Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá september, 2008

Smá grín

KBB fór á sundæfingu í gær, hringdi í mig hálf miður sín rétt eftir þrjú er ég var í göngutúr með Ronju. Íþróttapokinn hennar hafði horfið, hún hafði lagt hann frá sér á stól þar sem þau bíða eftir kennaranum, farið og talað við Unu vinkonu sína. Þegar kom í ljós að kennarinn var veikur og hún ætlaði að grípa pokann til að fara heim, greip hún í tómt. Enginn poki. Hún hringdi í mig og vildi að ég kæmi til að hjálpa henni að leita. Leiðinlega ég hélt nú ekki - alveg búin að fá upp í kok af týndum flíkum og hlutum. Sagði henni að starfsfólkið hlyti að geta aðstoðað hana því pokinn hvarf þarna innan fimm mínútna. Ekki var hún komin heim er ég kom heim svo ég áleit að hún hefði fundið sundfötin sín og verið á æfingu. Það var nú ekki svo gott. Hún kom heim kl. rúmlega hálf fimm með tárin í augunum, eyðilögð því hún fann ekki sundfötin sín. Hafði leitað í öllu íþróttahúsinu og ekkert fundið. Ég komst að því að hún hafði ráfað þarna um eins og aumingi á meðan starfsfólkið lét eins og það sæi ...

Allt brjál!

Má maður ekki taka sér helgarfrí og þá hrynur bara bankinn sem maður verslar við og allt í rassgati. Gott að ég á bara skuldir, þær mættu alveg fuðra upp með bankanum. Gera það nú sennilega ekki, bara peningarnir sem krakkarnir eiga þarna inni - ætli þeir myndu ekki fuðra upp fyrst. Þegar ég lagði inn á bundinn reikning fyrir þau spáði ég mikið í þetta því ég vildi ekki að þetta myndi gerast. Þau mega ekki taka út sitt fé fyrr en 18 ára af ákveðnum reikning og ég var hrædd um að nákvæmlega þetta sem er að gerast núna myndi gerast. Nei ég er ekki svona forsjál - alls ekki. Og fór að leggja inn á þessa reikninga. Ég veit bara að það sem lagt var inn hjá Landsbankanum fyrir mig er ég var barn - einhverjir afmælispeningar - skírnarpeningar og þannig voru rúmlega 300 krónur þegar ég leysti það út fyrir 4 eða 5 árum. Jebb gengisfellingin fór svona með það sparifé - kallast þjófnaður í mínum kokkabókum. Hefði annars verið rúmlega 30 þúsund. Merkilegt hvað lánin mín hækka töluvert miklu hraðar...

Nóg að gera

Of mikið eina helgi - varla tími til að anda! Við mæðgur kláruðum sláturgerðina á föstudagskvöldið. KEB var í fimleikum til kl. 19 og hljóp þá yfir til ömmu sinnar. Ekki hress pjakkurinn er hann uppgötvaði að hann kæmist ekki heim fyrr en um kl. 23! Mamman aðeins búin að gleyma að greyið þarf að vakna snemma til að bera út. Fór því með honum laugardagsmorguninn í útburðinn. Gott að taka daginn snemma. Við mamma fórum svo fyrir hádegið að Gamla Hrauni þar sem afi minn ólst upp og hittum þar nokkra móðurbræður og þeirra syni og aðra fjarskyldari ættingja. Tilefnið var að hreinsa út úr húsinu drasl sem safnast hefur saman í svona u.þ.b. 80 ár eða svo. Þegar við höfðum fyllt tvo stóra gáma og komum ekki meira fyrir ákváðum við að hætta. Nei við vorum alls ekki búin - það þarf lágmark 2 eða 3 gáma í viðbót. Og við erum að tala um lítinn bæ. Afabróðir minn, Helgi, sem þarna bjó eftir dag foreldra sinna dó s.l. febrúar og nú á að selja jörðina. Gamli maðurinn var víst mjög handlaginn, svona þ...

Vaxtaverkir!

KBB búin að kvarta undanfarinn mánuð um verk í hægra hnénu. Hef svona nett verið að ignora hana með þetta. Sagði henni að þetta væru bara vaxtaverkir, hún stækkar svo hratt. Um daginn hvæsti hún á mig að þetta væru sko engir vaxtaverkir - það er ekkert bara hnéð sem vex! Í gær er hún var að fara að sofa sýndi hún mér hnéð og ég skoðaði bæði hnén. Hægra hnéð var greinilega stokkbólgið - hún hefur ekkert dottið eða orðið fyrir neinu hnjaski. Hún átti tíma hjá lækni áðan - rétt náði að koma mér heim úr bænum og ná í stelpuna og koma á réttum tíma. Vörtudruslan á þumlinum hefur bara stækkað og því þarf að frysta og svo koma aftur eftir tvær vikur og frysta. KBB til mikillar gleði - NOT. Við spurðum lækninn út í hnéð, hann rétt leit á bólguna og sagði - "dæmigerðir vaxtaverkir" he he - mamman ekki svo vitlaus eftir allt saman. Hann ráðlagði bólgueyðandi krem og teygjusokk um hnéð að staðaldri. En fimleikarnir? Ekkert svona hopp og álag, það er slæmt. Þannig að KBB er brjáluð - vil...

Gott tímakaup

Búin að vera á fullu í allan dag. Ákvað að fara ekki í líkamsrækt í morgun, fór í gærmorgun. Ætla ekki að fara of geyst af stað svo ég (kroppurinn) gefist ekki strax upp. Fínt að komast að hreyfa sig aðeins vona að ég verði dugleg. Hef ekki áhuga á að verða ein af fjölmörgum sem borga mánaðarlega til líkamsræktarstöðva og nota ekki aðstöðuna. Hefði þá frekar sett peningana til góðgerðamála. Ætli við förum ekki á morgun hjónin, dreg hann öfugan með mér ef þess þarf. Ég er samt að vona að hann komi sjálfviljugur. Byrjaði morgunin á að þrífa hérna hjá okkur, geymdi mér að skúra þar til seinna í dag því ég var á leið út. Hef því ekki skúrað - missi engan svefn yfir því. Aulaðist svo út í hádeginu - endemis bíllinn bensínlaus, byrja á að ná í bensín. Það er svoooo leiðinlegt að ég fer yfirleitt síðasta spölinn á gufunni að dælunni. Þaðan var haldið í Lágafellsskóla, KBB gleymdi fiðlunni sinni í morgun. Notaði tækifærið og leitaði sjálf að vind/regn jakkanum hans KEB. Jakkinn búinn að vera t...

Fúl

Morguninn byrjar ekki vel - veðrið er ömurlegt og ég HATA skattinn. Sigurður Líndal sagði einu sinni í tíma að það hefði í gegnum tíðina verið þjóðaríþrótt Íslendinga að svíkja undan skatti. Ég er ekki týpan í það - alls ekki og hef engar taugar í slíka starfssemi. En ég tók í arf frá forfeðrum mínum einlæga andúð á öllu sem viðkemur skattinum. Mrs. Grumpy

The winners are...

Komum, sáum og sigruðum. Já já fórum létt með þetta. Mættum systurnar í badminton í gær og töpuðum fyrsta leiknum af fimm. En við unnum líka næstu fjóra - æsispennandi allt saman og mjög jafnir leikir, mjög gaman. Ég var búin að safna orku alla vikuna fyrir tímann og það greinilega borgaði sig. Tilkynnti í síðasta tíma að ég tapaði öllum leikjunum mínum þá vegna þess að ég væri að byggja upp hjá þeim falskt öryggi. Gleymdi alveg að veðja á leikina í gær. Hefði getað haft vel upp úr því. Eftir tímann þá sagði SBK orðrétt - "já og bloggaðu þetta" sem sagt að við hefðum unnið. Hún var ekki alveg sátt við að hafa tapað í síðasta tíma, þannig að hún vildi koma á framfæri leiðréttingu á okkar hlut í þessu öllu saman og því er hér með komið til skila. Fór í dag á Þjóðaskjalasafnið hitta kennarann sem ætlar að leiðbeina mér með ritgerðina - hér eftir kallað meistarastykki - Sýnist jafnvel að hann sitji uppi með mig vel út öldina. Var að skoða manntöl, gekk vel allt vélritað og aðgeng...

Wacko lið

Er að lesa mbl.is og rakst á þessa frétt. Er fólk svona svakalega steikt? Lýtaaðgerðir eru eitthvað sem ég myndi seint mæla með. Að sjálfsögðu eru lýtalækningar alvöru lækningar. Margt fólk sem virkilega þarf á þeim að halda, brunasjúklingar, fólk sem afmyndast í slysi, fólk með fæðingarlýti o.s.frv. Mér dettur ekki í hug að setja út á konur sem fara í brjóstastækkun, ef þeim líður betur er það hið besta mál. Fólk er að láta laga ýmislegt sem þeim líður illa með og ekkert við því að segja. Vona að þeim líði betur. Verð að viðurkenna á mig pjattið líka, fór til lýtalæknis þegar ég lét fjarlægja úr hálsinum á mér eitilinn þarna um árið. Fékk að velja hvort ég færi til Háls, nef og eyrnalæknis eða lýtalæknis og fékk tvö nöfn. Þekkti vel þann fyrrnefnda og treysti honum vel. Ákvað samt að drífa mig til þess síðarnefnda því þetta er jú á áberandi stað. Þess má geta að ég hefði kannski betur farið til Háls, nef og eyrnalæknisins því þetta fór nú eins og flestir vita. Ef ég hefði farið stra...

Step one

Morgungangan mín farin fyrir lítið - drengurinn vill svo gjarnan losna við móður sína úr útburðinum. Spurði hvort hann mætti ekki bara sjá um þetta sjálfur. Þetta er eitthvað svona sjálfstæðismál. Jú jú minns ekkert óhress með að sofa klukkustund lengur á morgnana og drengurinn sennilega nokkuð sáttur við að losna við morgunfúlu mömmuna. Sagðist nú samt hafa verið dálítið einmana í morgun en gekk bara vel, ekki við öðru að búast. Þannig að nú drifum við okkur hjónin hérna út í WC, báðum mál að fara að hreyfa okkur :o) Verð samt að viðurkenna að okkur leið pínulítið eins og við værum með keðju og kúlu fasta við fæturna. Rándýrt og ekki svo merkileg aðstaða og ekki svo merkileg stundatafla heldur sem þeir bjóða hér uppá. Svo segja þeir bara JÁ EN ÞÚ GETUR NÚ ALDEILIS NOTAÐ ALLAR HINAR STÖÐVARNAR LÍKA. Vei - ég bý bara hér og ætla að vera hér, ef ég vil keyra í Laugar þá kaupi ég mér kort þar, ef ég vil keyra til RVK í líkamsrækt þá kaupi ég mér bara kort þar. Ég kunni betur við þau í Top...

Stórasta stelpan í bekknum!

Mamma ég er 55 sentimetrar :o) - nei ég meina 155 sentimetrar. Og ég er stærst í bekknum. Sunna er næst stærst og hún 150 sentimetrar :o) Karlotta fékk staðfest og sannprófað það sem allir í bekknum hennar vissu fyrir :o)

Heimsókn

Fengum heimsókn í garðinn. Við Ronja vorum úti í garði - krílið að pissa. Röltum þarna aðeins um og ég stóð svo bara kyrr er ég sá kettling koma í gegnum trén. Ronja sá hann ekki í dágóða stund en þegar kettlingurinn sá hana þá laumaðist hann svo ofur rólega til að ekkert heyrðist. Þegar svo hvolpurinn sá hinn óboðna gest var keppt í smá störukeppni. Verið að vega og meta andstæðinginn. Kötturinn setti upp þessa líka rosa kryppu og reyndi að gera sig vígalegan. Það mistókst því hann var svo mikið krútt greyið að ekki var hægt annað en að brosa. Ronja gerði sig líklega til að vaða í kettlinginn sem snerist til varnar í hvelli og hvæsti snöggt á hana. Við það kipptist hvolpurinn tilbaka og hljóp ýlfrandi hinum megin við mig. Mjög huguð :o) En hún var ekki lengi að taka við sér og vildi vaða í kettlinginn sem rauk undan henni upp í tré. Greyið Ronja kann ekkert að klifra í trjám og vældi og gelti niðri á túninu og komst ekki að kettinum. Kötturinn fékk að dúsa smá stund í trénu með myndar...

Réttir

Krakkarnir fóru í réttir í morgun til frænku sinnar. Það er ekki alveg tekið út með sældinni því lítla skottan grét sig í svefn í gærkvöldi. Það er gaman að fara í réttir en nú verður Snoppu ekki bjargað þriðja árið í röð. Snoppa er uppáhaldskind - gamall heimalingur sem eltir krakkana á röndum. Þau eru búin að vera að leika við hana síðan þau muna eftir sér - alla vega KBB. KBB grét henni líf fyrir tveimur árum og frænka hennar studdi hana með frekjunni. Í fyrra var það erfiðara en frænkurnar gáfu sig ekki. SBK á rolluna og því hún sem á endanum ræður. En í ár verður henni ekki bjargað, orðin of gömul - drepst annars bara í fjárhúsunum í vetur úr elli og ekki er það betra. Þetta gæti orðið drama vika hér á heimilinu. Við BH notuðum tækifærið eftir að hafa skutlað krökkunum og fórum áfram áleiðis að Bláfjallaafleggjaranum og fengum okkur göngutúr með Ronju. Hún skoppaði laus í kringum okkur og passaði að fara aldrei of langt á undan. Við nöguðum okkur i handabökin yfir að hafa ekki aul...

Hættulegt starf!

Fór í vinnuna til BH og DH áðan með mat til þeirra. Var líka beðin um að skrúbba aðeins í kringum innganginn og þrífa mottuna sem sneri á röngunni á gólfinu. Það nefnilega rignir inn í ákveðinni vindátt og allt verður svona frekar blautt. Eftir að hafa borðað með þeim sneri ég mér að verkefninu "útihurð" og á meðan ég brölti þarna fram og tilbaka með tusku í annarri og moppu í hinni fékk ég að heyra "Þú ert svo mikil drusla". Ég gat mér til um hvað væri málið og spurði hvort ég ætti að setja sígarettu í munnvikið. Jú hann taldi að það vantaði bara. Ég mætti þarna í íþróttagallanum - sem mér finnst reyndar ekki bara þægilegur heldur líka bara flottur og haltraði um gólfin. Ég nefnilega missteig mig í morgun svona glæsilega. Féll á hnéð í leiðinni og þetta var hrikalega vont. Jafnaði mig fljótlega en er greinilega bólgin og aum því það er vont að stíga í fótinn núna. BH fannst ég sem sagt ekki mjög tignarleg í morgun - haltrandi með gólftuskuna! Ég missteig mig í gær ...

Allir í strætó

Vei - gott samgöngukerfi hérna. Krakkinn kominn heim - strætó keyrði bara framhjá henni. Virtist ekki hafa rænu á því að pikka hana upp! Þannig nú verð ég að bruna með hana í bæinn til að hún mæti á réttum tíma á æfingu. GRR

I see you baby...

shaking that ass! Ætla nú ekki að hafa heilsufarssögu mína hérna mikið til umfjöllunar - enda alltaf hraust. Fór samt til læknis áðan - gigtarlæknis. Hef undanfarið og allan síðasta vetur verið að drepast í öllum liðum - hné, olnbogar og mjaðmir. Stirð eins og níræð kona. Var fín í sumar og allt komið aftur með haustinu. Í stuttu máli er ekkert að mér frekar en fyrri daginn - þakklát fyrir það. Gaurinn talaði bara um festumein sem er víst algengt vandamál eftir svona pakka sem ég hef gengið í gegnum. Engin gigt í mínum kroppi - thank god! Það var samt alveg ástæða til að athuga það því mamma er með gigt og hefur átt við það síðan ég man eftir mér. Þannig að, eins og Jón um daginn, sagði þessi ágæti læknir mér að fara nú að hreyfa á mér rassgatið. Kominn tími á það - ekkert að hlífa mér bara hafa þetta fjölbreytt, hjóla, skokka (yeah right), synda, lyfta lóðum og fara í skemmtilega tíma í líkamsrækt. Þannig að nú dreg ég bónda minn í fyrramálið með mér hérna út í WC - he he, skemmtileg ...

Andy Rooney

Subject: What Andy Rooney thinks about women over 40: 60 Minutes Correspondent Andy Rooney (CBS) As I grow in age, I value women over 40 most of all. Here are just a few reasons why: A woman over 40 will never wake you in the middle of the night and ask, 'What are you thinking?' She doesn't care what you think. If a woman over 40 doesn't want to watch the game, she doesn't sit around whining about it. She does something she wants to do, and it's usually more interesting. Women over 40 are dignified. They seldom have a screaming match with you at the opera or in the middle of an expensive restaurant. Of course, if you deserve it, they won't hesitate to shoot you if they think they can get away with it. Older women are generous with praise, often undeserved. They know what it's like to be unappreciated. Women get psychic as they age. You never have to confess your sins to a woman over 40. Once you get past a wrinkle or two, a woman over 40 is far sexier th...

Smásaga

Í fyrradag fórum við BH með Ronju í Heiðmörk og hittum Heiðu (Sonjusystur) og Óla. Þau eru stoltir eigendur Castors og Mána. Rosalega fallegir og stæðilegir Husky-rakkar. Við hjónin vorum of sein (AGAIN) og vissum ekkert hvar Borgarstjóraplanið svokallað er í Heiðmörk. Römbuðum samt á það og gátum hitt gengið sem kom á réttum tíma - hvenær skyldum við læra á klukku? Svona var þetta - BH tók Ronju út út bílnum og hún var þetta litla kát að komast úr skottinu í "sveitina" í göngutúr. Hún trítlaði á undan BH og hefur örugglega hugsað: "Hér kem ég hún Ronja, fallegasti hvolpurinn norðan Alpafjalla, sterkust og máttugust af þeim öllum, má allt og get allt." Svona eins og hún virðist alltaf hugsa :o) En nú kom litla krílið auga á samferðafólkið, Óli stóð með rakkana tvo í sleðabeltum og hafði þá bundna við mittið á sér. Stórir og stæðilegir biðu þeir eftir hvolpnum sem kom askvaðandi. En niiiii mín áttaði sig á að hún væri kannski fallegust, það er alltaf álitamál og sitt...

Voff

Eitthvað er hvolpurinn að venjast lífinu hérna á heimilinu. Stækkar á ljóshraða og lærir mjög hratt líka. Mjög ákveðin einstaklingur og skemmtileg - svona þegar hún er ekki að gera útaf við mig á þrjóskunni. Ég ryksuga ansi oft núna - gerði það reyndar áður líka. Þoli ekki grasið og draslið sem berst inn með okkur á sumrin er við vöðum inn og út af pallinum í góða veðrinu á sumrin. Ronja fer meira úr hárum núna en í fyrstu, en það er nú bara eins og við var að búast. Hlökkum ekki til fyrstu feldskiptanna - það verður sjokk :o) BH ætlar að smíða gerði hérna úti í garði í vikunni og svo hún ætti að geta verið mikið úti. Henni finnst svo gott að vera úti - því meiri læti sem eru í veðrinu því betra. Það er frábært að sjá hana taka vindáttina - rekur trýnið og andlitið upp í vindinn og sogar að sér loftið. Þetta með ryksuguna - já einmitt - það var víst þess vegna sem ég er að skrifa þetta. Í fyrsta sinn í dag þá eltir hún ekki barkann út um allt og reynir að "veiða" hann. Mín or...

Bastarður

Á leiðinni á Suðurnesin ræddum við hjónin saman - svona eins og gengur. Mér datt allt í einu í hug og sagði - ma og pa eiga 34 ára brúkaupsafmæli í dag. BH: Já er það - ha 34 ár, ertu viss? Svona mikið? LBK: Ég er 35 ára það er ekki erfitt að muna þetta - já ég er viss svona mikið! BH: Hmm já - heyrðu bíddu, ertu BASTARÐUR? LBK: (hló óskaplega) já já óskilgetið grey, bastarður, that´s me! Er við hlógum að þessari uppgötvun eiginmannsins tilkynnti hann mér að hann þyrfti að eiga við foreldra mína orð, þetta væri viss gengisfelling á eiginkonunni. Ég verð að gera ráð fyrir að foreldrar mínir segi eins og pabbi hennar Helenu - skilar ekki notaðri vöru :o) BH nefnir það stundum að ég sé aðeins að fá smá krumpur - hann kallar það krúttukrumpur. Ég er líka ægilega stolt af krumpunum mínum :o). Í þessari ágætu ökuferð var ég semsagt orðin krúttukrumpu bastarður! Geri aðrir betur. Var að setja myndir inn á Flickr og rakst þá á - þessa mynd sem minnti mig á samtalið í bílnum :o) Le bastard

Voffamál

Við erum svona að læra þetta. Fórum á Suðurnesin áðan og hittum Tinnu og Arnar. Þau eiga Husky tík - Indý. Hún er ljúf sem lamb og hlýðir eigendum sínum vel. Fórum að Rock-Ville og töluðum þar saman. Okkur var kennt (AGAIN) það eina sem dugar. Svo nú er það bara harkan (AGAIN) á litlu frekjuna okkar. Ronja er nefnilega MJÖG ákveðin og óforskömmuð, frekjan er að fara með hana. En þau skötuhjú þurftu nú ekki að sýna henni oft hver réði þarna á Suðurnesjunum og að stjórnendurnir væru í raun hin mestu ljúfmenni með helling af nammi fyrir góða hunda. Var búin að tala heilmikið við Huldu í síðustu viku og gaf hún með nokkur góð ráð til að laga það sem á vantar hjá okkur. M.a. að hitta aðra hunda og eigendur þeirra og leyfa Ronju að atast aðeins. Líka til að hún finni að hún er ekki sterkust í heimi, það eru til dýr sem hafa hana undir. Hún er svo mikill gormur - veður í alla hunda til að leika við þá - hvort sem þeir eru í stuði eða ekki. Nú hlakka ég til að takast á við gemlinginn og athuga...

Mjög einfalt

KEB var að ræða atvinnumálin einn morgunin er við mæðgin röltum yfir í næstu götu til að koma blöðunum í lúgur hjá fólki. Skildi ekki þetta atvinnuleysi, fólk gæti nú alveg fengið vinnu ef það vildi. Það vantaði nú alltaf fleiri blaðbera t.d. Ekkert mál að fá vinnu við blaðaútburð. Ég vildi nú meina að það væri ekki gott ef pabbinn á okkar heimili myndi missa vinnuna og færi í blaðaútburð. Það væri ekki nóg til að halda uppi okkar fjölskyldu lengi. Og sagði svo að það að bera út blöð væri ekki nóg til að brauðfæða heila fjölskyldu! Ekkert mál - við kaupum bara fisk. Fljótur að snúa út úr því svona kl. 6 á morgnana! :o)

Væl og volæði?

Allir fæðingargangar fullir og konur að hrúgast margar í sama herbergi eins og var áður. Ég var að lesa blöðin áðan og hugsaði með mér að ég vorkenndi nú ekki konum að komast ekki Hreiðrið. Bölvað endalaust væl, buhu allt þarf að vera svo náttúrulegt og rólegt og frábært og æðislegt - mig flökrar stundum hvað fólk getur verið væmið eitthvað og ekki harkað bara af sér. En bíðum við - hvernig var þetta hjá mér? Jú sko ég komst aldrei í Hreiðrið og veit því bara af afspurn hversu gott og notalegt það er. Og ég er mjög fylgjandi því að konur geti notfært sér það. Ég og börnin mín erum ekki annáluð fyrir þolinmæði á þessum meðgöngutíma. Þau komu nefnilega bæði mánuði fyrir áætlaðan fæðingartíma og þar með eru þau talin fyrirburar og fá ekki tækifæri til að komast í hreiðrið og heim innan sólarhrings. Við fengum að gista á fæðingarganginum fína. Það var mjög ólíkt þessi tvö skipti. Þegar KEB fæddist var svona pínu gamaldags bragur á þessu. Börnin voru inni á vöggustofu þegar gestir fengu að ...

Fyrir HMS

Don't Give Up Lovers of the English language might enjoy this.....How do non-natives ever learn all the nuances of English??? There is a two-letter word that perhaps has more meanings than any other two-letter word, and that word is "UP." It is listed in the dictionary as being used as an [adv], [prep], [adj], [n] or [v]. It's easy to understand UP, meaning toward the sky or at the top of the list, but when we awaken in the morning, why do we wake UP? At a meeting, why does a topic come UP ? Why do we speak UP , and why are the officers UP for election and why is it UP to the secretary to write UP a report? We call UP our friends and we use it to brighten UP a room, polish UP the silver, we warm UP the leftovers and clean UP the kitchen. We lock UP the house and some guys fix UP the old car. At other times the little word has a real special meaning. People stir UP trouble, line UP for tickets, work UP an appetite, and think UP excuses. To be dressed is one t...

Sami rassinn...

undir öllum stjórnmálamönnum. Ef einhverjar töggur væru í Ingibjörgu Sólrúnu þá væri hún búin að þvinga fram samninga við ljósmæður. Eftir hverju er verið að bíða - það er í öllum fréttatímum að það sé í stjórnarsáttmálanum að leiðrétta sérstaklega laun kvennastétta. Er til meiri kvennastétt í landinu en ljósmæður? Og þær eru sprenglærðar - ættu í raun að vera hærra launaðar en lögfræðingar, sem "bara" eru í háskóla í fimm ár. Veit ekki betur en að konan hafi verið gjammandi endalaust um óréttlætið sem kvennastéttir eru beittar í launamálum. Nú er hennar tími til að sýna að henni hafi verið alvara - ekki bara verið að tuða og gjamma til að komast í ráðherrastól. Mér finnst þetta sýna mjög vel nokkuð sem ég var ansi snögg að átta mig á - það skiptir engu máli hverjir eru í stjórn - það er sami rassinn undir öllu þessu liði. Háttvirtur kjósandi PS - tek fram að ég kaus ekki Samfylkinguna - eða svikafylkinguna eins og einhver kallaði flokkinn í Morgunblaðinu í morgun. Hef aldrei...

Haustið

Er að koma börnunum mínum að í tómstundum fyrir veturinn. Karlotta heldur áfram að læra á fiðluna sína og skellti sér í fimleika hjá Ármanni því ekki voru þær neitt að gera fyrir hana hjá Aftureldingu í fyrra. Bara klúður. Og svo ætlar hún að prófa að vera í sundi líka núna fyrir áramót. Þetta hljómar voða mikið fyrir 9 ára stelpu - ég minni á að hún er stór og kraftmikil. Og fimleikarnir hjá Ármanni eru færri tímar á viku en hjá Aftureldingu í fyrra. Þannig að sundið kemur í staðinn fyrir þá tíma. Kjartan er byrjaður að fara í tónlistarskólann og æfa á klarinettið en eitthvað ætlar Ármann að klikka á okkur. Það er svona fáránlega erfitt að fá þjálfara og nú er búið að skipta hópnum hans síðan í fyrra og koma þeim fyrir í trompfimleikum. KEB verður ekki hress að heyra það. Það nefnilega gleymdist að hringja í okkur til að ræða málin svo ég var að hringja áðan. Jú sko æfingar byrjuðu í síðustu viku - takk fyrir að láta vita. Honum þykja áhaldafimleikarnir svo miklu skemmtilegri þó tromp...

Gígómegalisti

Var að aðstoða dóttur mína með hluta af heimavinnunni hennar. Það er svo lítil heimavinna fyrir vikuna að hún klára hana á 30 mínútum. En við vorum að gera svona smá aukaverkefni. Einhver uppbyggingastefna í gangi í skólanum og foreldrar beðnir um að ræða við börnin um hlutverk foreldra og barna á heimilum. Krakkarnir eru svo búnir undanfarið að ræða við kennarann sinn um hlutverk nemenda og kennara í skólum. Allt í einu segir hún "æ já - það kemur svona gígomegalist einhver fyrir ávaxtabitanum" Þau fá ávaxtabita í áskrift sem nesti í skólanum ef fólk velur það fyrir börn sín. Ég brosti og spurði, "meinarðu til að borga?" já einmitt það var ástæðan. Getur kannski verið að kennarinn hafi sagt GÍRÓSEÐILL? Já einmitt - það var það sem hún sagði - mamma hættu að hlæja - EKKI SKRIFA ÞETTA NIÐUR! Vonda mamma - skrifaði þetta á blaðið sem við vorum að skrifa á hlutverkin til að muna þetta ágæta orð. Í gær hittum við BH fólkið sem við umgengumst svo mikið sem unglingar. Hol...

Skömm

Ég er svo hneyksluð á ríkinu að semja ekki við ljósmæður. Það er alveg vandræðalegt hversu mikilvæg typpi eru. Eða þau hljóta bara að vera svona mikilvæg fyrst störf karla eru almennt metin hærri til launa en störf kvenna. Fjármálaráðherra bara svo sorry að geta ekki leiðrétt laun ljósmæðra vegna efnahagsástandsins. Þessi sömu rök voru víst notuð í góðærinu gegn því að hækka laun. Þá vildu þeir ekki að það færi einhver launahækkanaskriða af stað skilst mér. Hvenær á eiginlega að hækka laun? Sko önnur laun en ráðherra og þingmanna, alltaf nægur peningur til að tryggja þeirra hag með feitu launaumslagi og svo góðum eftirlaunum fyrir greyin. Það er skömm að því að leiðrétta ekki laun ljósmæðra því þær hafa sex ára háskólamenntun en fá hærri laun ef þær vinna sem hjúkrunarfræðingar sem útskrifast eftir fjögurra ára nám. Ljósmæður taka þessi fjögur ár hjúkrunarfræðinnar og bæta svo við sig tveimur árum í viðbót og við það skerðast launin þeirra. Ég er bara ekki á ná þessu. Nema þá að það sk...

Vonda mamma!

Orðin frekar pirruð á heimilisfólkinu hérna. Það er alveg sama hvað ég tuða það gerist lítið nema ég geri það sjálf. Í gær bað ég KEB 2x um að koma með nestibox og tilheyrandi úr töskunni sinni og var svarið já í bæði skiptin. Þegar ég fór að sofa í gærkvöldi tók ég eftir því að hvorugt þeirra hafði skilað þessu til mín. Þannig að ég ákvað að þau færu bæði tvö með tóm og skítug nestisbox í skólann. Í morgun fannst mér að sjálfsögðu ómögulegt að þau yrðu svöng í allan dag. Svo ég tilkynnti þeim að heppna ég þyrfti ekki að sjá um nesti þennan morguninn því engin ílát væru fyrir matinn. Ef þau teldu sig þurfa nesti mættu þau sjálf þrífa boxin og brúsana og smyrja ofan í sig nesti. Næst verða þau ekki svo heppin - næst fá þau að vera svöng með tóm og skítug box. Þau sáu um sig sjálf í morgun og ég sá að það fyrsta sem KEB gerði er hann kom heim í hádeginu (eyða í stærðfræði AGAIN) var að rífa nestisdótið upp úr töskunni og ganga frá því :o) Það mætti halda að það væri vor en ekki haust. Bú...

Sleðahundaungi

Við BH ákváðum að fara í Árbæinn og fá okkur göngutúr með hundinn og ávextina, eins og BH orðaði það svo skemmtilega. Að venju nennum við eiginlega varla að plana mikið þó tímamót séu. Í dag eru dálítið mjög rosalega mörg ár síðan við fórum að vera par. Kannski við aulumst til að gera eitthvað spes í haust í tilefni þess en eftirmiðdagurinn var ferlega notalegur og allir glaðir. Fórum í gönguferð hjá stíflunni og þar í kring. Það var svona okkar göngutúr fyrir dálítið mjög rosalega mörgum árum síðan, þar eð hvorugt okkar var með bílpróf. Hjólin voru reyndar mikið notuð líka - mjög mikið. Er við röltum þarna eftir göngustígnum, sammála um að mikið hafi gróið þarna og breyst á þessum heilmörgu árum, mættum við mæðginum á hjólum. Guttinn hafði orð á því við móður sína að þarna væri svona sleðahundaungi. Ronja verður ekki kölluð annað en það hér eftir ef fólk spyr hvaða tegund hún sé. Svo vorum við hjónin bara grand á því og fórum á Kenny Tucky og splæstum mat á liðið. Og allir eru vel sad...

Velkomin

Þegar ég býð gesti velkomna til mín þá klíni ég ekki kæfu í hárið á þeim, helli ekki ógeðsdrykk upp í þá, bindi þá ekki fasta við ljósastaura og læt þá gera samfarahreyfingar, garga ekki ókvæðisorð að þeim. Í stuttu máli þá reyni ég ekki eftir fremsta megni að niðurlægja þá eins mikið og ég get. Í Kópavoginum, og sennilega víðar, er þessu öfugt farið. Sá þetta á mbl áðan. Krakkarnir í Menntaskólanum í Kópavogi vildu meina að með busun á nýnemum væri verið að bjóða þá velkomna og sýna þeim hvernig skólinn er???? Er ekki allt í góðu með þessa krakka? Má ég þá heldur bara vera heima ef þetta eru móttökurnar! Þegar ég var busuð í gamla daga þá skemmtum við okkur vel - það var ekki farið mjög illa með okkur, smá túss í andlitið og farið á Þingvelli og busarnir settir í réttir eins og rollur. En svo voru kökur og kleinur er heim var komið aftur í skólann. Þar fór allt vel fram og enginn var minni maður á eftir, hvorki busar né eldri nemar. Held að svona grófar busavígslur séu ekki til eftir...

Heiðarleg - dónaleg?

Það er alltaf þessi fína lína þarna á milli. KBB var að koma heim úr skólanum og er hún gekk inn í stofu og sá móður sína sitja við tölvuna - kom svona lágt vvaaa hræðsluóp. LBK: Er ég ekki fín? KBB: Nei LBK: hvað meinarðu - vertu ekki svona leiðinleg KBB: Hvað gerðir þú við aumingja hárið á þér? Fór í klippingu í morgun. Var svona búin að hugsa hvernig ég vildi sirka hafa hárið á mér. En hugsaði svo á leiðinni (allt of sein), kannski ætti ég bara að dekkja það meira en síðasta vetur - hmm. Lagði svo á vitlaustum stað, fyrir utan gamla Nóatún og hljóp að Kjarnanum. Uppgötvaði rétt tímanlega að ég var ekki á leiðinni í Kjarnann. Þá er nú gott að búa í litlu bæjarfélagi því ég skaust bara yfir götuna og þá var ég komin á áfangastað. Við spjölluðum aðeins saman og urðum sammála um að klippa hárið eins og ég var búin að hugsa það. Dekkja það svo dálítið - meira en venjulega. Er hún var búin að sleikja öllum strípum á sinn stað settist ég í sófann með álpappírinn á hausnum út í allar áttir ...