Fara í aðalinnihald

Hláturinn lengir lífið

Við BH fórum í gær að sjá Hvers virði er ég hjá Bjarna Hauki. Verð að viðurkenna að ég átti nú svo sem ekki von á miklu. Þetta fór svona hægt af stað en endaði þannig að tárin láku því ég hló svo mikið. Þetta var heldur ekkert of langt, bara klukkutími. Mæli alveg með að fólk kíki á hann ef það nennir svona uppistandi.

Er á Bókhlöðunni núna, gengur skítsæmilega, alltaf hægar samt en ráð var fyrir gert. Það er skemmtilegra hérna núna en oft áður því ég hitti loksins á Sólveigu og systir hennar er hér einnig að læra. Þannig að nú hef ég einhvern til að fara með í smá kaffi, venjulega sit ég bara þar til blaðran er að springa og ég komin með hausverk af hungri. Það er ekki mjög gott fyrir afköstin.

KEB vill endilega fara í bíó í dag - Iron Man heillar drenginn núna. BH ákvað að skella sér með honum en fékk að vita að daman yrði ekki ánægð ef hún fengi ekki að fara í bíó líka. Hann leitaði að bíófélaga sem allar voru uppteknar. Brá á það ráð að athuga hvort amman nennti ekki að fara með henni. Jú það gekk eftir. Hann tilkynnti skvísunni að amma ætlaði með henni í bíó - en það kom smá hik á mína, virtist ekki lítast nógu vel á þetta fyrirkomulag. BH pumpaði krakkan og þá kom í ljós að hún hélt að mamma ætlaði með henni á myndina. Og BH fékk að vita að mamma hlær svo skringilega. Krakkinn sem sagt skammast sín fyrir móður sína á almannafæri þegar gaman er hjá þeirri gömlu. BH sagði nei sko AMMA þín ætlar að fara með þér - nú þá var allt í lagi, hjúkk!

Þannig að ég má lifa við það núna að vera meðvituð um minn hallærishlátur og horfi nú bara á eitthvað sorglegt í sjónvarpinu og reyni að hafa lítið broslegt í kringum mig. Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði eitthvað gott - ég fæ þá alla vega ekki broshrukkur á næstunni :o)
Verð nú samt að láta í ljós það álit mitt að amman er öllu háværari en mamman á opinberum vettvangi - ég held ég sé alveg húsum hæf og vona að barnið skammist sín ekki alltaf fyrir mig - það væri verra. En ég hugsa mér gott til glóðarinnar þegar hún verður unglingur - það verður gaman að hrella hana þá he he.

Í bili hugga ég mig við að BH hefur nógu sterkan skráp til að þola hrossahlátur á almannafæri - hann hlær þá alla vega bara að mér ef honum ofbýður og lætur þetta ekki stoppa sig í að fara á gamanmyndir í bíó eða gamanleiki í leikhúsi - virðist slétt sama.

muuuaaaahhhaaaaaahahahaha

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þú ert músin mín. Getum hlegið að því saman... svona INNÍ-OKKUR!
Nafnlaus sagði…
Hehe.ég.og.Gulli.fórum.að.sjá.
Bjarna.um.daginn.og.við.hlógum.
eins.og.vitleysingar.En.ég.hef.nú
ekkert.tekið.eftir.því.að.hláturinn
þinn.sé.eitthvað.skrítinn.hehe.En
ég.man.hver.hló.svona.inni.í.sér
upphaflega;).kv.Helga.
Lóa Björk sagði…
takk fyrir það - hef fengið að heyra það í dag að hláturinn minn sé ekki svona furðulegur að fólk taki eftir því - fólk svona aðeins að klappa mér á bakið svo ég fari ekki á taugum þegar eitthvað er fyndið :o)
Já þetta með að hlæja inni í sér hefur verið notað á þessu heimili ever since þarna um árið, hvað var það - 1989 kannski?

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...