Hér sátu þær dóttir mín og Sunna, vinkona hennar, að hlýða hvor annarri yfir það sem þær eiga að kunna áður en þær fermast. Þær eiga að skila þessu inn á morgun. Það var ekki hægt að sjá eða heyra annað en að þær skemmtu sér ágætlega yfir þessu. Með allskonar kerfi og aðferðir til að muna allt saman. M.a.s. búnar að búa til smá lag til að muna röðina á boðorðunum, virtist virka ágætlega.
Ég sat hérna smá stund í stofunni, var að búa til afmæliskort, og hlustaði á þær og henti inn nokkrum hóstviskuorðumhóst. Ég var alla vega ekki að taka þátt í fíflaganginum í þeim, ég geri ekki svoleiðis... bara ekki.
Verð að viðurkenna að ég missti mig smá þegar 14 ára dóttir mín spurði "mamma, finnst þér ekkert kaldhæðnislegt að boðorð númer sex skuli vera "þú skalt ekki drýgja hór"?"
Hún er greinilega ekki alveg jafn saklaus og hún vill vera láta þegar karl faðir hennar er með djók á takteinum - eða hún hefur tekið vel eftir!
Later

Ummæli