Fara í aðalinnihald

Gleðileg Jól

Mér er búið að líða svona eins og drengnum í þessu myndbandi allan desember.

Við hjónin ákváðum að taka gjafirnar til krakkanna með okkur í Álfheimana í kvöld. Vorum viss um að KBB myndi kannski ná að fatta hver hennar gjöf yrði. Tókum enga sénsa því við vildum að hún vissi EKKERT.

Við urðum ekki fyrir vonbrigðum... pabbinn sagðist hafa beygt af þegar hún tók upp gjöfina sína. KEB fékk hrikalega spennandi stráka jólagjöf og var alsæll. Við náðum honum líka, hann verður sæll og glaður allt árið að gera minningar ódauðlegar :)

KBB fékk "bara" flettibók, þurfti að lesa blaðsíðu eftir blaðsíðu til að uppgötva hver hennar gjöf er. Og það var óborganlegt þegar ljósið var að kvikna hjá henni. Hún brosir allan hringinn og það er hætt við að hún eigi eftir að telja dagana til 4. febrúar.

Þrátt fyrir að hafa dissað dáldið upplifunarkassana sem auglýstir hafa verið fyrir jólin þá var hún ansi hreint spriklandi lukkuleg með "action" pakkann sinn. Hún fékk nefnilega ekki harðan pakka í ár, heldur ekki mjúkan, meira svona upplifun - erfitt að pakka því inn.

Litla drottningin ætlar að skella sér á skíði á Ítalíu 4. febrúar með mömmunni sinni, afa, ömmu, móðursystur og afabróður. Lái henni hver sem vill að hún sé farin að telja niður :)

Svona eiga jólagjafir að vera... hitta beint í mark - það er svo gaman.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...