Hendi stundum inn myndum hérna... m.a.s. af mér sjálfri. Nenni sjaldnast að breyta þeim - geri það nú samt stundum. En helsta ástæðan fyrir að ég geri það ekki er leti - ég nenni því ekki. Vil bara skrifa það sem mig langar að segja og hendi inn myndum af því það er gaman að hafa þær með. En nú sé ég að það er enn betri ástæða til að sleppa því að eiga við myndirnar og nú held ég mig við þessa skýringu:
Yup - ég er ekki löt, ég þekki sjálfa mig og það er full ástæða til að óttast að ég gæti týnst einn daginn... bara af því ég man ekki hvar eða hver ég er, fór út í náttúruna og rata ekki tilbaka, fór til útlanda og rata ekki tilbaka - eða eitthvað bara... svo þetta er ástæðan fyrir því að ég sleppi þvi að edit-a allar myndir af mér ;)
Ég vil að það sé rétt nafn á legsteininum þegar þar að kemur.

Ummæli