Eftir að hafa aðeins þrifið hérna hjá okkur í morgun fórum við til Viktors og Sisku. Sólveig er á Akureyri og því ekki heima. Fórum í góðan göngutúr á Helgafellið með Úlf lausan en Ronju mína í taum. Tek enga sénsa með þetta lóðarí þrátt fyrir að komnar séu þrjár vikur. Þetta er að klárast og næstu helgi fær hún að hlaupa frjáls.
Gengum í tvo klukkutíma, nokkuð góð bara. KEB kom með okkur en KBB hafði ákveðið að skella sér í sund. Úlfur er duglegur að koma þegar kallað er á hann og hann fer aldrei langt frá okkur. Nema þá bara til að elta Sisku sem tók hann í bakaríið nokkrum sinnum, svo hann gleymdi ekki hver væri eldri og réði þarna úti í móa.
Það var svo gott veður að við vorum að kafna úr hita. Þrátt fyrir að hafa minnkað aðeins fötin miðað við 10 stiga frostið sem búið er að vera hérna, þá vorum við samt of mikið klædd. Flíspeysa yfir bol var meira en nóg því það hreyfði ekki vind og sólin skein skært. Yndislegt veður og frábært útsýni - gæti ekki verið betra - jú og svo fallegstu voffarnir skoppandi um allt.
Later

Ummæli