Höfum farið undanfarin sunnudagskvöld í mat til mömmu og pabba og horft á Fangavaktina með þeim. Verulega nice því það er alltaf svo góður matur og skemmtilegt hjá okkur. Nú var verið að sýna síðasta þáttinn en næsta sunnudag verður upprifjunar- eða bakviðtjöldinþáttur. KBB vildi vita hvort við myndum samt fara í Álfheimana næsta sunnudag. Afinn sagði henni bara að hringja ef mamman vildi ekki elda og segja þá ömmu sinni að hún væri svöng. Þá fengi hún örugglega að koma í mat og sjá þáttinn :o)
Nú er það búið að vera þannig að við fjölskyldan höfum farið til tengdamömmu á föstudögum undanfarið ár í mat en nú í haust hefur það aðeins breyst en við kíkjum samt öðru hvoru. Svona þegar hún er ekki í sumarbústað að hafa það kósí :o)
Það er nú ekki víst að ég nenni að fara að elda sjö daga vikunnar aftur hmmm - smá leti í gangi. Svo slöpp er ég orðin að hér var ekki einu sinni kvöldmatur í gær :o/ Það reyndar kom til af því að við höfðum fengið okkur kaffi um fjögurleytið - brauð og fínerí og svo skúffukaka og læti þannig að við þrjú vorum bara alls ekkert svöng svo okkur langaði bara ekkert í mat.
Við fórum saman hjónin og sonurinn í laaaaanga og góða kvöldgöngu í gærkvöldi - einn og hálfur tími eða eitthvað - vorum öll gengin upp að hnjám er við komum heim og hundarnir voru alveg sáttir. Og í stað þess að fá okkur síðbúinn kvöldmat um níuleytið þá ákváðum við að hrúgast fyrir framan sjónvarpið og fá okkur popp og nammi. Hér eru foreldrarnir rosa fyrirmyndir í hollustumálum :o)
Later

Ummæli