Orðin frekar pirruð á heimilisfólkinu hérna. Það er alveg sama hvað ég tuða það gerist lítið nema ég geri það sjálf.
Í gær bað ég KEB 2x um að koma með nestibox og tilheyrandi úr töskunni sinni og var svarið já í bæði skiptin. Þegar ég fór að sofa í gærkvöldi tók ég eftir því að hvorugt þeirra hafði skilað þessu til mín. Þannig að ég ákvað að þau færu bæði tvö með tóm og skítug nestisbox í skólann. Í morgun fannst mér að sjálfsögðu ómögulegt að þau yrðu svöng í allan dag. Svo ég tilkynnti þeim að heppna ég þyrfti ekki að sjá um nesti þennan morguninn því engin ílát væru fyrir matinn. Ef þau teldu sig þurfa nesti mættu þau sjálf þrífa boxin og brúsana og smyrja ofan í sig nesti.
Næst verða þau ekki svo heppin - næst fá þau að vera svöng með tóm og skítug box. Þau sáu um sig sjálf í morgun og ég sá að það fyrsta sem KEB gerði er hann kom heim í hádeginu (eyða í stærðfræði AGAIN) var að rífa nestisdótið upp úr töskunni og ganga frá því :o)
Það mætti halda að það væri vor en ekki haust. Búin að vera úti í garði í allan dag. Slá grasið, taka niður rauða skrautið eftir hátíðina síðustu helgi, róta í beðum aðeins o.s.frv.
Ronju þykir þetta nú ekki slæmt fá að vera úti allan daginn, kvartar ekki mikið. Svo er bara svo ferlega fínt veður - sól og blíða. Ég sem hélt að það myndi rigna þar til snjórinn tæki við. Þannig var það í fyrra eftir mjög gott sumar.
KEB bað mig um að kíkja á hjólið sitt - eða pabba sinn. Keðjan eitthvað í messi hélt hann. Þegar ég svo athugaði málið sá ég að aftara dekkið var laust. Nú velti ég því fyrir mér hvort einhver FÁVITINN í unglingadeildinni hafi losað dekkið til að vera fyndinn. Eða hvort skrúfan hafi losnað smám saman. Hef aldrei nokkurn tímann lent í því að svona skrúfa losni með tímanum svo ég eiginlega geri ráð fyrir að eitthvað illa innrætt grey, sem á rosalega mikið bágt, hafi losað þetta. Vil samt ekki trúa því!
Later

Ummæli