Í gær tók litla drottningin það að sér að elda matinn. Púff - það er best að ég geri þetta bara því gikkurinn ég fékk í magann þegar ég heyrði matseðilinn. Jú sko mín fór með mömmu sinni í fiskbúðina og var alsæl þegar hún sá í glugganum auglýsta GLÆNÝJA LÍNUÝSU. Okkur vantaði einmitt ýsu. Hún ákvað samt að spyrja hvað er "línuýsa"? Hún tjáði manninum í fiskbúðinni að hún vildi ýsu, roð- og beinlausa og þegar hann spurði hvað hún vildi mikið þá svaraði hún "það veit ég ekkert" LoL
Öllu vanur spurði gaurinn hve margir væru í mat og svarið var fjórir. Vorum við sátt við 800gr. - kg. Og hann skellti sléttu (alveg sléttu) kílói á bakkann og allir sáttir.
Sko ég var ekki alveg að nenna þessum rétti gott fólk. Ég sótti dömuna í skólann í gær því hún missteig sig á sunnudaginn svo illa að hún var bólgin og haltrandi. Á leið frá skólanum í fiskbúðina var þetta rætt. Jú það er sko laukur LAUKUR ojj - mínar verstu martraðir í æsku við matarborðið (fyrir utan lifur *hrollur*) og svo til að toppa málið - PAPRIKA. Sorry finnst þetta bara ekki gott og fæ svona jakk tilfinningu og þið ættuð að sjá grettuna á andlitinu á mér á meðan ég skrifa.
KBB - jú mamma, það verður - bæði laukur og paprika
LBK - það er allt í lagi að skipta þessu út fyrir eitthvað ætt
KBB - NEI, sko ég borða þetta ekki heldur en þetta er bara gott mamma
LBK - nei sko, ekki gott og langar ekki í þetta - okei rauðlauk þá
KBB - nei venjulegan lauk
LBK - nei ég vil ekki svona... Ætla ekki að borða lauk og papriku
KBB - Mamma láttu ekki eins og smábarn
LBK - viltu labba heim ;o)
KBB - LoL - maaaammma - þú verður að smakka
LBK - ég kaupi mér bara eitthvað gott fyrir mig
KBB - nei mamma þú verður bara að borða allan mat.
Í stuttu máli sá sú stutta (sem er reyndar orðin ansi löng) um matinn og það heppnaðist ljómandi vel og allir borðuðu sig sadda - já og líka ég :o/ KEB kom seint heim (alltaf á æfingum) og borðaði því á eftir okkur hinum. Honum fannst systir sín ganga ansi hart fram um hvort maturinn væri ekki rosa góður. Skyldi ekki þennan áhuga hennar á því :o)
Áðan skelltum við okkur á tónleika í listasalnum - krakkarnir voru báðir að spila og stóðu sig svona glimrandi vel. KBB var að spila með strengjasveitinni og allt í einu er hún ekki lengur ein af litlu börnunum í hópnum. Þau spiluðu tvö lög og það gekk ljómandi vel. Krakkarnir eru frá 4-5 ára og uppí 11-12 ára að spila saman. Allir fá að spila með - svo krúttað að sjá þessi litlu! KEB var með þeim síðustu, spilaði með tveimur öðrum nemendum og svo kennarinn þeirra með. Þau spiluðu syrpu af íslenskum þjóðlögum sem útsett var af listamanni Mosfellsbæjar þetta árið - sá er klarinettuleikari sem ég man ekki nafnið á. Þetta var endalaust hjá þeim og rosa flott - klárir krakkar :o) Allir tónleikarnir gengu vel og allir vel æfðir og skiluðu sínu með glæsibrag. Bara flottir krakkar hérna í Mosfellsbænum.
KEB rauk í burtu þegar hann var búinn að spila - æfing í frjálsum að byrja, missti af fimleikunum í dag út af tónleikunum. Alltaf nóg að gera hjá honum en hann virðist samt ná að standa sig vel á öllum vígstöðvum. Hann kom svo heim um kl. 20 uppveðraður af því að það á að stofna afrekshóp hjá Aftureldingu. Það íþróttafólk sem nær ákveðnu lágmarki í sinni íþrótt kemst í þennan hóp og þið megið giska einu sinni hver ætlar að leggja sig allann fram um að verða einn af hópnum :o) Ef ekki á þessu ári þá næsta - það verður ekki hætt fyrr en hann kemst inn.
Hann keppti um helgina með fimleikahópnum sínum á móti á Akranesi - þau stóðu sig glimrandi vel - en komust ekki í sæti. Kepptu bara á trampólíni en mótherjarnir kepptu bæði á dýnu og trampólíni og fengu því fleiri stig. KEB sneri sér í tvo hringi í loftinu og lenti standandi og uppskar mikið klapp fyrir af áhorfendabekkjum, sem voru þó frekar daufir svona í heildina. Svo hann var alveg að gera góða hluti :o) Auðvitað ætla þau að taka þetta á næsta móti - þá verður dýnunni bætt við og vonandi gólfi svo fljótlega. Nú allt í einu er stefnan sett á gólf hjá mínum líka - til að ná í stig auðvitað. Hann er búinn að harðneita gólfinu hingað til og finnst það lítt spennandi tilhugsun því það er sko nefnilega dans he he. Sjáum hvernig það á eftir að ganga - held að hans sterku hliðar séu trampólínið og dýnan - ekki dansinn, en maður veit aldrei... Þetta eru hópfimleikar þannig að allir í hópnum keppa saman og verða þannig öll að gera sitt besta... sem þau öll gerðu líka :o)
Fór í göngu með hundana í kvöld - það er ekkert svona róleg kvöldganga með Ronju og Úlf spennt við sig. Nei það er sko eins gott að halda áfram - svo maður verði ekki dreginn á rassgatinu bara eftir göngustígunum. Úlfur er svo magnaður - picture this: "Úlfur fremstur og hallar svona fram eins og þegar maður byrjar að hlaupa af stað, Ronja við hlið hans en reynir að komast hjá því að toga mikið, meira svona skoppar með nefið og skottið upp í loftið því hún á jú heiminn. Ég aftast og halla afturábak til að veita honum smá viðnám og svo ég endi ekki á nefinu framfyrir mig".
O&O

Ummæli
kv. Maddamamma