Fara í aðalinnihald

10 ára

KBB á afmæli í dag, 10 ára skvísa. Héldum afmæli fyrir krakkana í bekknum á laugardaginn var - það gekk ágætlega. Verð reyndar að viðurkenna óþol mitt gagnvart börnum sem alveg gleymdist að kenna mannasiði. Hvað eru foreldrar að spá sem leyfa börnum sínum að vaða uppi og vera með eilífðarleiðindi? Sum börn þurfa góðan skell á rassinn. Og þó ég sé mjög passasöm uppá að skilja ekki útundan þá verður gerð undantekning á næsta ári. Ef KBB heldur aftur uppá afmælið sitt að ári fyrir stelpurnar í bekknum þá ætla ég ekki að pressa á hana að bjóða einni bekkjarsystur sinni, þrátt fyrir að hún verði sennilega sú eina sem útundan verður. Og ef það verða leiðindi vegna þess - sem ég efast um - þá gæti mér ekki verið meira sama. Og ef foreldrar spyrja hvurslags eiginlega? Sem ég efast um líka - þá á ég svar handa þeim :o)

Afmælisveisla fyrir fjölskylduna var áðan - fólkið kom um fimmleytið, allir farnir rúmlega átta. Merkilegt nokk þá gátu allir hegðað sér í þessu partýi, enginn sem ég þurfti að skamma og bjóða far heim í hvelli :o) Gaf þeim kvöldmat - rosa góðan mexíkókjúkling, nammi namm. Það kláraðist allt meira og minna, greinilega náði ég að reikna út hversu mikið ég þurfti núna. Alltaf leiðinlegt að eiga of mikinn afgang. Daman er ánægð með daginn, átti góðan dag í skólanum og fékk fína veislu - hvað gæti verið betra :o)

Ronja og Úlfur hegðuðu sér vel - aðeins að taka á móti fólkinu þegar það kom með þefi og forvitni. Það vakti misjafna hrifningu gesta, ekki allir fyrir það að fá blautt trýnið á móti sér. En svo fór svo lítið fyrir þeim að fólk þurfti að spyrja hvar þau væru - hvort þau hefðu flúið út kannski? Úlfur hafði komið sér fyrir á bakvið sófa og svaf þar. Ronja lagðist undir stofuborð og hlustaði á slúðrið ;o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...