Vorið 1994 fórum við hjónin (þá skötuhjú) að leita okkur að sófasetti í fyrsta sinn. Höfðum fengið leigða íbúð í Álftamýrinni og vantaði að fylla upp í stofuna. Þetta var ekki mjög skemmtilegt. Við áttum engan pening að ráði og því kannski ekki um margt að velja. Sófasett voru flest rándýr - nógu dýr til að okkur flökraði. M.a.s. Ikea var ekki nógu lágt verðsett fyrir okkur. Man að stakir sófar kostuðu um hundraðþúsund kallinn. Og okkur vantaði meira en einn sófa. Við leituðum og leituðum - alls staðar. En fundum ekkert við okkar hæfi (nógu ódýrt).
Fórum m.a. í HP húsgögn á Grensásvegi, ekki alveg okkar price range en við vissum það ekki fyrr en inn var komið. Á móti okkur kom eldri kona - það sást langar leiðir að hún sá í hvelli að við höfðum villst. Ættum ekkert erindi þarna inn. Við sögðumst vera að leita að sófasetti. Það er ekki hægt að gleyma meðaumkuninni í málrómnum þegar hún endurtók "vaaaantar ykkur sófasett" - hún vorkenndi okkur heilósköp því það sást á okkur að við vorum ekki týpurnar til að kaupa sófasett fyrir fleiri hundruð þúsund. Það sem konan reiknaði ekki með greinilega að við myndum hugsanlega verða eldri og betur stæð. Hún stuðlaði ekki alveg að því að við myndum leita til þeirra seinna, þegar við kannski myndum velja aðeins dýrara sett. Og nei - við fórum ekki þangað að athuga hvort þeir ættu eitthvað til - það bara hvarflaði ekki að okkur. Satt að segja mundi ég ekki einu sinni eftir búðinni fyrr en ég var búin að bera inn nýtt sett hérna í dag. Kannski er búðin ekki einu sinni þarna lengur - held það nú samt.
Okkar leit endaði í Húsgagnahöllinni þetta haust. Við fundum stórfínt sófasett sem við vorum alsæl með og það besta var að það var það ódýrasta sem við höfðum séð á ferð okkar í þessar húsgagnaverslanir. 116 þúsund krónur, sófi og tveir stakir stólar. Svipað mikið og einn sófi í Ikea! Við hugsuðum sem svo að það mætti þá bara henda því eftir fimm ár. Við ættum þá vonandi meiri pening og gætum keypt almennilegt sett ef þetta myndi ekki duga lengur.
Bláa sófasettið okkar var svo flutt með okkur úr Álftamýrinni í Ferjuvoginn og svo aftur í Leirutangan. Og það er ekki fyrr en nú, 15 árum seinna, sem það fær loks að fjúka. Það er orðið slitið - samt sér fáránlega lítið á því miðað við hvað við bjuggumst við. Fólk spyr hvort ekki sé í fína lagi með það - sér ekki að áklæðið er að slitna í gegn á álagspunktum. Einn gormur spratt niður úr því fyrir um þremur árum. BH boraði hann bara upp aftur. En hann spratt aftur niður síðasta vor og hefur fengið að hanga bara - því við erum alltaf á leiðinni að fá nýtt. Svo tók Úlfurinn okkar (nagdýrið) það að sér að gera fyrsta gatið á eitt hornið. Ég var aðeins of sein að fatta hvað hann var að gera.
Ætlaði að kaupa sófasett í byrjun síðasta árs en þá klikkaði þvottavélin svo það var látið ganga fyrir. Þannig að nú vildi ég klára þetta - langar ekki að hafa gatslitna sófa í fermingunni hans KEB. Við hjónin fórum á ferðina síðustu helgi, náðum að fara í tvær búðir. Þetta er ekki það skemmtilegasta sem við gerum. Erum oft skrautlega ósammála og endum frekar fúl svona leiðangra. Náðum að hemja okkur samt og reyndum að vera opin fyrir öllum möguleikum. Sáum að verðið gat verið frá rúmlega 400 þúsund og allt að um 900 þúsund. Því miður þá vöðum við ekki í peningum frekar en fyrir 15 árum og vorum því svona heldur að reyna að miða við lægri töluna. Vorum ekkert allt of bjartsýn því mörg sófasett taka svo mikið pláss - okkur vantar frekar í nettari kantinum.
Drifum okkur svo aftur í gær af stað og nú í Kópavoginn. Natuzzi, Línan, Tekk Company. Byrjuðum í Natuzzi - flott verslun með flottar vörur. Milljón kall - aðeins. Hóst, ehe - já já bara vinna og vinna meira. Sá sófa sem ég var svo til í og stóla með. Rafmagn og þægindi og coooool - bara flott. Reiknað saman í fljótheitum ein komma sex milljón. Hva, við erum ung - bara vinna. Kreppa hvað - púff, blæs á það. NOT.
Ákváðum um leið og við stigum út úr búðinni að sennilega væri þetta ekki málið - en flott var það. Fórum í Línuna, röltum þar um og sáum sett sem var bara sófi og einn stóll - neibb ekki hægt að fá annan stól. Síðasta settið og á 35% afslætti. Heildarverð - 239.000 - ekki slæmt. Gott að sitja í því - leður og í réttum lit. Hmm kannski við ættum að hugsa það. Sáum ekkert í Tekk Company en fékk handáburðinn fína sem mér finnst svo góður. Enduðum svo í Húsgagnahöllinni þar sem við sáum að milljónin væri málið þar líka.
Í stuttu máli ákváðum við bara að stökkva á ódýrasta settið sem við gátum fundið - það reyndist okkur vel fyrir 15 árum og við vonum að það geri það aftur núna. Og aftur hugsum við sem svo að við getum þá bara hent þessu með góðri samvisku eftir nokkur ár. Og við hugsum líka sem svo að það er hægt að leika sér helling fyrir mismunin. Okkur langar frekar að vinna minna (BH bætir nú varla við sig meiri vinnu) og leika okkur meira. Milljón í sófasett núna er bara ekki gáfulegt.
Fórum því í dag og keyptum settið - það er komið svona fínt hérna inn og smellpassar. Aumingja gaurinn á sendibílnum sat uppi með mig sem burðardýr. Púff - ég er orðin aum, missti næstum sófann í hurðinni - crying outloud. En þetta bjargaðist og allt óskemmt. Krakkarnir alsælir líka, Ronja er eitthvað að hvessa á okkur augun því hornið hennar er farið. Sófinn er nefnilega lengri en sá gamli. Greyið sefur núna undir sjónvarpinu fyrir framan "hornið" sitt. Ekki alveg sátt!
Nú vonum við bara að nýja sófasettið standist slys og venjur fjölskyldunnar eins vel og það gamla. En ég vona líka að krakkarnir séu hættir að snýta sér, æla, pissa o.s.frv. í sófasettið - he he. (muna að þau voru ungabörn er við vorum með það gamla).
Later

Ummæli
HMS