Fara í aðalinnihald

BííííB

Þá er níu vikna plani mínu lokið hér með. Fór og hitti fólk frá Sleðahundaklúbbnum áðan við Ánanaust. Við BH ákváðum að nota tækifærið og hlaupa með hundana í stað þess að línuskauta eða hjóla. Ég var bara með Ronju og BH tók Úlfinn. Hún togaði sæmilega á meðan hún fann smjörþefinn af þeim tveimur fyrir framan. En þegar dró meira í sundur með okkur var hún hundlöt og ég fékk að hafa fyrir þessu bara ein. Ég hljóp 6,5 km og fannst ég bara nokkuð góð og ánægð með mig. En þegar BH kom þá hafði hann hlaupið rúmlega átta km. Olga hafði svo skráð rúmlega níu á Nike+ svo ég sá að ég á enn langt í land. Er að spá í að loka bara á þau og hætta að sjá hvað þau eru klár. Ignorance is a bliss er sagt og ég er farin að skilja af hverju :o)

Eða ég reyni bara að vera klók og halda áfram og vera ánægð með sjálfa mig. Held ég geri það bara, læt þau ýta mér áfram þó þau viti ekki af því. Er ekki að standa mig nógu vel á nammivaktinni. Líður varla sá dagur að ég smjatti ekki á einhverju. Er nokkuð dugleg á daginn en missi mig oftar á kvöldin. Fékk mér smá sykur eftir matinn, comon það var fiskur! Endaði svo í ís og látum með fólkinu eftir hlaupin. MMM íííís, hver getur staðist smá ís :o)

Nú hlakka ég til að byrja á næsta plani - það á að koma mér í 8 km. Mun taka mig þrjár eða fjórar vikur, kemur í ljós. Kannski verður það styttri tími. Vona það, svo ég geti haldið dampi gagnvart hlaupagikkunum tveimur.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...