Hér er reglan og rútínan að fara í gang. KEB hóf skólagöngu sína í MR í gær. Ekki hægt að segja annað en að hann sé sáttur og að upphafið lofi góðu. Metnaðurinn í hámarki að gera vel i vetur. Hann stefnir á landsliðið í trompfimleikum. Á góða möguleika ef hnén á honum fara að lagast. Svo er stefnt á miðpróf í tónlistinni líka. Þannig að hann verður á kafi blessaður í vetur og spurning hvernig plön þróast.
Litla drottningin okkar fór í morgun skólann, hennar fyrsti skóladagur. Held að henni hafi ekki líkað það svo illa. Hún ætlar að sjálfsögðu að spila í vetur og jafnvel athuga með körfuboltaæfingar, prófa þær. Skátarnir verða á dagskránni líka og ég yrði ekki hissa þó hún yrði reglulegur gestur í hesthúsinu. Svo henni ætti ekki að leiðast í vetur.
Við BH erum byrjuð að undirbúa veturinn. Aðeins að hita hundana upp eftir sumarfrí. Þau eru búin að hafa það notalegt síðustu tvo mánuði. Ansi heitt til að gera eitthvað af viti með svona loðbolta. Ekki eins og þau klæði sig úr pelsinum. Þó þau geri sitt besta og losi sig við undirfeldin að einhverju leyti. Mikil gleði hjá okkur að ryksuga það upp úr gólfinu.
Svo ákváðum við að skrá okkur á skotvopnanámskeið. Byrjuðum á fyrra námskeiðinu í gær. Veiðikortanámskeið frá kl. 17 - 23. Próf í lokin - svo því er lokið. Held að ég hafi náð því en það verður að koma í ljós. Erfiðara námskeiðið er eftir. Það er skotvopnaleyfið sjálft. Skil ekkert í þessu og hef enga tilfinningu fyrir efninu. Lofar ekki góðu. Og ég (líkt og fyrir hitt námskeiðið) er allt of sein að byrja að lesa bókina og kynna mér þetta. Ber því við að í ágúst er búið að vera allt of gott veður. Hef bara ekki haft mig í að hanga inni og lesa. Má sjá eftir því núna samt. En það góða er að ég má taka prófið aftur. Þannig að ég sit námskeiðið og les eitthvað - fæ smá innsýn og þá ætti þetta að smá síast í kollinn á mér svo ég nái prófinu á endanum.
Hlakka mest til að fara á skotsvæði og æfa hittni - þetta er ferlega gaman. Eins gott að umgangast þetta af virðingu og yfirvegun, ætla ekki að lenda i einhverri vitleysu.
Ég er enn að hlaupa að sjálfsögðu, það gengur ágætlega. Komin með besta tíma á 5 kílómetra nálægt 27:57 mínútum. Það var m.a.s. með því að ganga fyrstu 300 metrana og smá stoppi fyrir hund að gera þarfir sínar. Svo ég er sátt. Er líka farin að huga að fjölbreyttari líkamsrækt. Ganga á fjöll (fell alla vega) aftur og eitthvað fleira sem mér dettur í hug. Kemur í ljós.
Later

Ummæli