Hrikalega hressandi að hjóla með tvo spræka rakka í rigningunni. Eins gott að vera vel vopnaður endurskinsmerkjum í þessu myrkri. Frúin í endurskinsvesti með ennisljós á hausnum og að sjálfsögðu með hjálm líka. Smellti endurskinsrenningi á öklann líka. Rakkarnir báðir í endurskinsvestum svo þeir sjáist. Ég klikkaði samt á endurskinstaumum. Ég nennti ekki að finna út úr því að framlengja og svona. Þessu verður reddað á morgun. Þá ætla ég að búa mér til endurskinstauma fyrir bæði göngur og hjól og fyrir einn og tvo hunda. Það er frekar kjánalegt að eiga allt þetta efni til og hafa það bara á rúllunni. Þannig að við ættum svo að vera enn betur vopnuð endurskini eftir vikuna.
Maður er kannski pínu hallærispía svona sjálflýsandi. En ég hef það fyrir satt að það sé frekar sárt að láta keyra sig í klessu svo ég tek hallærispíuna bara og geri það með stæl. Ég er ekki alveg óvön því að "glóa" í myrkri - í þokklegri þjálfun eftir þrjár geislajoðmeðferðir.
Rakkarnir voru ansi sprækir bara og héldu fínum meðalhraða alla leið með sprettum. Við ættum að vera nokkuð góð fyrir keppni næstu helgi. Fylgjum vonandi eftir góðum árangri þarsíðustu helgi. En keppnin verður hörð um helgina svo við bara gerum okkar besta og sjáum hvernig fer. Takmarkið er klárlega alltaf það að gera vel og skemmta sér enn betur. Okkur hefur tekist það í undanförnum keppnum s.l. vetur.
Later

Ummæli