Fara í aðalinnihald

okílídókíli

Well - við verðum heldur vinafá næsta sumar. KEB er endalaust að selja í fjáröflunarskyni fyrir ferðina til Danmerkur næsta júlí. Allir verða hundleiðir á okkur og svara ekki símanum, segjast ekki hafa fengið tölvupóst og koma ekki til dyra þegar við erum annars vegar. Og til að tryggja að enginn nenni að lesa þetta hérna áfram þá ætla ég að koma því hér á framfæri að hann er að selja jólarósir, kerti, jólakort, súkkulaðidagatöl, kaffi og m.a.s. sokka.

Þannig að það væri vel þegið að ef fólk er í þeim hugleiðingum að kaupa þessa hluti hvort sem er að styrkja drenginn svo mamman fari ekki endanlega á hausinn og barnið komist í þessa skemmtilegu ferð :o)

Væri t.d. ekki tilvalið að setja gott kaffi frá Kaffitár í jólapakkann til ömmu og afa og senda falleg jólakort teiknuð af Heklu (þekkið myndirnar þegar þið sjáið þær) til vina og vandamanna? Kaupa ekki allar alvöru húsmæður jólarósir á aðventunni? Súkkulaðidagatölin eru sko með 25 gluggum - já já einn auka fyrir góða krakka (eða þau koma frá Bretlandi þar sem aðaldagurinn er Jóladagur). Er einhver sem ekki notast við kerti á þessum dimmasta tíma ársins?

Smá söluleiðangur hérna á netinu - öllum brögðum beitt til að ná í smá pening upp í ferðina ;o)

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Frábært Hugrún er að selja WC-pappír elhúsrúllur,lakkrís,humar,rækjur,
kaffi.......má bjóða þér eitthvað hihi Við reyum bara að herja ekki á sama hópinn og við getum þá allavega verið vinir eftir veturinn þar sem við skiljum hvor aðra hihi. Kv.Heiða
Lóa Björk sagði…
he he já þetta eru duglegir krakkar :o) - Er að reyna að fá KEB til að ganga í hús hérna í hverfinu en hann hefur engan tíma nema um helgar þessi elska því hann er svo duglegur í íþróttum og tónlistinni fyrir utan skólann!
Ætli við verðum ekki bara tvær saman vinkonurnar allir hinir orðnir leiðir á okkur í lok vetrar LoL
Ps. Lakkrísinn er reyndar verulega freistandi...

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...