Fara í aðalinnihald

Haustið

Er að koma börnunum mínum að í tómstundum fyrir veturinn. Karlotta heldur áfram að læra á fiðluna sína og skellti sér í fimleika hjá Ármanni því ekki voru þær neitt að gera fyrir hana hjá Aftureldingu í fyrra. Bara klúður. Og svo ætlar hún að prófa að vera í sundi líka núna fyrir áramót. Þetta hljómar voða mikið fyrir 9 ára stelpu - ég minni á að hún er stór og kraftmikil. Og fimleikarnir hjá Ármanni eru færri tímar á viku en hjá Aftureldingu í fyrra. Þannig að sundið kemur í staðinn fyrir þá tíma.

Kjartan er byrjaður að fara í tónlistarskólann og æfa á klarinettið en eitthvað ætlar Ármann að klikka á okkur. Það er svona fáránlega erfitt að fá þjálfara og nú er búið að skipta hópnum hans síðan í fyrra og koma þeim fyrir í trompfimleikum. KEB verður ekki hress að heyra það. Það nefnilega gleymdist að hringja í okkur til að ræða málin svo ég var að hringja áðan. Jú sko æfingar byrjuðu í síðustu viku - takk fyrir að láta vita. Honum þykja áhaldafimleikarnir svo miklu skemmtilegri þó trompið sé gaman líka. Sjáum til hvað drengurinn segir - hann skellti sér á frjáls íþrótta æfingu með vinum sínum. Viss um að Hlynur verður glaður að sjá hann aftur. Þjálfarinn dauðsá eftir honum þegar hann hætti 9 ára gamall. Hann er nefnilega sleipur strákurinn - það er keppnisskap í honum og hann á auðvelt með að fara eftir leiðbeiningum þjálfara.

Svo hringdu þeir hjá Mogganum áðan og buðu honum að taka götuna hérna við hliðina á okkur. Það er aðeins minna en hann er að taka núna en þá getur hann gert þetta sjálfur. Við ákváðum að hann gerði það bara - þá þarf ég ekki alltaf að fara með honum. Held að það sé kominn tími á það því við BH erum alveg á sitthvorri klukkunni hérna. Hann er að fara miklu seinna að sofa en ég og það er frekar fúlt til lengdar. Og þegar ég horfi á sjónvarpið lengur en venjulega þá er ég samt sofnuð yfir þáttunum, svo þetta er farið að vera svona mátulega pirrandi. En samt þessi fíni göngutúr og það kemst hratt í vana að vakna svona snemma. Maður nýtir daginn svo rosalega vel. Nema þegar ég er að sofna standandi með bauga niður á tær - sem er u.þ.b. á hverjum degi.

Er eitthvað að þykjast hérna að byrja á þessari BA ritgerð - vona að ég sé nógu hörð á sjálfa mig til að sitja við og lesa og lesa. Svo þarf ég að tala við kennarann aftur og athuga hvort hann hafi yfirleitt tíma fyrir svona slugsa ennþá.

Fór áðan í Perluna - sá auglýstan 66° Norður og skó markað þar. Fékk þessa fínu útivistarúlpu á dömuna og flíspeysu, bæði á lítinn pening. Mjög glöð með þessi kaup, þær eru svo dýrar þessar úlpur á fullu verði. Fékk því miður ekki fyrir KEB - en hann á góða regnúlpu sem auðvelt er að klæða sig vel undir, og svo dúnúlpan síðan í fyrra - það verður látið duga þar til annað kemur í ljós.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...