Fara í aðalinnihald

007 Licence to kill

Fór í gær með eiginmanninum og við völdum okkur sitthvorn haglarann - yup erum komin í hóp rednecks!

Fórum svo til Sýslumanns þar sem útbúið var fyrir okkur leyfi til að kaupa gripina - í þríriti. Allt eftir kúnstarinnar reglum til að allt sé löglegt og ekkert vafasamt í gangi.

Trítluðum í búðina og fengum að borga og brosa og taka herlegheitin með heim. Fór svo aftur í dag með eintak undirskrifað af seljanda til sýslumanns og fékk afhent skotvopnaleyfin okkar fínu. Leo hafði sett mark sitt á pappírana. Hann var í skottinu á bílnum, ég brá mér frá í smá stund og hann notaði tækifærið og dreif sig í mjúkt aftursætið til að hvíla sig. Þar voru pappírarnir sem ég var að passa að hafa slétta og fína. Hann búinn að setja gott loppufar á efra blaðið og svona aðeins krumpa þetta allt til. Ég gat ekki annað séð en að hann hafi lagt blessun sína yfir þetta. Hann er örugglega sáttur við hjálpartækin á veiðar. Viss um að hann telji sig færan um veiðarnar sjálfur, en ekki verra að hafa backup ef illa gengur.

Á þriðjudaginn var fékk ég veiðikortið sent í pósti. Þannig að nú er mér ekkert að vanbúnaði að drífa mig að finna eina af þessum sjaldgæfu rjúpum sem eiga eitthvað erfitt uppdráttar þetta árið. Þær eru sennilega þokkalega safe fyrir mér reyndar - þarf dáldið að æfa að hitta næstu tvær vikur!

Ég vil taka það fram að það er ekkert samhengi á milli vopnakaupa okkar og þess að við séum komin með leyfi fyrir skotvopnum og heimild til veiða og falls Gadhafi í dag. Ég kom ekki nálægt því.

Mrs redneck !

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Leo kjánaprik!
En þið eruð bara töffarar að vera komin með byssur. Spurning hvort maður þori með ykkur á skytterí, held við gætum öll verið í lífshættu.... eða amk allir í kringum okkur 2 :)
ORB
Lóa Björk sagði…
fólk spyr ítrekað hvort ein hefði ekki dugað... BH svarar því þannig að " nei ég verð að geta varið mig þegar hún er í ham" :o)

ástæðan er auðvitað að hann er töluvert armlengri en ég og örvhentur... eigum ekki samleið í byssumálum :o)

Þú heppin að vera með lager sem þú kemst í ;o)

Við verðum fljótt svo klárar með vopnin að drengirnir eiga ekki séns !

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...