Heiða hringdi í mig á laugardaginn var og spurði hvort ég vildi föt af Hugrúnu fyrir KBB. Ójá takk, þvílík búbót, og sko nú er kreppa líka!
Daman fékk fullan svartan poka af fötum frá frænku sinni. Og hún passar í hverja flík núna strax. Nú getur litla daman mín verið eins og penelópa prinsessa og farið í nýtt dress á hverjum degi. Og hún er ekki lítið ánægð og algjör skvísa. Það er nú ekki leiðinlegt að eiga svona flotta frænku og erfa fötin hennar. Það er sjaldan sem ég þarf að kaupa föt á stelpuna. Það hefur nú bara verið svona þegar mamman er í bænum og sér eitthvað "must have".
Fór samt í smá jólaleiðangur í Kringluna í gær og fékk jólaföt á drottninguna. Það tók svo á að ég lagði mig kl. 16:30 þegar ég stóð varla í lappirnar lengur. Ég var vakin kl. 19 af hungruðu barni sem heimtaði mat. Ég legg mig ekki í korter - ekkert power nap hjá þessari konu - það er bara sofið almennilega eða sleppt því.
Jólapilsið var ekki alveg að gera sig - rennilásinn eitthvað ónýtur, fór og skilaði því í dag. Vildi ekki annað - tek enga sénsa á svona drasli. Fór og keypti annað pils sem ég sá í gær líka. Daman spriklandi ánægð með fötin sem hún fékk. Nú er drengurinn eftir - ekki vil ég að hann fari í jólaköttinn. Samdi við hann að nota gallabuxurnar sem hann keypti sér og svo kaupi ég á hann einhverja töffaraskyrtu eða eitthvað sparilegt við buxurnar. Fer í það eftir helgi. Jólavörurnar eru ekki komnar í búðirnar - allt fast í tolli eða einhvers staðar - enginn gjaldeyrir til að leysa þetta út!
Í fyrramálið verður aftur svona þrif laugardagur - allir látnir hjálpa til - allir búnir að fá tilkynningu og það verður engin miskun.
Later

Ummæli