Fara í aðalinnihald

Brjálað að gera á vorin

Ok komst að því að það var vesen að commenta á síðuna, en held ég sé búin að breyta því þannig að það ætti ekki að vera mál - vona það alla vega.

Það er svo mikið í gangi þessa dagana - eitthvað á hverjum degi. Tónleikar hjá Kjartani í gær og svo hjá Karlottu í dag, reyndar aftur á morgun því hún spilar með litlu strengjasveitinni líka. Semsagt þrír dagar í röð sem liðið á heimilinu mætir á tónleika, erum mjög menningarleg eins og ég er að reyna að koma að. Þarf ég að taka það fram að þau spila eins og englar og það er æði að sjá hvað þau eru dugleg. (smá hlutdræg hí hí)
Af tónleikunum í dag var hlaupið á bekkjarkvöld hjá Kjartani Elvari þar sem krakkarnir voru búnir að leggja hart að sér að búa til sýningarbása um öll Norðurlöndin. Kjartans hópur kynnti Danmörk fyrir lýðnum og var básinn þeirra veglegur. Þeir voru með marga hluti sem tengdust landinu, Kjartan hafði fengið hjá Hans afa sínum marga fallega hluti sem vöktu mikla lukku. T.d. kolastraujárn, hálmskó, Raf-steina og hálsfesti úr unnu rafi, o.fl. Amma Lilja klikkaði ekki heldur, lánaði drengnum útsaumaðan klukkustreng með myndum frá Danmörku og bakaði fyrir okkur vatnsdeigsbollur sem hún svo sprautaði súkkulaðirjóma inní, mmmm nammi. Þetta var glæsilegt hjá krökkunum í 6. bekk í Lágafellsskóla.

Var að keyra í dag að ná í Karlottu í fiðlutíma - já ég keyrði hana, hún hefur ekki tíma til að koma sér á staðinn sjálf, of stuttur tími á milli skóla og tímans - gaur næstum búinn að keyra á mig, hann virti ekki biðskyldu. Ég hef velt því fyrir mér undanfarið að það er eins gott að Íslendingar séu ekki með svona frjálsa vopnalöggjöf eins og í Ameríkunni landi hinna frjálsu. ég er alveg viss um að það væru þó nokkrir skotnir á ári í umferðinni. Hafið þið tekið eftir dónaskapnum og vitleysunni sem er í gangi þarna úti? Ég hef séð ýmislegt og trúi því ekki enn að sumt af því hafi gerst. T.d. síðasta vor þegar ég sat inni í stofu að læra fyrir próf og sá bíl ekið í veg fyrir annan hérna í Álfatanganum, gaurinn nauðhemlaði, rauk út úr bílnum þreif hurðina á bílnum fyrir aftan upp og dró bílstjórann út og fór að garga og öskra og hrinda honum til og frá. Fyrirgefðu en gerist svona bara hérna í Mosfellsbænum fyrir hádegi á virkum degi THINK NOT, en það gerðist nú samt. Mín hringdi bara á lögguna, sem reyndar kom aðeins of seint. Í sömu viku var ég að keyra í Grafarholtið og bílnum fyrir framan mig er ekið í veg fyrir bílinn þar fyrir framan og gaurinn leggur þvert á veginn og stoppar alla umferð til að rjúka út og garga og öskra á konuna í bílnum, hún hafði vit á að læsa bara og hafa allar rúður lokaðar. Ég bara spyr HVAÐ ER AÐ YKKUR FÓLK? Er fólk svona ægilega viðkvæmt þegar því finnst svínað á sig, eða einhver fer framúr eða eitthvað. Róið ykkur. Tók bara tvö svona dæmi, hef séð fleira svona.
Glæfraakstur er eitthvað sem þyrfti líka að taka alvarlega á, um daginn rauk einn á góðri siglingu af nýju brúnni inn á Vesturlandsveginn og honum lá lífið á greinilega því hann beið ekki eftir smugu heldur fór bara á milli tveggja bíla - sem sagt þrír bílar á tveimur akreinum. Hélt kannski að hann væri með dauðvona ömmu sína stórslasaða í aftursætinu, sem hefði kannski afsakað gaurinn, en sko spítalinn var í hina áttina. Hann var kannski pólskur og hélt að fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri væri næst. Og ef einhver ætlar eitthvað að fara að röfla um að undirskrifuð sniglist ekki beint á vegum borgarinnar (sem er rétt) þá vil ég meina að það sé munur á glæfraakstri og að keyra greitt :)

O&O
Lóa

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæ Hæ Skvís. Tóks ekki að blogga í dag hehe tók ekki eftir þess Anonymous dæmi þarna. Velkomin í bloggheiminn og ég skal reyna að halda aftur af velgjunni þegar þú ferð að tala um skólabækurnar :). Kem til með að fylgjast með þér hér. Set link á þig á síðuna mína. Kiss kiss Helga.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...