Fara í aðalinnihald

Dauði Kauði

Vil bara koma því að - ég verð í rúminu á morgun. Þetta er búið að vera laaaangur dagur. Búin að keyra í allan dag, keyra jafnmikið og ég keyri á tveimur vikum venjulega. En þetta er búin að vera góður dagur, fyrir utan að ég byrjaði klukkan fimm í morgun á því að keyra BH til Keflavíkur í flug. Hann er farinn til Belgíu fram á laugardag, stuttur túr.

Gekk við Stórhöfða í Hafnarfirði með Olgu og Rósu með hundana. Dísusskvísus, eigum við að ræða eitthvað hvað þessir togarar mínir eru öflugir ? Ég er með þokkalegt tak í lærunum og rassinum, ég sem fær aldrei harðsperrur eftir þolþjálfun og hlaup. Þetta voru alvöru styrktaræfingar. Eftir að hafa brunað heim og aðeins fengið mér að borða rauk ég aftur út og nú í Nauthólsvík. Hljóp fimm kílómetra með Olgu og Jökli, öll með hunda. Mínir togarar voru að vinna vinnuna sína og ég mátti hafa mig alla við. Ég hleyp hægar en bæði Olga og Jökull (alltaf síðust alls staðar) svo þau voru öflug mín tvö. Úlfur hafði sérstakan augastað á Hrímu sinni, svo óskaplega spennandi skvísa sem hann langaði svo mikið að vera hjá.

Þrátt fyrir að það var hávaða rok í allar áttir eins og siður er á Íslandi, þá hljóp ég þetta á mettíma... 25:52 - sko mínum mettíma - þau voru um mínútu á undan mér.

Var svo heppin að rétt eftir að við vorum búin hringdi skottan mín og hún var búin þarna í Nauthólsvík með krökkunum í Nýsköpunarkeppninni. Ég gat þannig brunað beint heim í stað þess að bíða í klukkustund eins og ég hafði áætlað.

Verulega góður dagur en hugsa að ég eigi eftir að blóta í fyrramálið þegar ég þarf að standa upp úr rúminu !

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...