur í morgun fórum við til Viktors og Sisku. Sólveig er á Akureyri og því ekki heima. Fórum í góðan göngutúr á Helgafellið með Úlf lausan en Ronju mína í taum. Tek enga sénsa með þetta lóðarí þrátt fyrir að komnar séu þrjár vikur. Þetta er að klárast og næstu helgi fær hún að hlaupa frjáls. Gengum í tvo klukkutíma, nokkuð góð bara. KEB kom með okkur en KBB hafði ákveðið að skella sér í sund. Úlfur er duglegur að koma þegar kallað er á hann og hann fer aldrei langt frá okkur. Nema þá bara til að elta Sisku sem tók hann í bakaríið nokkrum sinnum, svo hann gleymdi ekki hver væri eldri og réði þarna úti í móa. Það var svo gott veður að við vorum að kafna úr hita. Þrátt fyrir að hafa minnkað aðeins fötin miðað við 10 stiga frostið sem búið er að vera hérna, þá vorum við samt of mikið klædd. Flíspeysa yfir bol var meira en nóg því það hreyfði ekki vind og sólin skein skært. Yndislegt veður og frábært útsýni - gæti ekki verið betra - jú og svo fallegstu...

Sorry

Hef ekki tíma til að blogga - er að ryksuga hárin eftir hundana! Crying outloud það fellur af þeim núna. Og þau þrjú sem lofuðu og lofuðu að ryksuga daglega ef þau fengju hund/Husky... ja þau láta bara ekki sjá sig! iRoomban bilaði, réttara sagt framdi sjálfsmorð. Enginn veit hvers vegna - sennilegast er að henni hafi þótt jafn leiðinlegt og mér að ryksuga. En við fengum nýja í stað þeirrar sem gaf upp öndina. Hef ekki sett hana í gang hins vegar því gamla sófasettið fór ekki fyrr en í gær og allt búið að vera í drasli hérna. Þannig að nú þegar settið er farið og smá rými hér til að anda aftur þá verður hún sett í fulla vinnu frá og með deginum í dag. Er bara að taka það mesta hérna svo greyið fái ekki sjokk og fyrirfari sér líka eins og fyrirrennari hennar! Later

Loksins

Vorið 1994 fórum við hjónin (þá skötuhjú) að leita okkur að sófasetti í fyrsta sinn. Höfðum fengið leigða íbúð í Álftamýrinni og vantaði að fylla upp í stofuna. Þetta var ekki mjög skemmtilegt. Við áttum engan pening að ráði og því kannski ekki um margt að velja. Sófasett voru flest rándýr - nógu dýr til að okkur flökraði. M.a.s. Ikea var ekki nógu lágt verðsett fyrir okkur. Man að stakir sófar kostuðu um hundraðþúsund kallinn. Og okkur vantaði meira en einn sófa. Við leituðum og leituðum - alls staðar. En fundum ekkert við okkar hæfi (nógu ódýrt). Fórum m.a. í HP húsgögn á Grensásvegi, ekki alveg okkar price range en við vissum það ekki fyrr en inn var komið. Á móti okkur kom eldri kona - það sást langar leiðir að hún sá í hvelli að við höfðum villst. Ættum ekkert erindi þarna inn. Við sögðumst vera að leita að sófasetti. Það er ekki hægt að gleyma meðaumkuninni í málrómnum þegar hún endurtók "vaaaantar ykkur sófasett" - hún vorkenndi okkur heilósköp því það sást á okkur að ...

Réttarkerfi?

Ég velti því fyrir mér hvernig getur staðið á því að maður sem misnotar smábarn í tvö ár er dæmdur í tveggja ára fangelsi en gaur sem stingur mann í bakið fær fimm ár í fangelsi. Ætti ekki að vera pínu samræmi þarna. Allt í lagi að fikta aðeins í barninu, hún gleymir þessu og það sér ekkert á henni. En maðurinn sem var stunginn er að öllum líkindum með ör sem aldrei hverfa. Já - ætli það sé ekki bara málið. Það er alveg merkilegt hvað þolendur kynferðisbrota eiga lítinn skilning innan "réttarkerfisins". Ég gleymi aldrei konunni sem var haldið fanginni í sumarbústað fyrir nokkrum árum. Ef ég man rétt þá var það heil helgi af helvíti fyrir konugreyið í klóm fyrrverandi kærasta. Kannski ekki rétt munað í smáatriðum, en það sem ég man er að hann gekk svo í skrokk á henni og misnotaði ítrekað þennan tíma. M.a. notaði ostaskera á lærin á henni - hugmyndaflugið! Gaurinn fékk svo lítinn dóm að það varð allt brjálað - því miður virðist þetta ekki hafa skánað mikið. Ef maður ætlar að b...

Hundlöt

Búin að vera hundlöt undanfarið - orðin þreytt á því - hversu latur getur maður verið ? Fór með Úlf í sprautu í síðustu viku. Hann stóð sig auðvitað eins og hetja. KEB kom með mér og við tókum Ronju með. Ætluðum að skilja hana samt eftir úti í bíl Hún er ekki vön öðru en að þau séu bæði tekin út úr bílnum. Fannst við eitthvað lengi að græja Úlf, nennti ekki að bíða og náði að stökkva framhjá okkur út úr skottinu. Stundum væri gott að hafa búr! Tíkin á lóðaríi og stokkin - kræst - ekki skemmtilegt. KEB rauk á eftir henni og sem betur fer var hurðin að dýralæknastöðinni virkilega spennandi og gott að þefa þar. Þannig að hún var límd við hurðina að þefa þar í kring og KEB átti ekki í neinum vandræðum með að grípa hana og skottast með hana inn í bíl aftur. Úlfurinn ekki eins brattur einn án Ronju sinnar og ákvað að vera var um sig - veður ekki að neinum nema kynnast pínu fyrst. Var alsæll með harðfiskinn sem læknirinn mokaði í hann svo hann væri upptekinn. Ég notaði tækifærið og spurði læ...

I´m a Rockstar

Þó skömm sé frá að segja þá keyri ég um á óskoðuðum bíl - ætla að láta hjá líða að segja hversu langt er síðan átti að skoða tíkina. Hef aldrei nokkrun tímann áður verið á óskoðuðum bíl. Er þakklát fyrir að vera loks komin með nýjar rúðuþurrkur og get hætt að keyra um eftir minni - ég get séð út um framrúðuna núna, sama hvernig viðrar. Mér finnst ég keyra um á hálfgerðri druslu, óskoðaður því líknarbelgurinn (loftpúðinn) hefur aftengst, stefnuljósið var í fríi allan des og hálfan jan, kom reyndar aftur í vinnu núna í kuldanum. Ekki spyrja mig hvernig þetta virkar! Bíllinn er iðulega drulluskítugur og ákaflega sjoppulegur að sjá hjá mér. Og nú þegar sem kaldast hefur verið fór farþega hurðin frammí í frí - svona um svipað leyti og stefnuljósið kom úr fríi. Bílapartarnir skipta þessu fríi eitthvað á milli sín greinilega, án þess þó að tala við mig fyrst. KBB hefur tvisvar sinnum þurft að klöngrast úr farþegasætinu yfir í bílstjórasætið til að komast út úr bílnum. Og trúið mér það er ekki...

Kjósum hana næst :o)

Þetta finnst mér bara snilld Las þessa frétt fyrir BH hérna áðan sem kom heim í hádeginu og skemmti mér heilósköp á meðan. Bara fyndið. Ekki viss um að okkar ágæta forsetafrú sé í miklum tengslum við líf venjulegs fólks. Veit ekki betur en að fólk sé nú þegar farið að missa bæði húseignir sínar og bíla og fleira verðmætt í hendur lánadrottna. Verð samt að vera sammála henni um að sennilega væri betra að leyfa fólki að vera í húsum sínum, því það er ekkert hlaupið að því að selja þau. Ferlegt að heyra fréttir af eignum sem seljast á spottprís og alls ekki upp í skuldir. Þeir sem kaupa eiga pening og geta grætt á eymd annarra. Sannast enn og aftur að þeir ríkari verða ríkari og nærast á þeim sem minna mega sín í lífsbaráttunni - svei! Later

Hvolpur - ekki hvolpur

Síðan um miðjan desember höfum við velt fyrir okkur hvenær tíkin fari að lóða hérna. Þruma systir hennar byrjaði þá og við héldum eðlilega að Ronja myndi vera á svipuðum tíma. En það er nú eitthvað annað - eitthvað seinni til. Á gamlárskvöld fórum við með hana yfir til Hörpu og Gumma. Breki sem venjulega nennir henni mátulega, hékk í rassinum á henni svo við héldum að nú væri þetta að byrja - hlýtur að vera. En nei ekkert gerðist. Fór í hesthúsin með hundana í síðustu viku - þar hékk Týri í rassinum á henni, límdur við hana. Og hann virkilega leggur fæð á tíkina sem neitar að surrender þegar hann þessi virðulegir hundur mætir á svæðið. Þannig að nú hlýtur hún að fara að byrja. Fórum til Tinnu í fyrradag og hittum það Indý og svo kom Rannveig með Apríl. Það var fjör og mesta furða hvað hundarnir voru spakir. Engin leiðindi og ekkert urr - mesta lagi í Úlfi sem aðeins lætur heyra í sér til að reyna að hræða þessar stóru tíkur. það er ekkert að virka sérstaklega vel hjá honum samt. Apríl ...

Piparúðasöngurinn

Þegar piparúðinn notast, lítill löggumaður tekur, fyrst af öllu brúsa úr belti, og svo æpa allir: GAS Dælir úða yfir liðið, undan honum getur sviðið, Svona læra menn að vera ei með þetta fjárans þras. Þegar öllu þessu er lokið sent er eftir sjúkrabílnum. Svo er sprautað vatni í augun, það er regla fín og forn. Einn er alltaf fyrir gasi, aldrei hættir þessu þrasi. Hann er mikið heppinn maður því að mamma hans er norn.

GAS GAS...

Piparúðasöngurinn: Þegar piparúðinn notast lítill löggumaður tekur: Fyrst af öllu piparúðann og hann ýtir fast á staut. Þá má heyra ýmsa æpa, aðrir hvítna eins og næpa. Sumir nudda æstir augun, æða grátandi á braut. Þegar öllu þessu er lokið lítill löggumaður segir: Þetta er ansi góður úði, allt er hyskið farið brott. Inni í klefa á ég bjána, einn með gulan bónusfána Og með svona piparúða gengur police-vinnan flott.

Gullin mín

Smá væmin - gott að hefja daginn á því stundum :o) Krakkarnir fengu einkunnir í gær fyrir haustönnina. Stóðu sig bæði með mikilli prýði þannig að mamman og pabbinn eru mjög montin af flottum krökkum - svona eins og venjulega. Fengu bæði fína umsögn frá öllum kennurum og fínar einkunnir. Ekki leiðinlegt að fá svona vitnisburð um börnin sín. Vona bara að þau haldi áfram á þessari braut bæði tvö. Svo eru foreldraviðtöl á morgun - það verður örugglega bara svona eins og venjulega, geri ráð fyrir því alla vega! Later

10 ára

KBB á afmæli í dag, 10 ára skvísa. Héldum afmæli fyrir krakkana í bekknum á laugardaginn var - það gekk ágætlega. Verð reyndar að viðurkenna óþol mitt gagnvart börnum sem alveg gleymdist að kenna mannasiði. Hvað eru foreldrar að spá sem leyfa börnum sínum að vaða uppi og vera með eilífðarleiðindi? Sum börn þurfa góðan skell á rassinn. Og þó ég sé mjög passasöm uppá að skilja ekki útundan þá verður gerð undantekning á næsta ári. Ef KBB heldur aftur uppá afmælið sitt að ári fyrir stelpurnar í bekknum þá ætla ég ekki að pressa á hana að bjóða einni bekkjarsystur sinni, þrátt fyrir að hún verði sennilega sú eina sem útundan verður. Og ef það verða leiðindi vegna þess - sem ég efast um - þá gæti mér ekki verið meira sama. Og ef foreldrar spyrja hvurslags eiginlega? Sem ég efast um líka - þá á ég svar handa þeim :o) Afmælisveisla fyrir fjölskylduna var áðan - fólkið kom um fimmleytið, allir farnir rúmlega átta. Merkilegt nokk þá gátu allir hegðað sér í þessu partýi, enginn sem ég þurfti að s...

Esja

Mættum við Esjurætur rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Og ef einhver er að velta fyrir sér hvernig standi á því að við vorum mætt fyrir ellefu og tímanlega þá er einföld skýring á því. Ég er svo döh að ég var ekki að átta mig á því hversu fljót við værum að keyra þetta. Þrátt fyrir að hafa keyrt þetta milljón sinnum, þá stoppa ég aldrei þarna, bara bruna framhjá. Þannig að ég rak alla af stað með harðri hendi korter í ellefu og taldi víst að við værum sein. KEB ákvað að vera heima og passa Úlfinn - Anton gisti hjá honum í nótt og þeim frændum þótti ekkert voðalega leiðinlegt að fá bara frið tveir hérna heima. Þannig að við fórum hjónin og tókum KBB með okkur. Hún var spennt að ganga Esjuna á toppinn. Alveg þangað til við vorum komin fimm mínútur upp. Þá var hún þyrst - var með gos og lét hana hafa. Ætla að muna næst að hafa með mér vatn, hún er alltaf þyrst í fjórða skrefi! Við vorum þarna þrjú með Ronju svo komu Siggi með Blanco og Linda með Akkiles og Nölu. Hún kom með þau bæði því...

Voffavinir

Ronja fagnar flestum sem koma hér í heimsókn, alltaf gaman að fá nýtt fólk til að ráðskast með. Þær eru tvær bestu vinkonur hennar samt og hún ráðskast ekki mikið með þær. Þær halda það alla vega! Þegar HMS og SBK koma í heimsókn þá er hlaupið að þeim og þeim fagnað innilega. Gleymi því ekki þegar Ronja var orðin of stór undir sófann en tróð sér þangað samt reglulega. Komst eiginlega ekki sjálf undan honum aftur, en alltaf skyldi hún mjaka sér aftur undir hann. Við þurftum nokkrum sinnum að lyfta sófanum til að hjálpa greyinu. SBK kom í mat til okkar einn daginn í nóv/des og Ronja undir sófanum. Þegar SBK kom inn í þvottahús og heilsaði þá heyrðist innan úr stofu - dynk, dump, dynk, dump dump - brjáluð læti undir sófanum sem sagt. Ronja var að flýta sér heil ósköp en var föst undir. Hún frekjaði sjálfa sig lausa með látum og réðst að SBK og fagnaði henni innilega. Við á heimilinu erum bara fullviss að góða (vonda) hestalyktin sé það sem trekkir hundinn að henni ;o) Lítum alveg framhjá ...