Fara í aðalinnihald

Spennandi verkefni

Að venja nýjan fullvaxinn, ógeldann, rakka á heimilið er góð skemmtun :o)

Þau eru svo fyndin hérna. Þeim er haldið aðskildum innandyra, ekki að ástæðulausu. Búin að færa búrið hans Leloo hérna í holið. Hann hefur fengið að vera mest laus hérna í íbúðinni á meðan hin tvö eru úti eða inni í forstofu. Nú er ég að reyna að hafa hann aðeins í búrinu á meðan Ronja og Úlfur eru laus í kringum hann.

Gengur merkilega vel finnst mér. Þau svona aðeins létu vita af sér hérna áðan, endaði þannig að ég lokaði þau aftur inni. Hleypti þeim svo út stuttu síðar og þau nenna ekki að skoða hann mikið né urra neitt. Slappa af hérna hjá mér frekar og láta hann eiga sig. Það er heilmikill sigur finnst mér. Öll pollróleg... svona eins og hægt er.

Fer með þau út að ganga á eftir. SBK kemur með mér. Ekki hættandi á að vera ein með þrjá hunda sem gætu tekið upp á því að ræða málin í fullri alvöru. Alla vega ekki svona öfluga hunda.

Í gær fór ég með Olgu og Rósu á Helgafellið. Gengum gilið í stað hefðbundinnar leiðar. Verulega hressandi og skemmtileg ferð í góðra vinkvenna félagsskap. Hundarnir hlupu lausir í tæpa tvo tíma og skemmtu sér vel. Ég tók bara Leloo með mér, tók ekki sénsinn á að fylgjast með þremur gerpum hlaupandi lausum í hrauninu. Hefði sennilega gengið vel samt, en betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Leloo og Karkur þurftu aðeins að byrsta sig, bara svona til að sýna að þeir væru í raun miklir karlar (rakkar) þrátt fyrir ungan aldur. En þeir hlupu samt bara saman og skemmtu sér ágætlega - lenti ekkert saman. Svo ég er verulega ánægð með gaurinn hann Leloo. Hann virðist vera í góðu jafnvægi og geðgóður að upplagi.

Þetta verður spennandi - vonandi gengur þetta það vel að við getum haft þau öll þrjú án þess að hafa áhyggjur af átökum. Heimsóknir á dýraspítalann er nefnilega ekki svo góð skemmtun.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...