Það er alltaf þessi fína lína þarna á milli.
KBB var að koma heim úr skólanum og er hún gekk inn í stofu og sá móður sína sitja við tölvuna - kom svona lágt vvaaa hræðsluóp.
LBK: Er ég ekki fín?
KBB: Nei
LBK: hvað meinarðu - vertu ekki svona leiðinleg
KBB: Hvað gerðir þú við aumingja hárið á þér?
Fór í klippingu í morgun. Var svona búin að hugsa hvernig ég vildi sirka hafa hárið á mér. En hugsaði svo á leiðinni (allt of sein), kannski ætti ég bara að dekkja það meira en síðasta vetur - hmm.
Lagði svo á vitlaustum stað, fyrir utan gamla Nóatún og hljóp að Kjarnanum. Uppgötvaði rétt tímanlega að ég var ekki á leiðinni í Kjarnann. Þá er nú gott að búa í litlu bæjarfélagi því ég skaust bara yfir götuna og þá var ég komin á áfangastað.
Við spjölluðum aðeins saman og urðum sammála um að klippa hárið eins og ég var búin að hugsa það. Dekkja það svo dálítið - meira en venjulega.
Er hún var búin að sleikja öllum strípum á sinn stað settist ég í sófann með álpappírinn á hausnum út í allar áttir og náði mér í Nýtt líf nýjasta tölublaðið. Og þar fékk ég staðfestingu á því að ég væri nú aldeilis að gera rétt. Brúnkur eru nefnilega að taka völdin af ljóskunum. Og hvað á maður annað að gera ef maður can´t beat them - jú maður join them!
Í blaðinu var grein eftir karlkynshöfund sem hélt ekki þvagi yfir Angelinu Jolie. Verð að viðurkenna að ég skil hann vel - mér hefur alltaf þótt hún alger töffari. Hann vildi meina að ljóskurnar með Marilyn Monroe í broddi fylkingar væru óðum að víkja fyrir ofuklókum brunettes. Svo ég prófa þetta núna næstu vikurnar og sé til hvort ég lýsi hárið aftur næst, geri það örugglega einn daginn þótt síðar verði!
Dóttir mín verður alltaf frekar pirruð er ég breyti svona til - hún enn öðru hvoru að tuða yfir því að ég klippti hárið stutt þarna um árið. Hef hana reyndar grunaða um að verða ekki skárri þegar hún hefur aldur og leyfi til að breyta og bæta seinna.
Later

Ummæli