Bíó að sjá myndina um litla rottukokkinn (teiknimynd), man ekki hvað hún heitir. Svo á Beta amma afmæli í dag - 76 ára og alltaf hress. Við Karlotta ætlum að halda uppi heiðri okkar greinar fjölskyldunnar því ekki mæta pabbi og mamma, eru í Skorradalnum og Svandís fór austur að sjá um hrossin sín og girða og og og eitthvað meira. Kjartan og Baldvin eru farnir í Vatnaskóg og þá erum við tvær eftir. Annað er nú ekki á dagskrá í dag, enda er þetta alveg nóg, við skellum okkur bara heim og kúrum bara hérna í rólegheitum.
Later
Later
Ummæli