Fara í aðalinnihald

Tarot dagsins

Er á fullu að klára vsk - redda afmælisgjöf - baka - þrífa - versla fyrir afmælið. Nóg að gera og dagurinn hálfnaður. Eina sem ég er búin að gera er að bjóða í afmælið. Afmælisbarnið upptekið af sjálfu sér í skóla og á æfingum.
 
Sit hérna í vinnunni til að klára skattinn og borga hann. Alltaf svo "gott" þegar það er búið, fyrir utan að maður er peningunum "fátækari" :)
 
Alla vega, fékk sent á MSN Tarot dagsins hjá eiginmanninum, hann að fletta "nýjum" vef Vísis og prófaði að draga spil. Þetta er það sem ég fékk sent:
 
Stafakonungur
Maðurinn hér er ábyrgðarfullur mjög sem er mikill kostur. Hann er öruggur í framkomu og býr yfir réttu viðhorfi til lífsins. Hann er sterk manneskja þegar kemur að andlegum styrk en er oft á tíðum með hugann við annað en starfið. Hann er opinn fyrir skoðunum annarra og er góður og hreinskilinn ráðgjafi þegar kemur að því að taka mikilvægar ákvarðanir.

Hann er orkumikill og er húmoristi, en á það til að vera óþolinmóður þegar kemur að smáatriðum. Traustur eiginmaður og næmur faðir er hann. Hann er hugmyndasmiður.
 
Ég get ekki annað en verið sammála þessu bara og fannst þetta spil vel við hæfi. Held það passi allt þarna bara. Auðvitað var hann hinn lukkulegasti með spilið fína og brosti hringinn.
 
Við ræddum aðeins hvað væri nú mikið að marka allt svona - mátulega vantrúuð á þetta, hann sennilega meira en ég því mér finnst allt svona skemmtilegt og spennandi, þó ég sé kannski ekki að gleypa allt svona hrátt samt.
 
Jú ég er að vinna og smá í kappi við tímann en stóðst ekki mátið og dreif mig inn á visir.is og skrollaði á tarot dæmið. Valdi spil og þetta er það sem ég fékk:
 
5 bikarar
Hamingjubikar þinn hefur eflaust ekki fundið hið sanna jafnvægi sem á vel við þig og hentar þér. Hér kemur fram einhverskonar missir eða vonbrigði sem kann að ýta undir leiða hjá þér. Ef þú leyfir þessari líðan að ná yfirtökum á annars jákvæðri orku þinni og viðhorfi er hætta á að neikvæðar tilfinningar þínar verði þér þungbærar og magnist í huga þér og ýti þar með undir ójafnvægi sem á ekki við þig.

Þú ættir að leggja þig fram við að opna hjarta þitt fyrir því sem eflir þig á góðan máta og kasta frá þér þeim þungu byrðum sem gætu tengst þessari óánægju sem birtist.

Í hverju vandamáli felast dulbúin tækifæri.
 
Við fórum bara að hlæja því þetta á einstaklega vel við - ég tek þetta til mín og nýti alla mína krafta í að finna jákvæða strauma og láta ekki neikvæðni og vonbrigði ná algjörlega yfirtökum á lífinu. Það er svo mikil sóun. Nú dríf ég bara í að grípa tækifærin... með nokkur sem ég veit að þarf að stökkva á í hvelli :)
 
Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...