Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá október, 2012

Ammli

Hinn virðulegi herrahundur, Úlfur Mikli, er fjögurra ára voffi í dag. Hér eru búin að vera hátíðahöld að því tilefni í allan dag og við sendum auðvitað snemma í morgun risaknús og almennilegar afmæliskveðjur yfir í Kópavoginn þar sem Rökkva ofurskvísa fékk nákvæmlega sama treat sín megin. Hún er sko tveggja ára í dag og hefur því formlega lokið hvolpaskeiði sínu, líkt og Leo gerði þann 13. september síðast liðinn. HósthóstéggleymdiekkiþessumafmælisdegiogmundiþaðbaravegnaþessaðRökkvuafmælivarminnstáfacebookogokkurbentáaðÚlfurættiafmælilíkahósthóst Hann fékk vænan kjötbita eftir matinn og fékk að bjóða Ronju og Leo sitthvorn bitann líka... já reyndar hefði hann étið þá alla þrjá sjálfur ef hann hefði fengið að ráða, en látum það liggja á milli hluta. Later

Nota hjálminn

Í gær ákváðum við hjónin að hjóla með hundana og koma við í Krónunni á leiðinni heim aftur. Með sitthvorn bakpokann til að setja vörurnar í og hundana fyrir framan hjólin var haldið af stað hefðbundinn hring. Er við komum niður að hringtorginu hjá Olís, eftir að hafa hjólað við Lágafellið sjáum við að þar er, venju samkvæmt, smá svell. Þarna er alltaf blautt, alltaf. Það lekur úr hlíðinni þarna inn á göngustíginn og þrátt fyrir 5°hita var frosið við jörðina. Ég var fyrir aftan með Ronju og hafði litlar áhyggjur því tíkin er meðfærileg og togar ekki svo rosalega, sérstaklega þegar ég bið hana að róa sig. (Hún er öll að koma til litla skottið í að toga). Ég hafði meiri áhyggjur af BH með þessa kröftugu togara fyrir framan sig og þeir ekki alveg jafn snöggir að hlýða ef maður biður þá að hægja á sér. En ég sá í hvelli að BH vissi alveg að þarna þyrfti að fara varlega. Hann greinilega hægði á sér og setti báða fætur aðeins niður og ferðin var alls ekki mikil. Rakkarnir greinilega tillit...

Girðingavinna

Við hjónin byrjuðum að girða í dag. Þetta átti að klárast í maí svo það má ekki bíða mikið lengur. Það á að girða garðinn svo hægt sé að leyfa hundkvikindum að hlaupa hér lausum. Og það án þess að hafa miklar áhyggjur af því að þau hlaupi út á götu á eftir ketti. Mín helsta martröð þegar þau rjúka hér í burtu (hefur gerst sjaldan) er að þau verði fyrir bíl. Þegar það verður búið að girða í kringum mest allan garðinn er planið að gera lítið gerði hérna fyrir utan þvottahúshurðina. Svona svo hægt sé að hleypa þeim út að gera þarfir sínar án þess að hanga úti í hurð með þau í bandi. Þetta verður bylting þegar þessu verður lokið. Viss um að ferfætlingarnir verði alveg jafn ánægðir og við þegar þetta er búið. Við hjónin erum heppin að vera bæði hér í stofunni að kúra okkur eftir daginn. BH tókst næstum að gera hendur mínar óstarfhæfar með öllu er ég hélt einum af staurunum kyrrum á meðan hann barði af öllu afli á hann með sleggju. Bara heppni, stundum held ég að það hljóti einhver að va...

Krýsuvík

Svona erum við Úlfur spræk í bikejöring saman. Hann er svo viljugur að hlaupa með mig í eftirdragi þessi elska. Þar sem þetta var keppni, Krýsuvíkurhlaup Draghundasports, þá fékk hann góða aðstoð frá mér þessa 15 km. Ég hjólaði allan tímann eins og ég gat og ekki veitti af. Hann hafði ásamt Leo tryggt þeim og BH 1. sæti í scooter daginn áður. Við Úlfur höfnuðum hins vegar í 3. sæti saman í bikejöring (einn hundur). En við vorum vel sátt því í 1. sæti voru Orri og Karkur og í 2. sæti voru Halli og Rökkva. Allt Siberian Express teymi :) Hérna erum við öll komin í mark, strákarnir reyndar búnir að losa sig við keppnisnúmer og svona. Þetta eru tveir af mínum uppáhalds - okkur gekk svona líka ágætlega saman í ratleiknum sem Kristín og Jökull þræluðu okkur í gegnum í september. Hér erum við svo öll sem kepptum í þetta sinn frá Siberian Express nema Rósa, hana vantar á myndina. Það má sjá nánar um keppnina  hérna  á síðunni okkar :) Later

Karlmenn !!!

Við hjónin sátum hér í stofunni í gærkvöldi upptekin í sitthvorri tölvunni. Í sjónvarpinu var þátturinn um ljósmæðurnar, held hann heiti bara Ljósmóðirin. Ég svona var að horfa með öðru auganu. Þegar enn ein barnsfæðingin var á skjánum segi ég við barnsföður minn og eiginmann til margra ára og kærasta áranna þar á undan : "Þú getur ekki ímyndað þér hvað þetta er vont" og svarið sem ég fékk um hæl, um leið og hann leit svona til hliðar og ofan við tölvuskjáinn sinn, var : "Ég var þarna líka sko" Hann var eldsnöggur að hverfa aftur fyrir skjáinn með hræðslusvip og svona "fokk hvað sagði ég" look. Hann fékk eitrað augnaráð og athugasemd um að hann væri heppinn að ekkert lá hér nálægt mér sem ég gat grýtt í hann af öllu afli. Later

Hallærispía

Hrikalega hressandi að hjóla með tvo spræka rakka í rigningunni. Eins gott að vera vel vopnaður endurskinsmerkjum í þessu myrkri. Frúin í endurskinsvesti með ennisljós á hausnum og að sjálfsögðu með hjálm líka. Smellti endurskinsrenningi á öklann líka. Rakkarnir báðir í endurskinsvestum svo þeir sjáist. Ég klikkaði samt á endurskinstaumum. Ég nennti ekki að finna út úr því að framlengja og svona. Þessu verður reddað á morgun. Þá ætla ég að búa mér til endurskinstauma fyrir bæði göngur og hjól og fyrir einn og tvo hunda. Það er frekar kjánalegt að eiga allt þetta efni til og hafa það bara á rúllunni. Þannig að við ættum svo að vera enn betur vopnuð endurskini eftir vikuna. Maður er kannski pínu hallærispía svona sjálflýsandi. En ég hef það fyrir satt að það sé frekar sárt að láta keyra sig í klessu svo ég tek hallærispíuna bara og geri það með stæl. Ég er ekki alveg óvön því að "glóa" í myrkri - í þokklegri þjálfun eftir þrjár geislajoðmeðferðir. Rakkarnir voru ansi spræki...

Fullkominn, tíu tær og tíu fingur...

Fallegi frumburðurinn minn er 17 ára í dag. Herramaðurinn ákvað að hafa smá afmælisboð í tilefni dagsins. Mamman hafði verið frekar busy undanfarna viku og byrjaði í gær að þrífa og taka til hérna. Feðgarnir  sendir klukkan 01 út í bílskúr með dót og drasl sem hefur beðið í einn og hálfan mánuð hérna út um öll gólf. Dót frá heimasætunni, dót sem unglingurinn skóflar út. Í morgun vöknuðum við mæðgur kl 06 og ég hjálpaði henni að bera út. Yup hún byrjaði 22. september. Langar að vinna sér inn smá pening - skíðaferðin er efst á óskalistanum. Klukkan 07 var ég svo byrjuð að baka og græja veitingar. Löng saga stutt, allt var tilbúið kl 13 ... nema gestirnir. Þeir komu heldur seint :) En það var líka í góðu lagi. BH bakaði (úr deiginum mínu, uppskrift frá Lilju) dýrindis vöfflur sem runnu ljúft ofan í mannskapinn. Ásamt brownies, ostaköku og svo bara hefðbundnu brunch fæði :) Held að fólk hafi bara verið sátt og farið satt heim :) Drengurinn var alla vega sáttur. Afskaplega afslappað...

Tarot dagsins

Er á fullu að klára vsk - redda afmælisgjöf - baka - þrífa - versla fyrir afmælið. Nóg að gera og dagurinn hálfnaður. Eina sem ég er búin að gera er að bjóða í afmælið. Afmælisbarnið upptekið af sjálfu sér í skóla og á æfingum.   Sit hérna í vinnunni til að klára skattinn og borga hann. Alltaf svo "gott" þegar það er búið, fyrir utan að maður er peningunum "fátækari" :)   Alla vega, fékk sent á MSN Tarot dagsins hjá eiginmanninum, hann að fletta "nýjum" vef Vísis og prófaði að draga spil. Þetta er það sem ég fékk sent:   Stafakonungur Maðurinn hér er ábyrgðarfullur mjög sem er mikill kostur. Hann er öruggur í framkomu og býr yfir réttu viðhorfi til lífsins. Hann er sterk manneskja þegar kemur að andlegum styrk en er oft á tíðum með hugann við annað en starfið. Hann er opinn fyrir skoðunum annarra og er góður og hreinskilinn ráðgjafi þegar kemur að því að taka mikilvægar ákvarðanir. Hann er orkumikill og er húmoristi, en á það til að ver...

Tekin

Á sunnudagskvöldið var sátum við hjónin saman við eldhúsborðið og fengum okkur kvöldkaffi. Heimasætan hafði fyrr um daginn bakað þessa dýrindis hafraklatta sem renna svo ljúft (og brjálað hratt) ofan í okkur hin. Ég hafði lagst á hnén og spurt bakarann hvort ég mætti fá tvo og pabbi hennar tvo. Henni finnst við helst til gráðug og borða baksturinn frekar hratt. En gaf grænt ljós. Ég hitaði mér te og settist með mína tvo klatta sæl og glöð með kvöldkaffið mitt. BH sat ská á móti mér með sína tvo og mjólkurglas. Ég var dáldið að spara seinni minn því teið var heldur heitt ennþá og ég að bíða að það kólanði aðeins. BH horfir fyrir aftan mig og gerir athugasemd um kaktusinn sem þar stendur á borðinu. Hann þolir illa þennan kaktus. Skilur ekki að ég skuli ekki láta hann hverfa. Ég leit við til að sjá hvort það sé eitthvað sérstakt sem varð til þess að hann fór að fjargviðrast yfir blóminu í þetta sinn. Sá ekkert sem gat verið tilefni, annað en að hann stóð þarna bara. Sneri mér svo aftu...

Fiðlarinn á loftinu

þann 20. september spilaði dóttir mín á fiðluna sína í messu í Lágafellskirkju. Þar sem hún er að fermast næsta vor er ætlast til að hún og fjölskylda hennar mæti til messu af og til í vetur. Það ætti nú ekki að drepa mig nema vegna þess að sunnudagar eru einu dagarnir sem ég get sofið út og spókað mig á náttfötunum frameftir morgni. Messan hér í sveitinni byrjar klukkan 11:00. En þar sem heimasætan var að spila á fiðluna sína fyrir kirkjugesti þennan dag ákváðum við foreldrar hennar að drífa okkur upp í kirkju og sjá "krílið" okkar brillera. Svona hinsegin spurði ég KEB, á meðan ég var að hafa mig til, hvort hann myndi koma með okkur. Aldrei þessu vant sló hann til og ákvað að kíkja með. Mér datt í hug að hann myndi taka videovélina sína og mynda drottninguna taka lagið. Það þótti honum tilvalið og greip vélina með. Er við komum inn í kirkju gengum við inn eftir gólfinu, mamma rösk fremst og feðgarnir í humátt á eftir. Eitthvað þótti eiginmanni mínum ég helst til ákveðin...