Skóli í gær, sitja heima og læra í dag. Leikhús í kvöld með Lóu ömmu. Nóg að gera alltaf.
Kjartan Elvar er að fara á Úlfljótsvatn með skólanum í fyrramálið. Hann kemur aftur seinnipart á föstudaginn. Þá hefur hann klukkutíma til að drífa sig í fimleika og hann ætlar að mæta. Hann hlakkar til hvers einasta tíma núna, getur ekki beðið.
Karlotta er í afmæli hjá Diljá, daman orðin 9 ára. Það er gott að eiga svona góða vinkonu rétt í næsta húsi. Hún stækkar svo hratt barnið og er ekki beint að hrynja úr hor heldur. Pilsið síðan á jólum smellur varla utan um hana, samt er það fyrir 12 ára, 152 cm. Ég sem ætlaði að láta hana nota það bara næstu jól kannski líka. Sjáum til.
Við amma erum að fara að sjá Hamskipti í Þjóðleikhúsinu - general prufa held ég, alla vega lokaæfing sem við erum að fara að sjá. Það eru ekki númeruð sæti þannig að við ætlum að vera komnar snemma og reyna að fá góð sæti. Rúnar bað mig um að fara í staðinn fyrir mömmu hennar Önnu á sýninguna. Ég náttúrulega vil gjarnan fara, en spurði samt af hverju hann skellti sér ekki sjálfur. Eins og pabbi sinn þá þolir hann ekki leikhús - skil það ekki!
Það skyldi þó aldrei vera að litla Madeleine finnist bara, finnst það ótrúlegt en vona það samt. Finn til með fólkinu hennar, var að lesa um svipað mál sem gerðist í Ástralíu á níunda áratugnum. Það endaði þannig að foreldrarnir fóru bæði í fangelsi, hún ævilangt og hann 6 ár held ég. Svo áratug seinna eða meira komu nýjar upplýsingar í ljós og foreldrarnir voru bæði talin saklaus og fengu uppreisn æru. Vona að þetta verði ekki örlög McCann hjónanna, að þau verði dæmd saklaus. Ég geri mér ekki grein fyrir hvort þau eru saklaus eða ekki. Hvort heldur sem er þá eiga þau ansi bágt að hafa misst telpuna sína.
Ljósmyndari sem tók að sér auglýsingaherferð gegn anorexiu á heiður skilið. Það er allsvakalegt að ætlast til þess að konur á öllum aldri reyni að líkja eftir 31 kg. módelum. 60 kg. og ég er kinnfiskasogin og fæ viðbrögð frá ömmu um að ég líti illa út og ætti að éta meira (2001), og ekki er ég há í loftinu. Ég að sjálfsögðu tók ömmu á orðinu og ét eins og ég get í mig látið og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Mér finnst líka rosalegt að þessar konur sem eru módel skuli þurfa að vera undir hungurmörkum til að halda vinnunni - gangandi herðatré sagði Áslaug einhverntímann og ég tek undir það. Við mæðgurnar erum alla vega vel haldnar og ekki í hættu á yfirliði vegna vannæringar, spurning um feðgana á heimilinu samt - þeir ættu kannski að hugsa sig um, he he.
ciao

Ummæli