Það er jólalegt um að litast í Mosfellsbænum núna. Ég sem hélt í morgun að þetta yrði farið um kl. 15. Í dag var haldin Vorhátíð, skrúðganga með skáta í fararbroddi gekk að Lágafellsskóla þar sem var mikið fjör. Þau voru ansi blaut greyin þegar komið var að skólanum. Skátarnir sáu um að skemmta sér og gestum með hoppukastala og klifurturni. Græddu smávegis á fólki með því að selja þeim gotterí. KBB stóð vaktina fyrir okkur. Var fánaberi í fánaborginni. Hjálpaði svo til í allan dag í sjoppunni og hoppukastalanum. Hún vill koma því á framfæri við foreldra að þeir ali kvikindin í sín upp... bara smávegis. Skrúðgangan var sorglegri en ég hef nokkurn tíman áður upplifað. Við BH hlupum hér út í Bogahlíð til að troða okkur með. Ég var ekki tilbúin fyrr svo við gátum ekki verið með alla leið. Þegar við sáum þau koma og bættumst svo í hópinn þá tvöfaldaðist mannfjöldin nánast í göngunni. Skátarnir höfðu samt enn betur, voru fleiri en þeir sem gengu á eftir. Smá snjór á vorhátíðinni er nú engin ástæða til að leggjast í þunglyndi neitt.
Það komu nú ansi margir samt í skólann. Lágafellsskóli var að halda upp á 10 ára afmæli sitt í dag líka. Þar var allt opið fyrir gesti og gangandi og sjöttu bekkirnir voru með kaffisölu. Svo ég bakaði skúffuköku í gær og stóð svo vaktina í kaffisölunni seinnipartinn. Gat ekki látið KBB gera það sjálfa eins og ég hafði hugsað mér því hún var busy í fjáröflun hjá skátunum. Þannig að hún var að safna fyrir 7. bekkja ferð á næsta skólaári og safna fyrir ferð með skátunum seinna. Stefnan þar er sett á Japan eftir einhver ár. Það verður fáránlega dýrt svo það er eins gott að vera dugleg.
Klukkan 20 var ég bara tilbúin að fara að sofa, var þreytt eftir daginn. KBB er búin að vera óþreytandi að suða í mér að hún megi baka muffins... (helv... muffins æði). Mér hefur aldrei þótt gaman að baka muffins. Ég lét það eftir henni og var eitthvað að byrja þegar ég fór út í göngutúr með eiginmanni mínum og hundunum. Þegar við komum tilbaka var drottningin ekki byrjuð, var enn að bíða eftir að smjörið myndi mýkjast. Þannig að kl. 22:30 byrjuðum við að baka muffins saman mæðgurnar. Bara lítil uppskrift og ekki flókið. Þær heppnuðust svona ljómandi vel. Á meðan þær bökuðust græjuðum við kremið. Hrikalegt magn af smjörkremi á 16 muffins. Var ekki alveg að sjá okkur troða þessu öllu á greyin. Við skiptum þessu í tvennt og skelltum orange og grænu í sitthvorn helminginn. Svo voru teknar tvær rjómasprautur og við byrjuðum að kreista þetta á kökurnar. Og ekki var neitt verið að spara kremið því nóg var af því. Enduðum á að setja eitthvað af því í ísskápinn bara. En muffins kökurnar voru ROSALEGA FLOTTAR hjá okkur. Og af því að á miðnætti kom 1. maí var ákveðið að bjóða í miðnæturkaffi hér í Elleinum. Drengirnir komu og hjálpuðu okkur að smjatta á kökunum. Klukkan 00:00 var að sjálfsögðu sunginn afmælissöngurinn fyrir afmæliskarlinn sem orðinn er þúsundogfullt í dag. Skemmtum okkur vel yfir látunum í honum að velja tónlist og "dansa" með. Veltum því mikið fyrir okkur hvað var í hans kökum líka.
Eigum til í morgunkaffi á morgun líka - bæði muffins og skúffuköku og ostaköku... endalaust partý hérna :o)
Þar sem það eru fimm tímar rúmlega síðan ég var tilbúin að fara inn að sofa er ég að spá í að láta það eftir mér núna. Sérstaklega í ljósi þess að ég neyðist til að vakna snemma í fyrramálið því við erum að fara á Selfoss og eigum að vera mætt þar kl. 11 í fyrramálið !
Later

Ummæli