Þetta finnst mér bara snilld Las þessa frétt fyrir BH hérna áðan sem kom heim í hádeginu og skemmti mér heilósköp á meðan. Bara fyndið. Ekki viss um að okkar ágæta forsetafrú sé í miklum tengslum við líf venjulegs fólks. Veit ekki betur en að fólk sé nú þegar farið að missa bæði húseignir sínar og bíla og fleira verðmætt í hendur lánadrottna. Verð samt að vera sammála henni um að sennilega væri betra að leyfa fólki að vera í húsum sínum, því það er ekkert hlaupið að því að selja þau.
Ferlegt að heyra fréttir af eignum sem seljast á spottprís og alls ekki upp í skuldir. Þeir sem kaupa eiga pening og geta grætt á eymd annarra. Sannast enn og aftur að þeir ríkari verða ríkari og nærast á þeim sem minna mega sín í lífsbaráttunni - svei!
Later

Ummæli