Morgungangan mín farin fyrir lítið - drengurinn vill svo gjarnan losna við móður sína úr útburðinum. Spurði hvort hann mætti ekki bara sjá um þetta sjálfur. Þetta er eitthvað svona sjálfstæðismál. Jú jú minns ekkert óhress með að sofa klukkustund lengur á morgnana og drengurinn sennilega nokkuð sáttur við að losna við morgunfúlu mömmuna. Sagðist nú samt hafa verið dálítið einmana í morgun en gekk bara vel, ekki við öðru að búast.
Þannig að nú drifum við okkur hjónin hérna út í WC, báðum mál að fara að hreyfa okkur :o) Verð samt að viðurkenna að okkur leið pínulítið eins og við værum með keðju og kúlu fasta við fæturna. Rándýrt og ekki svo merkileg aðstaða og ekki svo merkileg stundatafla heldur sem þeir bjóða hér uppá. Svo segja þeir bara JÁ EN ÞÚ GETUR NÚ ALDEILIS NOTAÐ ALLAR HINAR STÖÐVARNAR LÍKA. Vei - ég bý bara hér og ætla að vera hér, ef ég vil keyra í Laugar þá kaupi ég mér kort þar, ef ég vil keyra til RVK í líkamsrækt þá kaupi ég mér bara kort þar. Ég kunni betur við þau í Toppformi, kannski gömul tæki og salurinn svona redding en miklu miklu betra andrúmsloft og svona heimilislegt. En við ætlum að prófa þetta og vonandi verðum við bara spriklandi ánægð í spriklinu. Ég nota alla vega sundlaugina og hver veit nema ég dragi Magneu eða Helenu með mér í Laugar einn daginn bara til að fá alvöru stofnana fílinginn. Belja á bás (hlaupabretti) með öllum hinum hundrað í röðinni :o) Kannski maður noti sér stundatöfluna þar sem er öllu álitlegri en hérna uppi í sveit.
Verð vonandi alla vega fitt eftir að hafa notað aðstöðuna. Fer þá Skinny Dipping í stað Chunky Dunking :o)
Skoppa

Ummæli