Ættu ekki að vera lög gegn því að vakna svona snemma. Eða ætti ég kannski bara að hypja mig fyrr í rúmið?
Vöknuð rétt eftir klukkan fimm en sofnaði ekki fyrr en að ganga fjögur, ekki góð blanda. Mín mistök að ákveða að bera út með syninum í morgun og næstu morgna til laugardags. Hann er með aukahverfi. Sem betur fer hverfi sem við þekkjum bæði vel. Bárum út þar í marga mánuði áður en hann tók Arnartanga. Svo þetta tók ekki langan tíma og við búin vel fyrir kl. sjö.
Hætt við að ég verði geispandi í afmæli hjá litla guttanum sem er þriggja ára í dag. AFD á afmæli í dag og verður haldið upp á það með pompi og prakt. Eitthvað verður gott að borða eins og venjulega. Best er þó að þurfa ekki að elda sjálfur - elska svoleiðis daga.
Er þessa dagana að vinna upp bókhaldið hjá Rögg. Ætla að vera búin með vsk fyrir helgi til að geta notið þess að vera til um verslunarmannahelgina. Kostar það að ég er ekki að vinna í ritgerðinni á meðan. Því miður er ég ekki búin að vera dugleg í henni í þessum mánuði. En hellooo hver vill sitja inni í öllu þessu góða veðri sem búið er að vera. Sólin búin að halda mér upptekinni úti meira og minna. Tvær útilegur afstaðnar og krakkarnir búnir að vera á ferð og flugi. Það er ekki eins og ég sitji og glápi út í loftið.
Sturta og vinna...
Later

Ummæli