Fara í aðalinnihald

Running woman!

Af því allir hafa beðið spenntir eftir fréttum að hlaupagikknum þá tilkynnist það hér með að ég og loðnu hlaupafélagarnir mínir tókum æfingu tvö í dag samkvæmt áætlun. Mér er það sönn ánægja að taka það fram að þetta er EKKERT MÁL. Frábært að hafa svona gáfulega áætlun sem heldur aftur af manni svo maður sprengi sig ekki. Auðvitað er eina málið að byggja sig upp í rólegheitum. En ég veit að ég er að hlaupa aðeins lengur en prógrammið segir til um og er líka að lengja það í restina til að ná heim með því að hlaupa jafnt og þétt :o)

Nú er bara að sjá hvort fæturnir á mér verði jafn glaðir með uppátækið, eða kvarti sáran. Sjáum til - næsta run á föstudaginn :o)

Það má líka segja frá því að loðboltarnir eiga það til að vera full áhugasamir þegar ég hraða aðeins á mér. Hjá þeim er bara trítl gír og allt á fullt gír. Þetta er ágætis æfing fyrir okkur vinina að stilla saman strengi okkar - og ekki veitir af. Sérstaklega með Úlfinn, ég held í alvöru að kvikindið sé heyrnarlaust eða með svona ASH eins og KEB þarna um árið... Adaptive, selective hearing - á mannamáli "heyra bara það sem hann vill heyra".

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Run Lóa Run ! :) frábært hjá þér
HMS
Lóa Björk sagði…
hahaha - uppáhaldssetningin mín (ein af þeim alla vega) - nú hugsa ég bara þetta þegar ég fer út að skokka :o)

Og jú líka um að lífið sé eins og Konfektkassi... og maður veit aldrei hvað maður fær næst ;o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...