Las frétt í mogganum í morgun um föður sem segist sannfærður um að tölvuleikir geti verið skaðlegir - haft skaðleg áhrif. Þessu komst umræddur faðir að þegar hann þurfti að fara með unglingsdrenginn sinn á sjúkrahús eftir að hann hné niður. Drengurinn hafði þá spilað í heilan sólarhring með vinum sínum tveimur einhvern netleik. Varla étið, drukkið né sofið. Ég er ekki viss um að tölvuleiknum sé um að kenna. Kannski foreldrar drengjanna hefðu átt að fylgjast pínu oggu ponsu betur með? Ég tel að tölvuleikir geti verið skaðlegir en það er á ábyrgð foreldra að kenna börnum sínum að umgangast þá. Láta ekki ung börn spila ofbeldisleiki, leyfa þeim ekki að hanga tímunum saman fyrir framan tölvuna o.s.frv.
Er það annars ekki á ábyrgð foreldra að koma börnum sínum til manns? Alltaf jafn fyndið þegar maður heyrir fólk kenna skólum og kennurum og þjóðfélaginu um ábyrgðaleysi, ókurteisi og kjánalæti barna sinna :o)
Later

Ummæli