Fara í aðalinnihald
Talaði við Höskuld í gær. Hann tók sauminn - sem var nú ekki langur. þetta er allt saumað innan frá til að örið verði sem minnst. Svo eyðast saumarnir bara. Hann var ánægður með þetta, lítur allt vel út. Spurði að fyrra bragði um doðann. Gat sagt honum að eyrað er orðið þokkalega eðlilegt aftur en kjálkabeinið og niður að hálsi er allt dofið ennþá. Fékk þá að vita að hann hefði þurft að toga eina stóra taug frá, teygja aðeins á henni og svo klippa aðra minni til að komast að öllu saman. Þetta væri því eðlilegt og gæti tekið marga mánuði að fá tilfinningu í andlitið aftur. En það er góðs viti að ég finni að þetta sé að minnka svona í rólegheitum. Það er gott að vita að þetta sé eðlilegt og taki tíma. Þá þarf maður ekki að velta því fyrir sér meir. Kom í ljós - eins og gert var ráð fyrir - að í öðrum eitlinum sem var tekinn, þessi sem þeir sáu strax að þyrfti að fjarlægja, var æxlið illkynja. En í hinum var ekkert.

Svo fer ég bara til Jóns í september aftur. Það verður ekki meira geislajoð fyrir mig - búin að fá minn skammt for life og líkaminn þolir ekki meira af því, skilst mér. Og því þurfum við Jón ekkert að ræða málin fyrr en í haust og þá hefst venjubundið eftirlit bara aftur. Verður spennandi að vita hvort eitillinn vinstra megin verði til friðs eða hvort það þurfi að taka hann fljótlega líka.

Ronja mín er orðin góð eftir stunguna. Enduðum með hana í Borgarnesi á Laugardaginn hjá dýralækni sem sprautaði hana, því hún var ekkert að skána. Og eiginlega bara að versna. Smá munur á verði hjá dýralæknum úti á landi og hér í RVK. Vissi það reyndar en fékk að reyna um helgina. Þegar tíkin var stungin síðast og við fórum með hana í Garðabæinn á bakvakt þá kostaði það okkur tuttuguþúsund krónur tæplega. Í Borgarnesi rukkaði hann okkur þrjúþúsund kall. Eigum við að ræða þetta eitthvað? Það borgar sig í raun að keyra úr Mos í Borgarnes til að fá þjónustu dýralæknis. Og það þó maður þurfi að borga fullt gjald í göngin fram og tilbaka. SillyStupid.

Hef enn ekkert heyrt í KEB - sé samt á Facebook síðu sem EUROGYM heldur úti að þau eru að hafa the time of their life þarna í Danmörku. Mikið væri ég til í að vera 13 ára og vera með þeim. Það er svo gaman hjá þeim og þau eiga eftir að lifa á þessu alla ævi hreinlega held ég.

Við horfðum hérna á daginn á gömul videó sem BH fann inná stóru vélinni. Ég drukknaði næstum í tárum ég hló svo mikið. Þessi börn sem ég á eru svo fyndin og frábær. Og þau hafa stækkað svo mikið að það er ótrúlegt. Ætla að pína BH til að setja þetta á youtube svo ég geti sýnt ykkur þetta - þið megið treysta því að þetta er verulega skemmtilegt. Spá í að horfa á þetta aftur fljótlega og þá með bæði KEB og KBB :o)

Annars stendur til að gera skurk í videomálum fjölskyldunnar. Taka allt inn á tölvu af spólum. Við höfum ekki séð 90% af því sem við höfum tekið upp í gegnum árin. Svo það ætti að vera skemmtilegt hérna hjá okkur að horfa á bíó með okkur sjálf í aðalhlutverkum fljótlega :o) Mest er þetta þó af krökkunum að sjálfsögðu. Ég er t.d. búin að vera rosalega dugleg að taka upp núna í vor. Hvert snilldarverkið á fætur öðru. Tónleikar, fimleikasýningar, beltapróf, leiksýningar, fimleikamót, fimleikaviðburði o.s.frv.

Dráttur planaður í kvöld - hvað eruð þið að hugsa? - Ég er bara að tala um að fara út með hundana. Þau draga okkur á hjólum og hananú. BH er að undirbúa þau fyrir næstu helgi þar sem við ætlum að taka þátt í Icehusky móti. Það er bara útilega með öðru biluðu hundapakki. Ætlum að skemmta okkur saman. Og að sjálfsögðu verður keppt í drætti. Bara svona til að hafa gaman að, erum ekki orðin pro ennþá en það stendur til bóta :o)

Núna sit ég hér inni í stofu og á að vera að græja ritgerðina mína - þ.e. koma mér að verki í það að skipuleggja mig almennilega og byrja að vinna. Þess vegna fór ég í það mál að blogga. Voðalega erfitt að byrja... en svo þegar maður er kominn á skrið verður vonandi ekki nokkur leið að stoppa :o)

Later

Ummæli

HMS sagði…
Did you just mark a heart on the calendar - dráttur planaður ;)
Lóa Björk sagði…
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Lóa Björk sagði…
I have a heart marked every day on my calendar :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...