Fara í aðalinnihald

morgunstund...

já nei held ekki samt - væri alveg til í að sofa lengur en 5:45 á morgnana. Fínt að taka þetta svona í nokkra daga en hætta svo og sofa pínu lengur og geta þá átt aðeins lengri kvöld líka. Annars gengur þessi útburður ljómandi vel hjá okkur. Kunnum allar þessar götur og því ekki erfitt að henda blöðunum á sinn stað. Við hjólum þetta bara mæðginin og því enn fljótari en ella.

Búin að græja vsk og þá eru bara launin í dag og þá má verslunarmannahelgin bara koma í öllu sínu veldi og ég get slappað af.

Hef verið að hlusta á hljóðbækur undanfarnar tvær vikur. Það er ekkert smá nice að hlusta á meðan maður er að gera eitthvað annað. Út í sólbað og hlusta á sögu virkar vel. Þegar maður færir bókhald - sem er svona rútínu vinna - frábært að hlusta á meðan. Ekki gott að hlusta ef maður er að stemma af eða aðeins að hugsa. Þá heyrir maður bara í sjálfum sér. Nei ég tala ekki upphátt - ég les mínar eigin hugsanir, er snillingur. Gott að hlusta á meðan ég labba með hundana líka. Frábært að sameina þetta tvennt - "lesa" og gera eitthvað annað í leiðinni. Af hverju var ég ekki búin að uppgötva þetta áður? En svo les ég líka á kvöldin áður en ég fer að sofa. Það er alveg nauðsynlegt. Er að lesa núna "Óreiða á striga" framhaldið af "Karitas án titils". Nýbúin með "Karlar sem hata konur" og bíð spennt eftir framhaldinu af þeirri bók. Með þær báðar í pöntun á bókasafninu, ætti að fá þær í ágúst. Nóg að gera í ágúst þetta eru svo langar bækur.

Reyni að halda því að krökkunum að lesa líka. KEB hefur aðeins slakað á í þeim efnum en datt niður í bækur síðustu helgi sem hann fékk í jólagjöf. Svo er hann að reyna að lesa Don Kíkóti núna. Hann fékk hana í fermingargjöf. Sjáum hvað hann endist við þá bók. Það er alltaf á plani hjá mér að lesa hana. Ég er búin að benda honum á að þó hann nenni ekki að lesa hana núna að reyna þá aftur eftir ár eða tvö. Honum finnst tungumálið heldur fornt :o) KBB er alltaf að lesa eitthvað. Helst Andrés önd og Syrpur en dettur niður á skemmtilegar bækur. Erfitt að gera henni til hæfis, hún les alls ekki hvað sem er. Nennir alls ekki að lesa "gömlu" barnabækurnar eins og ævintýrabækurnar, fimmbækurnar, Öddu-bækurnar, Nancy o.s.frv. Hún fær bara illt við tilhugsunina. Og ekki nennir hún að lesa Harry potter - en við höfum fundið nokkrar bækur sem hún drekkur í sig og hún er ekki lengi að því. Yrði ekki hissa þó hún læsi hraðar en ég. Hún er skuggalega fljót að lesa. Við BH trúðum henni ekki eitt sinn er hún var búin með bók sem hún var nýbyrjuð með - það eru tvö ár síðan. Ákváðum að spyrja hana út úr og hún svaraði öllu saman - er bara svona fljótt að lesa það sem henni finnst skemmtilegt.

Later

Ummæli

Ása Unnur sagði…
ekki harry potter? Ég man ekki betur en að þau hafi bæði tvö verið sólgin í þær þegar þú last þær upphátt hér í denn =)
Lóa Björk sagði…
Nei sko ég las bara fyrstu söguna fyrir þau og hálfa nr 2. - aðalega fyrir hann, Þrátt fyrir að hann var orðinn fluglæs. Hún bara svona skottaðist með 3 ára gömul. Varð að hætta þegar hún var farin að segja mér að hún var að dreyma kastala og lifandi myndir og svona hálfgerðan draugagang. Var hálf hrædd við þessa drauma og þess vegna las KEB rest sjálfur. Og ég á enn eftir að lesa bækurnar sjálf, fannst þetta nefnilega skemmtilegar bækur :o

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...