KBB fékk frí í skólanum í dag og á morgun. Hún hélt í morgun sem leið lá í Háskólann í Reykjavík. Þar tóku aðstandendur Nýsköpunarkeppni grunnskólanema á móti henni og 39 öðrum snillingum. Þau voru valin úr hópi 1872 umsækjenda. Hennar uppfinning tengist hundahaldi, hvað annað ? Betrumbættur flexitaumur, svona útdraganlegur taumur fyrir þá sem ekki vita. Hún vill reyna að koma í veg fyrir að hundurinn kippist til þegar taumurinn er skyndilega búinn og hundurinn enn að hlaupa á fullu.
Ég er ekki svona snjöll, en hef alltaf notað röddina bara og talað við kvikindið á ferðinni. Þegar ég veit að bandið er að verða búið kalla ég "Róóóleg" og þau eru farin að læra að betra er að hægja á sér þá. Annars notum við þessa tauma lítið. Það er ekki nema við BH séum löt og viljum leyfa þeim að hreyfa sig og þefa um allt á meðan við röltum, þá notum við þá.
Það skapaðist skemmtileg umræða á Facebook síðunni hennar Alexöndru um þessa tauma um daginn. Skemmtilegast þótti mér að lesa athugasemdir frá fólki sem hraunuðu yfir notkun þessara tauma með "mér finnst" rökum. En enduðu svo á að segja að þau notuðu þessa tauma einstaka sinnum sjálf. En sko þau KUNNA að nota þá og PASSA sig. Annað en sauðsvartur heimskur almúginn. Við BH hlógum okkur vitlaus við að lesa ósköpin :o)
KEB stendur sig vel í skólanum. Duglegur að nota allan frítíma í skólanum til að gera heimavinnu og klára þegar hann hefur lausa stund. Þær eru ekki margar lausu stundirnar sem hann hefur þessa dagana. Hann er svo einbeittur að ná markmiði sínu í fimleikunum og gerir allt til að ná því. Markmiðið er landsliðið í trompfimleikum. Hópurinn hans fær að æfa með "stóru" krökkunum. Það er mikil hvatning en líka svakalega mikil vinna. Hann er að æfa rúmlega 13 tíma á viku. Og það á kvöldin og svona fjölskylduvænt og menntaskólavænt eða þannig. Þetta verður þreytandi fyrir hann til lengdar en ef hann er áfram duglegur að nýta tímann vel til að læra þegar hann getur þá verður þetta hægt.
Later

Ummæli