KEB var að ræða atvinnumálin einn morgunin er við mæðgin röltum yfir í næstu götu til að koma blöðunum í lúgur hjá fólki.
Skildi ekki þetta atvinnuleysi, fólk gæti nú alveg fengið vinnu ef það vildi. Það vantaði nú alltaf fleiri blaðbera t.d. Ekkert mál að fá vinnu við blaðaútburð. Ég vildi nú meina að það væri ekki gott ef pabbinn á okkar heimili myndi missa vinnuna og færi í blaðaútburð. Það væri ekki nóg til að halda uppi okkar fjölskyldu lengi. Og sagði svo að það að bera út blöð væri ekki nóg til að brauðfæða heila fjölskyldu!
Ekkert mál - við kaupum bara fisk. Fljótur að snúa út úr því svona kl. 6 á morgnana!
:o)

Ummæli