Fara í aðalinnihald

Hundlöt

Búin að vera hundlöt undanfarið - orðin þreytt á því - hversu latur getur maður verið ?

Fór með Úlf í sprautu í síðustu viku. Hann stóð sig auðvitað eins og hetja. KEB kom með mér og við tókum Ronju með. Ætluðum að skilja hana samt eftir úti í bíl Hún er ekki vön öðru en að þau séu bæði tekin út úr bílnum. Fannst við eitthvað lengi að græja Úlf, nennti ekki að bíða og náði að stökkva framhjá okkur út úr skottinu. Stundum væri gott að hafa búr!

Tíkin á lóðaríi og stokkin - kræst - ekki skemmtilegt. KEB rauk á eftir henni og sem betur fer var hurðin að dýralæknastöðinni virkilega spennandi og gott að þefa þar. Þannig að hún var límd við hurðina að þefa þar í kring og KEB átti ekki í neinum vandræðum með að grípa hana og skottast með hana inn í bíl aftur.

Úlfurinn ekki eins brattur einn án Ronju sinnar og ákvað að vera var um sig - veður ekki að neinum nema kynnast pínu fyrst. Var alsæll með harðfiskinn sem læknirinn mokaði í hann svo hann væri upptekinn. Ég notaði tækifærið og spurði lækninn um lóðarí og aðgerðir til að taka hunda og tíkur úr sambandi - kosti og galla. Allt mjög fræðandi. Við BH erum búin að ákveða að taka Ronju úr sambandi - ætlum aðeins að sjá til með Úlf. Nenni ekki þessu lóðarí veseni þar sem við höfum ekki hug á að láta hana gjóta hvolpum einn daginn. Það er dálítill sóðaskapur af þessu og leiðinlegt að geta ekki verið á fullu í togmálum með öðrum á meðan þetta tímabil gengur yfir.

Erum búin líka að fá heimsókn frá einum stórum brúnum og svörtum hundi. Já já, hann er svona að kíkja á tíkina og sjá hvort hún sé álitleg og til í tuskið. BH rak hann með harðri hendi úr garðinum þegar hann kom fyrst. Þetta horfði ég á út um eldhúsgluggann og hló heilósköp. Þegar hann kom inn þá vildi ég að sjálfsögðu vita hvort vonbiðlar dótturinnar á heimilinu fengju sömu meðferð. OF COURSE var svarið sem ég fékk :o)

Ma og pa og SBK fóru á skíði á laugardaginn var - það þýðir að ég þarf að taka að mér að sjá um KBB þegar hún fer á æfingar vegna sýningarinnar Æskan og hesturinn. Við fórum mæðgurnar síðasta laugardag og það gekk ágætlega. KBB fór á baki frá hesthúsinu að reiðhöllinni og missti hestinn aðeins einu sinni. Hann er dálítil frekja en það er knapinn líka svo hún náði stjórn fljótlega aftur. Sem betur fer þá rauk hann ekkert með hana, bara svona aðeins að vera erfiður.

Krakkarnir stóðu sig ljómandi ágætlega á æfingunni og var hrósað fyrir að standa sig betur en eldri krakkarnir sem voru í tímanum á undan. þetta er allt að koma hjá þeim, þau eru öll vel ríðandi (orð kennarans) og kunna atriðið vel, nú þarf bara að fínpússa þetta. þau þurfa að vanda sig að halda jöfnu bili og vera betur saman tvö og tvö. Í lok tímans voru þau aðeins að spjalla og þá þurfa hestarnir að hafa þolinmæði og standa kyrrir. Það getur Strákur (hesturinn heitir Strákur) ekki. Hann er mjög óþolinmóður og vill helst ekki vera kyrr. Þannig að KBB mátti gjöra svo vel að hafa sig alla við að hafa hemil á kvikindinu. það gekk svona og svona, þau voru svona á röltinu út um alla höll. Það sást vel að hann var orðinn pirraður og því stakk ég upp á að við myndum teyma hann heim í hús. Nennti ekki að hann myndi rjúka með hana þarna yfir götuna í myrkrinu og svo var biluð hálka. Daman sættist á það enda hesturinn farinn að trampa aðeins og hoppa dálítið. Þannig að við teymdum hann í hús.

Vorum heppnar því Gísli var enn þarna og hjálpaði okkur að taka af hestinum og ganga frá. Svo ætlaði hann að taka hestinn inn úr gerði áður en hann færi. Við mæðgur vorum fegnar því við vorum svangar og á leiðinni til DH og HMS í smá matarboð. DH eldaði, með ogguponsupínu aðstoð frá HMS. Fyrirmyndin var Jack Daniels kjúklingur frá Friday´s. Ó MÆ GOD þetta var to die for - hrikalega góður matur. það voru allir að springa eftir matinn - nema ég ehe já sko ég var svo svöng fyrir, át alveg jafnmikið og hinir samt. Á undan var forréttur, blómkálssúpa, svo eftirréttur - ostakaka - og svo eftireftirréttur, konfekt og læti. YIKES þetta var svo gott. Við sátum afvelta við borðið þar til eftir miðnætti, á afréðum við hjónin að reyna að standa upp og hypja okkur heim!

Fermingarundirbúningur er aðeins hafinn - fór með KBB í gær að skoða í Blómaval og Garðheimum. Eyddi svo kvöldinu í að skipuleggja mig aðeins á blaði - svona til að gleyma helst engu. Nú þarf ég bara að draga drenginn með mér til að við getum ákveðið eitthvað og byrjað bara græja þetta. Ekki eftir neinu að bíða - einn og hálfur mánuður í fermingu!

Á víst að vera að vinna - best að halda því bara áfram núna...

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Bara er ekki að ná þessu. Drengurinn að fara að fermast. úff. Kv Helga
Lóa Björk sagði…
ha ha ha - feel old sweetie :o)
Sko mér finnst ég aldrei gömul - nema þegar hann segir mér það og hreinlega stafar það ofan í mig!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...